Hæstiréttur íslands
Mál nr. 39/2008
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Mánudaginn 28. janúar 2008. |
|
Nr. 39/2008. |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu(Jón H. B. Snorrason, saksóknari) gegn X (Bjarni Hauksson hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
Úrskurður héraðsdóms um að X sætti gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir, Ólafur Börkur Þorvaldsson, Hjördís Hákonardóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 24. janúar 2008, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 25. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 24. janúar 2008, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 31. janúar 2008 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.
Sóknaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði staðfestur.
Samkvæmt gögnum málsins var varnaraðili handtekinn við húsleit sem fram fór á heimili hans 23. janúar 2008. Mun hann hjá lögreglu hafa viðurkennt sölu fíkniefna. Með þessum athugasemdum, en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar, verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 24. janúar 2008.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur lagt fram kröfu þess efnis að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, kt. [...], [heimilisfang], Reykjavík, sæti gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 31. janúar 2008, kl. 16.00.
Í greinargerð lögreglu kemur fram að ávana- og fíkniefnadeild lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu rannsaki ætlað fíkniefnalagabrot X, kt. [...]. Þann 23. janúar sl. hafi lögreglan gert húsleit á dvalarstað kærða að Y í Hafnarfirði, að undangengnum úrskurði héraðsdóms þess efnis sama dag. Um forsendur fyrir húsleitinni er vísað til húsleitarkröfu sem lögð var fyrir héraðsdómara sama dag, sbr. mál héraðsdóms Reykjaness nr. R-45/2008. Við húsleitina hafi verið lagt hald á nokkurt magn fíkniefna, eða um 600 g af kókaíni sem kærði hafi afhent lögreglu. Auk þess hafi fundist um 800 þúsund krónur í peningum. Við handtöku hafi kærði viðurkennt sölu fíkniefna og aftur við skýrslutökur í dag en neiti alfarið að tjá sig frekar um innflutning efnanna og samverkamenn. Rannsókn lögreglu beinist á þessu stigi máls að mögulegum samverkamönnum hans og að innflutningsleið fíkniefnanna til landsins, þ.e. fjármögnun og skipulagningu.
Samkvæmt framansögðu og með vísan til gagna málsins þykir lögreglu fyrir hendi rökstuddur grunur um aðild kærða að stórfelldu fíkniefnalagabroti sem kunni að varða fangelsisrefsingu ef sök sannast. Á þessu stigi rannsóknarinnar þurfi að yfirheyra kærða frekar og fleiri einstaklinga sem málinu kunni að tengjast eða veitt geti upplýsingar við rannsóknina, en á þessu stigi rannsóknarinnar sé ekki vitað hverjir þeir séu. Rannsókn á munum sem haldlagðir voru við húsleit vegna málsins sé ólokið og beðið sé rannsóknargagna tæknideildar embættisins. Þyki þannig brýnt að vernda rannsóknarhagmuni á þessu stigi málsins. Þá sé frekari gagnaöflun og gagnaúrvinnsla framundan sem skýrt geti frekar aðdraganda brots kærða. Rannsaka þurfi nánar fjármál kærða og upplýsa nánar um samskipti hans við mögulega samverkamenn, sem kunni að tengjast málinu. Nauðsynlegt sé að kærði sæti gæsluvarðhaldi, en ljóst er að gangi hann laus geti hann sett sig í samband við meinta vitorðsmenn eða þeir geti sett sig í samband við hann. Jafnframt geti kærði komið undan gögnum með sönnunargildi sem ekki hafi verið lagt hald á. Þykir þannig brýnt að vernda rannsóknarhagsmuni á þessu stigi málsins með því að varna því að kærði gangi laus.
Verið sé að rannsaka ætluð brot gegn fíkniefnalöggjöfinni, sbr. 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Um heimild til gæsluvarðhalds er vísað til a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/ 1991, um meðferð opinberra mála.
Samkvæmt fyrirliggjandi rannsóknargögnum og því sem að framan er rakið þykir kærði vera undir rökstuddum grun um fíkniefnabrot, en ætla má að ef framangreint brot sannist, þá geti það varðað allt að 12 ára fangelsi, sbr. 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Kærði var handtekinn á dvalarstað sínum að Y í Hafnarfirði og fannst þar við húsleit um 600 gr af kókaíni og um 800 þúsund krónur í peningum. Kærði hefur fyrir dóminum viðurkennt sölu fíkniefna, en neitað að tjá sig um uppruna fíkniefnanna og hugsanlega samverkamenn. Rannsókn málsins er á frumstigi og beinist nú að hugsanlegum samverkamönnum, innflutningsleiðum fíkniefnanna, fjármögnun þeirra og skipulagningu við öflun þeirra og dreifingu. Er á það fallist með lögreglu að brýnt sé að kærði sæti gæsluvarðhaldi til að varna því að hann geti torveldað rannsókn málsins. Teljast skilyrði a- liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála uppfyllt og verður krafa lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um að kærði sæti gæsluvarðhaldi tekin til greina eins og hún er sett fram.
Ingimundur Einarsson héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Kærða, X, er gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 31. janúar 2008, kl. 16:00.