Hæstiréttur íslands
Mál nr. 205/2003
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Miðvikudaginn 28. maí 2003. |
|
Nr. 205/2003. |
Ríkislögreglustjóri(Jón H. Snorrason saksóknari) gegn X(Ásgeir Þór Árnason hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
X var gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Árni Kolbeinsson og Ingibjörg Benediktsdóttir.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 23. maí 2003. Kærumálsgögn bárust réttinum 26. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 23. maí 2003, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 2. júní nk. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að vægari úrræðum verði beitt eða gæsluvarðhaldi markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur.
[...]
[...] Rannsókn málsins er umfangsmikil og hún hófst fyrir örfáum dögum. Lýtur hún meðal annars að ætluðum brotum varnaraðila og fleiri manna gegn XXVI. kafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940, og geta þau brot varðað hann fangelsisrefsingu. Verður samkvæmt framansögðu fallist á með héraðsdómara að skilyrði a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 fyrir gæsluvarðhaldi yfir varnaraðila séu fyrir hendi. Að þessu athuguðu verður hinn kærði úrskurður staðfestur
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 23. maí 2003.
Fulltrúi ríkislögreglustjóra hefur í dag krafist þess að X verði á grundvelli a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19, 1991 úrskurðaður til að sæta gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 2. júní 2003, kl. 16.00.
[...]
[...] Kærði er grunaður um aðild að stórfelldu auðgunar- og bókhaldsbroti en málsrannsóknin er komin skammt á veg. Telja verður að hætta sé á því að kærði geti torveldað rannsóknina svo sem með því að spilla sakargögnum, skjóta undan munum, hafa áhrif á vitni eða samseka eða komist undan. Ber því með heimild í a-lið 1. mgr. 103. gr. oml. að taka til greina kröfu ríkislögreglustjóra um það að kærði sæti gæsluvarðhaldi eins og nánar greinir í úrskurðarorði.
Pétur Guðgeirsson héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Úrskurðarorð:
Kærði X sæti gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 2. júní nk. kl. 16.00.