Hæstiréttur íslands
Mál nr. 818/2016
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
Reifun
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Greta Baldursdóttir, Helgi I. Jónsson og Karl Axelsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 9. desember 2016, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 12. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 7. desember 2016, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 4. janúar 2016 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Varnaraðili er undir rökstuddum grun um að hafa gerst sekur um háttsemi sem fangelsisrefsing er lögð við en ákæra var gefin út á hendur honum 6. desember 2016 vegna fjögurra auðgunarbrota, sem honum er gefið að sök að hafa framið á tímabilinu frá 10. ágúst til 13. september 2016. Samkvæmt því og þegar horft er til sakarferils varnaraðila, sem frá árinu 2007 hefur sætt rúmlega 7½ árs óskilorðsbundinni fangelsisrefsingu með 10 dómum og í ljósi brotahrinu þeirrar er hófst eftir að hann lauk afplánun fangelsisdóms í byrjun ágúst 2016, er fullnægt skilyrðum c. liðar 1. mgr. 95 gr. laga nr. 88/2008 til þess að honum verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi. Verður hinn kærði úrskurður því staðfestur.
Það athugast að í hinum kærða úrskurði var ranglega sagt að varnaraðili hefði samþykkt kröfu um gæsluvarðhald.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 7. desember 2016.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, kt. [...], verði gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi til miðvikudagsins 4. janúar 2016 kl. 16:00.
Í greinargerð sækjanda kemur fram að kærði hafi verið handtekinn 14. september en tilkynnt hafði verið um mann sem hafi gengið um [...] og hafi verið að reyna að komast inn í hús á leið sinni með því að taka í hurðarhúna. Lögreglumenn hafi hitt kærða þar sem hann hafi komið gangandi frá [...] og samsvaraði lýsingin á manninum við kærða. Kærði hafi haldið á tösku þegar lögregla hafði afskipti af honum en það hafi síðan komið í ljós að taskan hafði verið tekin úr bifreið sem stóð við [...]. Þá hafi einnig fundist bíllyklar og lyklaveski með nokkrum húslyklum á kærða en aðspurður sagðist kærði hafa stolið þeim úr bifreið við [...]. Þá hafi fundist um eitt gramm af ætluðu kannabisefni í fórum kærða.
Kærði hafi játað sök í skýrslutöku hjá lögreglu.
Þá sé kærði undir sterkum grun um að hafa framið eftirfarandi brot:
Mál 007-2016-[...]
Um klukkan 13:00 þann 12. september sl. hafi lögreglu borist tilkynning um að tveir einstaklingar hafi komið inn á [...] á [...], tekið veski starfsmanns staðarins og hlaupið síðan út með veskið. Atvikið hafi náðst á myndbandsupptöku en lögreglumenn hafi borið kennsl á kærða sem annan af gerendum en kærði og samverkamaður hans höfðu þá skömmu áður verið látnir lausir úr haldi lögreglu vegna rannsóknar á máli nr. 007-2016-[...]. En af myndbandsupptökum að dæma sé það kærði sem taki veskið og þeir hlaupa síðan saman út.
Mál 007-2016-[...]
Skömmu síðar eða klukkan 13:06, hafi lögreglu borist tilkynning um innbrot í kjallaraíbúð að [...]. Farið hefði verið inn um glugga á jarðhæð/kjallara hússins en sjá hafi mátt skófar á gluggakistunni og fingraför fundist á gluggakarmi en það sé mat lögreglu að skófarið sé eftir kærða. Í fljótu bragði hafi húsráðandi tekið eftir því að búið hafi verið að taka tvær fartölvur og tvær fartölvutöskur. Á vettvangi hafi fundist veskið sem tekið hefði verið frá starfsmanni á [...] skömmu áður. Þá hafi fundist hluti þýfisins hjá þeim aðila sem hafi verið með kærða í [...] þegar hann hafi verið handtekinn.
Mál 007-2016-[...] – Innbrot og þjófnaður
10. ágúst sl. Innbrot í íbúð við [...] en munirnir hafi fundist heima hjá kærða að [...]. Kærði sagðist hafa verið að geyma þessa muni fyrir vin sinn.
Kærði hafi fyrst verið úrskurðaður í gæsluvarðhald þann 14. september sl. og hafi sá úrskurður verið staðfestur með dómi Hæstaréttar í máli nr. 640/2016. Farið hafi verið fram á áframhaldandi gæslu yfir kærða þann 12. október og hafi henni verið hafnað með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur sama dag. Hæstiréttur hafi snúið þeim úrskurði við með dómi í máli nr. 704/2016.
Í skýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að ákæra hafi verið gefin út vegna ofangreindra mála þann 6. desember sl. Kærði eigi að baki langan sakarferil og hafi hlotið fjölmarga dóma fyrir auðgunarbrot, sbr. meðfylgjandi sakavottorð. Við rannsókn mála kærða hjá lögreglu hafi komið í ljós að hann sé í neyslu fíkniefna og megi ætla að hann fjármagni fíkniefnaneyslu sína með afbrotum. Þann 3. ágúst sl. hafi kærði lokið afplánun á tveggja mánaða fangelsisrefsingu Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. [...] frá [...] 2015.
Með vísan til brotaferils kærða á undanförnum vikum og mánuðum sé það mat lögreglustjóra að yfirgnæfandi líkur séu á því að kærði muni halda áfram brotastarfsemi fari hann frjáls ferða sinna en nauðsynlegt sé að ljúka þeim málum sem séu til meðferðar hjá dómstólum og lögreglu sem fyrst.
Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og c.-liðar 1. mgr. 95. gr. laga 88/2008 um meðferð sakamála sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.
Niðurstaða:
Kærði sætti gæsluvarðhaldi á grundvelli síbrotagæslu frá 14. september sl. til 12. október sl., sbr. dóm Hæstaréttar í máli nr. 640/2016. Með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur 12. október sl. var hafnað kröfu lögreglustjóra um áframhaldandi gæslu á þeim grunni. Með dómi Hæstaréttar 14. sama mánaðar, í málinu nr. 704/2016, var úrskurður héraðsdóms felldur úr gildi og kærða gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi til 9. nóvember sl.. Þann dag var kærða með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur gert að sæta gæsluvarðhaldi til 7. desember 2016 kl. 16.00. Svo sem rakið er í greinargerð lögreglustjóra hefur lögregla til rannsóknar nokkur mál þar sem kærði er undir rökstuddum grun um brot sem geta varðað hann refsingu samkvæmt 257. gr., 233. gr., 231. gr., 244. gr. eða 245. gr. almennra hegningarlaga. Aðstoðarsaksóknari gerði grein fyrir í fyrirtökunni þeim töfum sem orðið hafa á að ljúka rannsókn mála þeim er varðað hafa kærða. Í kröfugerð lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að ákæra hafi verið gefin út vegna ofangreindra mála þann 6. desember sl. Fallist er á það með lögreglustjóra að með vísan til brotaferils kærða á undanförnum vikum og mánuðum séu yfirgnæfandi líkur séu á því að kærði muni halda áfram brotastarfsemi fari hann frjáls ferða sinna en nauðsynlegt sé að ljúka þeim málum sem séu til meðferðar hjá dómstólum og lögreglu sem fyrst en við rannsókn mála kom fram að kærði hafi verið í neyslu fíkniefna.
Samkvæmt framangreindu er fallist á það með lögreglustjóra að skilyrði c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála séu uppfyllt. Þá hefur kærði samþykkt kröfu um áframhaldandi gæsluvarðhald. Verður krafan tekin til greina eins og nánar greinir í úrskurðarorði.
Þórður Clausen Þórðarson héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Kærði, X, kt. [...], skal sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi til miðvikudagsins 4. janúar 2016 kl. 16:00.