Hæstiréttur íslands
Mál nr. 681/2009
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Þriðjudaginn 1. desember 2009. |
|
Nr. 681/2009. |
Ákæruvaldið(Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn X (Guðríður Lára Þrastardóttir hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, á grundvelli c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Jón Steinar Gunnlaugsson og Hjördís Hákonardóttir og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 27. nóvember 2009, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 30. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 27. nóvember 2009, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í máli hans, en þó eigi lengur en til föstudagsins 18. desember 2009 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Hinn kærði úrskurður verður staðfestur með vísan til forsendna hans.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 27. nóvember 2009.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess í dag fyrir Héraðsdómi Reykjaness að X, kt. [...], verði með úrskurði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í máli hans, þó eigi lengur en til föstudagsins 18. nóvember nk. kl. 16:00.
Í þinghaldi í dag mótmælti ákærði gæsluvarhaldskröfunni og til vara að yrði á hana fallist þá verði gæsluvarðhaldinu markaður skemmri tími en krafist er eða vægari úrræðum beitt.
Í greinargerð lögreglustjóra segir að ákærði hafi sætt gæsluvarðhaldi frá 13. ágúst sl., nú síðast á grundvelli c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála, samanber dóm Hæstaréttar Íslands í máli nr. 567/2009.
Hinn 2. október, 30. október og 12. nóvember sl. hafi lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu gefið út ákæru á hendur ákærða. Er ákærða gefið að sök að hafa drýgt fjölmörg afbrot, einkum auðgunarbrot, sem fangelsisrefsing lögð við.
Með vísan til gagna málsins og framburðar ákærða hjá lögreglu og fyrir dómi sé ljóst að hann er undir rökstuddum grun um að hafa framið fjölmörg afbrot, sem fangelsisrefsing er lögð við. Þá verði að telja, í ljósi brotaferils hans, yfirgnæfandi líkur fyrir því að hann muni halda áfram afbrotum gangi hann frjáls ferða sinna.
Í greinargerðinni segir að það sé mat lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu að lagaskilyrðum síbrotagæslu séu fullnægt og því sé nauðsynlegt að ákærða verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, svo unnt verði að ljúka málum hans hjá dómstólum. Þá liggi og fyrir mat Hæstaréttar Íslands um að skilyrðum síbrotagæslu séu fyrir hendi, sbr. áðurgreindan dóm réttarins, og hafi ekkert nýtt komið fram í þessu máli sem breytt geti því mati.
Loks segir að með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og c.-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.
Niðurstaða:
Eins og að framan er lýst hefur lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu gefið út þrjár ákærur á hendur ákærða. Í þeim er ákærða og sjö öðrum samlöndum hans gefið að sök að hafa drýgt fjölmörg afbrot, einkum auðgunarbrot, sem fangelsisrefsing lögð við og var málið dómtekið hér fyrir dómi fyrr í dag. Með vísan til þess sem að framan er rakið úr greinargerð lögreglustjóra, og ennfremur með hliðsjón af málsgögnum og áður tilvitnuðum dómi Hæstaréttar Íslands þykir ljóst að ákærði sé undir rökstuddum grun um að eiga aðild að innbrotsmálum og fjölmörgum auðgunarbrotum. Þegar litið er til þess sem að framan er rakið telur dómari að uppfyllt séu skilyrði c-liðar 1. mgr. 95. gr. 88/2008 til þess að verða við kröfu lögreglustjóra um áframhaldandi gæsluvarðhald. Er krafan því tekin til greina eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði.
Sveinn Sigurkarlsson héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.
ÚRSKURÐARORÐ
Ákærði, X, skal sæta gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í máli hans, en þó eigi lengur en til föstudagsins 18. desember 2009 kl. 16.00.