Hæstiréttur íslands
Mál nr. 57/2003
Lykilorð
- Kærumál
- Vanreifun
- Frávísunarúrskurður felldur úr gildi
|
|
Mánudaginn 3. mars 2003. |
|
Nr. 57/2003. |
Landsbanki Íslands hf. (Reinhold Kristjánsson hrl.) gegn Lundi ehf. (Hilmar Ingimundarson hrl.) |
Kærumál. Vanreifun. Frávísunarúrskurður felldur úr gildi.
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli, sem LÍ höfðaði á hendur fyrirtækinu L til innheimtu skuldar á debetkortareikningi, var vísað frá dómi sökum vanreifunar. Aðilar höfðu ekki lýst gagnaöflun lokið fyrir héraðsdómi þegar málið var tekið til úrskurðar um frávísunarkröfu L. LÍ lagði nokkur ný gögn fyrir Hæstarétt, m.a. reglur og skilmála LÍ fyrir debetkort, sem L hafði staðfest að hann hefði kynnt sér og myndi fylgja. Kom þar m.a. fram að korthafa væri sent reikningsyfirlit með umsömdu millibili og hann gæti gert athugasemdir við það yfirlit innan 20 daga frá móttöku þess. Hafði L ekki borið því við í málinu að yfirlitin hafi ekki verið send fyrirtækinu í samræmi við þetta. Málatilbúnaður LÍ þótti því ekki með þeim hætti að varðað gæti frávísun málsins vegna vanreifunar.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Gunnlaugur Claessen, Árni Kolbeinsson og Ingibjörg Benediktsdóttir.
Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 13. febrúar 2003, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 17. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 31. janúar 2003, þar sem máli sóknaraðila gegn varnaraðila var vísað frá dómi. Kæruheimild er í j. lið 1. mgr. 143. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Sóknaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi. Hann krefst einnig kærumálskostnaðar.
Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði staðfestur og honum dæmdur kærumálskostnaður.
Sóknaraðili hefur lagt nokkur ný gögn fyrir Hæstarétt. Eru það umsókn varnaraðila um debetkort 5. janúar 1998, svonefndar reglur og skilmálar sóknaraðila fyrir debetkort, sem varnaraðili staðfesti með umsókninni að hann hefði kynnt sér og myndi fylgja, innheimtubréf sóknaraðila til varnaraðila 11. apríl 2002, tilkynning sóknaraðila 3. júlí 2002 um lokun debetkortareiknings varnaraðila og bréf þess síðarnefnda 16. desember 2002 til lögfræðideildar sóknaraðila, þar sem farið var fram á að máli sóknaraðila á hendur varnaraðila yrði lokið með sátt. Aðilar höfðu ekki lýst gagnaöflun lokið fyrir héraðsdómi þegar málið var tekið til úrskurðar um frávísunarkröfu varnaraðila.
Í fyrrnefndum reglum og skilmálum kemur fram að korthöfum sé sent reikningsyfirlit þess viðskiptareiknings, sem kortið er tengt, með umsömdu millibili. Á yfirlitinu skal tilgreina nafn „seljanda, þar sem kortið var notað,“ ásamt dagsetningu og upphæð. Hafi korthafi athugasemdir við reikningsyfirlit sitt ber honum að tilkynna það sóknaraðila innan 20 daga frá móttöku þess. Varnaraðili hefur ekki borið því við að yfirlitin hafi ekki verið send honum í samræmi við þetta. Málatilbúnaður sóknaraðila er samkvæmt öllu framansögðu ekki með þeim hætti að varðað geti frávísun málsins vegna vanreifunar.
Varnaraðili verður dæmdur til að greiða sóknaraðila kærumálskostnað eins og nánar greinir í dómsorði.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til efnismeðferðar.
Varnaraðili greiði sóknaraðila 80.000 krónur í kærumálskostnað.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 31. janúar 2003.
Mál þetta, sem tekið var til úrskurðar um frávísunarkröfu stefnda, að loknum munnlegum málflutningi þann 27. þ.m. er höfðað með stefnu útgefinni 3. október 2002 og var málið þingfest þann 19. nóvember 2002.
Stefnandi málsins er Landsbanki Íslands hf. kt. 540291-2259, Austurstræti 11, Reykjavík, en stefndi er Lundur ehf., kt. 610286-1439, Brautarholti 8, Reykjavík.
Dómkröfur stefnanda eru þær, að stefndi verði dæmdur til að greiða stefnanda skuld að fjárhæð kr. 1.067.112,10 ásamt dráttarvöxtum samkvæmt III. kafla vaxtalagalaga nr. 38/2001 af kr. 1.067.112,10 frá 01.07.2002 til greiðsludags. Þá er krafist vaxtavaxta skv. 12. gr. s.l. er leggist við höfuðstól á 12 mánaða fresti. Einnig er krafist málskostnaðar samkvæmt mati dómsins, auk virðisaukaskatts af málflutningsþóknun.
Dómkröfur stefnda eru aðallega, að málinu verði vísað frá dómi, en til vara að stefndi verði sýknaður af kröfum stefnanda. Í báðum tilvikum, er þess krafist, að stefnandi verði dæmdur til að greiða stefnda málskostnað.
Málavextir:
Í stefnu er málavöxtum og málsástæðum lýst svo: „Þann 05.01.1998 stofnaði stefndi tékkareikning nr. 54453 við útibú stefnanda að Laugavegi 77, Reykjavík og fékk jafnframt útgefið debetkort til úttekta af reikningnum. Þann 01.07.2002 námu innistæðulausar færslur á reikningnum kr. 1.067.112,11. Var reikningnum lokað. Skuld þessi hefur ekki fengist greidd þrátt fyrir innheimtutilraunir og er því nauðsynlegt að höfða mál til greiðslu hennar.”
Til stuðnings kröfum sínum hefur stefnandi lagt fram það sem í skrá um framlögð skjöl er nefnt Útprentun úr viðskiptamannaskrá, en á skjalinu sjálfu er yfirskriftin:Viðskiptareikningur, reikningaskrá.
Á skjali þessu kemur fram reikningsnúmer í samræmi við það, sem segir í stefnu og eigandi talinn vera stefndi. Þá kemur fram, að stofndagur reiknings 05.01.1998, síðasta hreyfing 01.07.2002. Staða sögð vera 1.067.112,11-, og yfirdráttur sama fjárhæð.
Af hálfu stefnda er frávísunarkrafan studd þeim rökum að málið sé að verulegu leyti vanreifað af hálfu stefnanda. og því ekki unnt fyrir stefnda að taka til efnislegra varna.
Niðurstaða:
Ekkert er að finna í gögnum málsins um þær innistæðulausu færslur, sem málatilbúnaður stefnanda virðist byggður á, hvorki, hvernig eða hvenær til þeirra var stofnað, hver stofnaði til þeirra, hvort einhverjar þeirra séu færslur bankans sjálfs, né aðrar upplýsingar, sem óhjákvæmilegt verður að teljast, að fyrir liggi, svo að fullnægt sé lagakröfum um skýran málatilbúnað og nauðsynlegar hljóta að teljast til þess að stefndi hafi möguleika á að taka til varna.
Telja verður samkvæmt þessu, að málatilbúnaður stefnanda í stefnu og öðrum sóknargögnum sé ekki með þeim hætti, að samrýmist ákvæði e-liðar 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991 og ber að vísa málinu frá dómi.
Stefnandi greiði stefnda kr. 50.000 í málskostnað
Logi Guðbrandsson, héraðsdómari, kveður upp úrskurð þennan.
Ú r s k u r ð a r o r ð:
Máli þessu er vísað frá dómi.
Stefnandi greiði stefnda 50.000 krónur í málskostnað.