Hæstiréttur íslands
Mál nr. 487/2017
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
Reifun
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Eiríkur Tómasson og Karl Axelsson og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 28. júlí 2017 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 31. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 25. júlí 2017 þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 22. ágúst 2017 klukkan 12. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Varnaraðili hefur sætt gæsluvarðhaldi frá 2. maí 2017 á grundvelli c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Eru honum gefin að sök fjölmörg brot á tímabilinu frá 17. október 2016 til 1. maí 2017, en á þeim tíma neytti hann fíkniefna. Vegna þess hve skammur tími er liðinn er fallist á með héraðsdómi að ætla megi að varnaraðili muni halda áfram brotum verði hann látinn laus áður en dómur verður lagður á mál hans. Við mat á því breytir engu þótt hann hafi sýnt af sér góða hegðun í gæsluvarðhaldsvistinni. Að þessu virtu og að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur þriðjudaginn 25. júlí 2017
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, kt. [...], verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi til þriðjudagsins 22. ágúst 2017 kl. 12:00.
Í greinargerð saksóknarfulltrúa kemur fram að ákærði hafi verið handtekinn þann 1. maí sl. en fyrr um daginn hafði lögreglu borist tilkynning um innbrot og þjófnað í nýbyggingu við Suðurhlíð í Reykjavík. Þar hafði starfsmaður komið að manni vera að bera verkfæri í bifreið sem hafði verið lagt við húsið. Þegar starfsmaðurinn hafi komið að geranda, þá hafi gerandi hlaupið í burtu. Umrædd bifreið sé í eigu ákærða en hafi verið með ofangreind stolin skráningarnúmer, þ.e. [...]. Ákærði hafi játað sök í skýrslutöku hjá lögreglu.
Auk þessa máls sé ákærði undir rökstuddum grun um eftirfarandi brot framin á undanförnum mánuðum:
„[...] – Fjársvik
Þann 11. maí sl. barst lögreglu tilkynning um að þjófnað á veski þann 10. apríl sl. en í veskinu voru m.a. greiðslukort. Í kæruskýrslu kemur fram að búið hafi verið að taka í heimildarleysi 104.795 kr. út af kortunum og að reynt hafi verið að taka meira út en án árangurs. Ákærði þekkti sjálfan sig á upptökum og viðurkenndi að hafa verið með kortin og hafa reynt að taka út af þeim.
[...] – Þjófnaður
Tilkynnt um þjófnað á sjónvarpi og farangri gesta á hótelherbergi á Fosshótel Reykjavík. Lögreglumenn þekktu ákærða sem geranda af myndbandsupptökum en ákærði játaði sök í skýrslutöku hjá lögreglu.
[...] – Innbrot, þjófnaður
Þann 30. apríl sl. barst lögreglu tilkynning um að brotist hafi verið inn í bifreiðina [...] við [...] í Reykjavík og þaðan stolið munum. Þá var skráningarnúmerum bifreiðarinnar einnig stolið. Lögreglumenn telja sig þekkja ákærða sem geranda (mál nr. [...]).
[...] – Hilming
Þann 1. maí sl. fundust ýmsir munir á heimili ákærða sem lögregla ætlar að séu þýfi. Í ljós hafi komið að umræddir munir tengdust þremur innbrotum, þ.á.m. máli nr. [...]. Ákærði neitaði sök í skýrslutöku hjá lögreglu. Hann sagðist hafa fengið þessa muni og ekki hafa vitað að um þýfi væri að ræða.
[...] – Innbrot, þjófnaður
Tilkynnt um innbrot í geymslu þann 28. apríl sl. við [...] í Kópavogi. Teknir voru nokkrir munir úr geymslunni, t.d. Canon filmuvél með linsum, háþrýstidæla, stafrænar myndavélar, fartölva, Ipod, gamlar kvikmyndatökuvélar/upptökuvélar. Ákærði hefur játað sök í skýrslutöku hjá lögreglu.
[...] – Þjófnaður og nytjastuldur ökutækis
Þann 28. apríl sl. barst lögreglu tilkynning um að farið hafi verið í óleyfi inn á skrifstofu við Skútuvog í Reykjavík og teknir lyklar af bifreiðinni [...], lyklar af fyrirtæki og að heimili tilkynnanda. Þá var bifreiðinni [...] einnig stolið eða hún tekin í heimildarleysi. Lögreglumenn þekktu ákærða á upptökum og fundu umrædda bifreið við heimili kærustu ákærða. Ákærði játaði síðan sök í skýrslutöku hjá lögreglu.
[...] – Þjófnaður
Þann 27. apríl sl. barst lögreglu tilkynning um farið hafi verið inn í skrifstofuhúsnæði við [...] í Reykjavík og þaðan teknir nokkrir munir, þ.á.m. skjávarpi. Lögreglu barst síðan ábending um að ákærði hafi farið þarna inn og tekið umrædda muni. Við leit að ákærða vegna rannsóknar lögreglu á öðru máli, þá fór lögregla að heimili kærustu ákærða. Þar afhenti móðir kærustu ákærða lögreglu meint þýfi sem ákærði hafði komið með inn á heimilið, þ.á.m. umræddan skjávarpa. Ákærði sagðist hafa keypt umræddan skjávarpa af ónafngreindum manni.
[...] – Þjófnaður
Ákærði játaði í skýrslutöku hjá lögreglu að hafa farið inn á hótelherbergi við Fosshótel og stolið þaðan sjónvarpi, ferðatösku, heyrnartólum, rakvél og hleðslutæki þann 27. apríl sl.
[...] – Nytjastuldur ökutækis
Ákærði viðurkennir í skýrslutöku hjá lögreglu að hafa þann 24. apríl sl. tekið bifreiðina [...] í heimildarleysi frá N1 Reykjavíkurvegi og notað hana þar til lögregla hafði afskipti af honum sama dag á bifreiðinni.
[...] – Innbrot, þjófnaður
Ákærði er grunaður um að hafa þann 10. apríl sl. klippt á lás á bílageymsluhúsnæði í fyrirtækinu [...], [...], Kópavogi og stolið kerru með tveimur vélsleðum samtals að verðmæti um 5.000.000 kr. Ákærði viðurkenndi sök í skýrslutöku hjá lögreglu en hann sagðist einungis hafa ætlað að nota vélsleðana, ekki að selja þá.
[...] – Innbrot, þjófnaður
Þann 3. apríl sl. var borist inn í bílageymslu við [...] og þaðan stolið nokkru magni af verkfærum. Lögregla hafði síðan afskipti af ákærða daginn eftir við umferðareftirlit og sáu lögreglumenn umrædd verkfæri í bifreið ákærða. Ákærði viðurkenndi sök í skýrslutöku hjá lögreglu.
[...] – Þjófnaður
Kæra berst lögreglu frá Olís vegna þjófnaðar á eldsneyti þann 1. apríl sl. Ákærði viðurkenndi að hafa sett eldsneyti á bifreið sína fyrir 5.079 kr. án þess að hafa greitt fyrir það.
[...] – Innbrot, þjófnaður
Þann 12. desember sl. var tilkynnt um innbrot og þjófnað í fyrirtæki við [...] í Kópavogi og þaðan stolið töluverðu magni af verkfærum. Umrædd verkfæri fundust í geymslu sem ákærði var með á leigu og viðurkenndi hann sök í skýrslutöku hjá lögreglu.
[...] – Rán
Þann 17. október sl. var óskað eftir aðstoð lögreglu að [...] í Reykjavík. Tilkynnandi greindi frá því að maður hafi ruðst inn í íbúð hans, heimtað að fá hjá honum lyf og hótað því að stinga hann með hníf. Maðurinn hafi slegið tilkynnanda nokkrum sinnum og tekið síma hans. Tilkynnandi var með sjáanlega áverka í andliti. Í skýrslutöku hjá lögreglu neitaði ákærði því að hafa ruðst þarna inn heldur hafi tilkynnandi boðið honum inn. Ákærði neitaði að hafa hótað manninum. Ákærði viðurkenndi að hafa tekið lyf og síma mannsins og að hann hafi slegið hann eftir að hafa reiðst.“
Með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur 2. maí í máli nr. R-129/2017 hafi ákærða verið gert að sæta gæsluvarðhaldi til 30. maí sl. en sá úrskurður hafi verið staðfestur með dómi Hæstaréttar í máli nr. 273/2017. Þann 30. maí sl. hafi gæsluvarðhaldið síðan verið framlengt til 27. júní sl. með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. R-162/2017. Þá hafi gæsluvarðhaldið verið framlengt frá 27. júní til 25. júlí kl. 12:00 með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. R-217/2017. Rannsókn ofangreindra mála sé lokið og lögreglustjóri hafi gefið út ákæru 20. júlí sl.
Ákærði eigi að baki nokkurn sakarferil og hafi hlotið dóma fyrir auðgunarbrot. Við rannsókn mála ákærða hjá lögreglu hafi komið í ljós að hann sé í neyslu fíkniefna og megi ætla að hann fjármagni fíkniefnaneyslu sína með afbrotum.
Með vísan til brotaferils ákærða á undanförnum vikum og mánuðum sé það mat lögreglustjóra að yfirgnæfandi líkur séu á því að ákærði muni halda áfram brotastarfsemi fari hann frjáls ferða sinna en nauðsynlegt er að ljúka þeim málum sem eru til meðferðar hjá lögreglu og dómstólum sem fyrst.
Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamálamála sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.
Niðurstaða
Í greinargerð lögreglustjóra kemur fram að rannsókn þessara mála sé lokið og lögreglustjóri hafi gefið út ákæru á hendur ákærða þann 20. júlí sl. Samkvæmt því sem fram hefur komið fyrir dómi hafði lögreglan til rannsóknar um fimmtán rannsóknartilvik þar sem ákærði er grunaður um þjófnað, hylmingu og nytjastuld einkum í apríl síðast liðinn en einnig fyrr. Í nokkrum af þessum málum hefur ákærði viðurkennt sök. Þá hefur ákærði viðurkennt þjófnað 12. desember sl., auk þess sem hann er grunaður um að hafa framið rán 17. október sl. Í því máli hefur hann gengist við því að hafa tekið lyf og farsíma af manni og síðan slegið hann. Í ljósi þess sem fyrir liggur í framangreindum málum er fallist á að fram sé kominn rökstuddur grunur um að ákærði hafi gerst sekur um háttsemi sem fangelsisrefsing er lögð við. Því er almennu skilyrði 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 fullnægt til að fallast megi á kröfu sóknaraðila um áframhaldandi gæsluvarðhald.
Ákærði á nokkurn brotaferil að baki og hefur hann m.a. hlotið dóma fyrir auðgunarbrot. Þá liggur fyrir að ákærði á við fíkniefnavanda að etja. Í þessu ljósi og að teknu tilliti til þess fjölda mála sem upp hafa komið að undanförnu, og með hliðsjón af dómi Hæstaréttar í máli nr. 273/2017, sama staða er enn uppi, verður jafnframt á það fallist að fullnægt sé sérstöku skilyrði c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 þess efnis að ætla megi að ákærði muni halda áfram brotum meðan máli hans er ólokið og þau eru til meðferðar hjá dómstólum. Rannsókn ofangreindra mála er lokið og lögreglustjóri hafi gefið út ákæru þann 20. júlí sl. Verður því samkvæmt framangreindu fallist á kröfu sóknaraðila eins og hún er sett fram og ákærða gert að sæta gæsluvarðhaldi meðan mál hans er til meðferðar fyrir dómstólum en þó eigi lengur en til þriðjudagsins 22. ágúst 2017 kl. 12.00, en gera má ráð fyrir að niðurstaða liggi fyrir í máli ákærða innan þess tíma.
Þórður Clausen Þórðarson héraðsdómari kveður upp þennan úrskurð.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákærði, X, kt. [...], skal áfram sæta gæsluvarðhaldi, en þó eigi lengur en til þriðjudagsins 22. ágúst 2017 kl. 12:00.