Hæstiréttur íslands

Mál nr. 272/2014


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


Dómsatkvæði

                                     

Miðvikudaginn 23. apríl 2014.

Nr. 272/2014.

Ákæruvaldið

(Óli Á. Hermannsson fulltrúi)

gegn

X

(Snorri Sturluson hdl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta gæsluvarðhaldi samkvæmt c. lið 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Dómur Hæstaréttar

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Viðar Már Matthíasson og Ólafur Börkur Þorvaldsson og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 18. apríl 2014 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 22. apríl sama ár. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 16. apríl 2014, þar sem varnaraðila var gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 13. maí 2014, klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur á þann hátt sem í dómsorði greinir.

Dómsorð:

Varnaraðili X, sæti áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í máli hans en þó eigi lengur en til þriðjudagsins 13. maí 2014, klukkan 16.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 16. apríl 2014.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur í dag krafist þess að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði X, kennitala [...], til að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi, allt til þriðjudagsins 13. maí 2014, kl. 16:00.

Kærði mótmælir kröfunni og krefst þess að henni verði hafnað.

Í greinargerð með kröfunni kemur fram að kærði hafi verið handtekinn þann 16. febrúar sl. við Fitjar í Reykjanesbæ grunaður um líkamsárás, húsbrot, eignaspjöll og vopnalagabrot þá snemma um morguninn. Kærði hafi margsinnis komið við sögu lögreglu og sé nú undir sterkum grun um líkamsárásir, eignaspjöll, umferðarlagabrot og fíkniefnalagabrot. Jafnframt sé kærði með til rannsóknar fleiri mál þar sem kærði sé undir sterkum grun að hafa framið rán, líkamsárásir og hótunarbrot á síðustu mánuðum.  Kærði hafi hlotið marga fangelsisdóma fyrir samskonar brot og nú séu til rannsóknar og hann hafi verið ákærður fyrir.  Kærði hafi frá árinu 2007, fimm sinnum verið dæmdur fyrir líkamsárásir. Þann 11.04.2011 hafi kærði lokið afplánun 12 mánaða fangelsisdóms vegna ráns. Þann 26. nóvember 2011 hafi kærði verið dæmdur fyrir frelsissviptingu. Auk þessa hafi kærði verið dæmdur fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna, akstur sviptur ökuréttindum, þjófnaði, og margsinnis fyrir vörslu fíkniefna. Þykir að mati lögreglu ljóst að kærði hafi einbeittan brotavilja og virðist ekkert lát vera á brotastarfsemi hans.

Þann 18. og 20.  mars sl. hafi kærði verið ákærður fyrir þrjá líkamsárásir, eignaspjöll, hótanir, umferðarlagabrot og fíkniefnalagabrot og séu málin til meðferðar hjá Héraðsdómi Reykjaness.

Þau brot sem komi fram í ákærunni séu þess eðlis að telja verði nauðsynlegt að stöðva brotastarfsemi kærða, þá sérstaklega þar sem brotahrina kærða ógni hagsmunum annarra. Með vísan til framangreinds og ferils kærða telji lögregla yfirgnæfandi líkur á því að kærði muni halda brotastarfsemi áfram fari hann frjáls ferða sinna og því nauðsynlegt að kærði sæti gæsluvarðhaldi.

Þann 17. febrúar sl. hafi lögreglustjórinn á Suðurnesjum farið fram á gæsluvarðhald yfir kærða vegna þessara mála og úrskurðaði Héraðsdómur Reykjaness í máli R-56/2014 að kærði skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli c. liðar 1. mgr. 95. gr. sakamálalaga nr. 88/2008 til 3.mars. Fyrrnefndur úrskurður var kærður til Hæstaréttar. Þann 24. febrúar sl. staðfesti Hæstiréttur í máli nr. 129/2014 að kærði skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli c. liðar 1. mgr. 95. gr. sakamálalaga nr. 88/2008. Í dómi Hæstaréttar kemur fram kærði sé undir rannsókn og grun um að hafa framið líkamsárásir þann 11. ágúst 2013, 10. janúar 2014 og 15. febrúar og 16. febrúar 2014. Einnig var vísað til sakaferils kærða sem fimm sinnum hefur verið dæmdur fyrir líkamsárásir og á árinu 2010 hafi hann hlotið 12 mánaða fangelsisdóm fyrir ránsbrot. Væri því skilyrði c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 fullnægt.

Þann 3. mars sl. hafi  lögreglustjórinn á Suðurnesjum krafist þess fyrir Héraðsdómi Reykjaness að kærði sætti áframhaldandi gæsluvarðahaldi og úrskurðaði Héraðsdómur Reykjaness í máli R-80/2014 að kærði skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli c. liðar 1. mgr. 95. gr. sakamálalaga nr. 88/2008. Aftur hafi úrskurður Héraðsdóms Reykjaness verið kærður til Hæstaréttar. Þann 10. mars sl. hafi Hæstiréttur í máli nr. 164/2014 staðfest að kærði skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli c. liðar 1. mgr. 95. gr. sakamálalaga nr. 88/2008 til dagsins í dag.

Að mati lögreglustjórans á Suðurnesjum hafi ekkert komið fram sem breyti mati Hæstaréttar í fyrrnefndum dómum nr. 129/2014 og 164/2014.

Vísað er til gagna málsins, úrskurðar Héraðsdóms Reykjaness frá 17. febrúar sl. í máli R-56/2014 og dóms Hæstaréttar nr. 129/2014 frá 24. febrúar sl., úrskurðar Héraðsdóma Reykjaness frá 3. mars sl. í máli R-80/2014, dóms Hæstaréttar nr. 164/2014 og ákærum dagsettum 18. febrúar og 20. febrúar 2014.

                Þá segir ennfremur í greinargerð lögreglustjóra að sakarefni málanna séu talin varða við 217. gr., 233., gr., 252. gr., og 257. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. 45. gr. a og 48. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. 2. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, en brot gegn ákvæðunum geti varðað fangelsi allt að 10 árum ef sök sannist. Um heimild til gæsluvarðhalds sé vísað til c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.

Kærði hefur sætt gæsluvarðhaldi á grundvelli c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála síðan 17. febrúar síðastliðinn.

                Samkvæmt framangreindu og rannsóknargögnum málsins er kærði undir rökstuddum grun um að hafa framið þrjár líkamsárásir, tvö eignaspjöll, líflátshótun og fíkniefnalagabrot á ríflega tveimur dögum frá 15. febrúar síðastliðinn. Þá bera gögn málsins með sér að kærði eigi allnokkurn sakarferil að baki og hefur frá árinu 2007 verið dæmdur fyrir líkamsárásir, umferðarlagabrot, rán og fíkniefnalagabrot. Í greinargerð lögreglustjóra er rakin brotastarfsemi kærða frá 15. febrúar síðastliðinn. Rannsókn á málum kærða er lokið og var ákæra birt í þinghaldi 24. mars sl., þar sem ákærði tók sér frest til að taka afstöðu til sakarefnisins. Var sá frestur veittur til 1. apríl sl. Þá var ákæra útgefin af ríkissaksóknara einnig birt ákærða í þinghaldinu vegna brota gegn 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga. Ákærði tók sér einnig frest til að taka afstöðu til þess sakarefnis og var frestur veittur til 1. apríl eins og segir að ofan.  Vegna veikinda dómara var fyrirhugaðri fyrirtöku þann 1. apríl sl. frestað og var málið tekið fyrir í dag, 16. apríl 2014. Neitaði ákærði sök í tveimur ákæruliðum þar sem brot eru heimfærð til 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga og öðrum ákærulið þar sem ákært er fyrir líflátshótun. Þá er ákærði ákærður fyrir sérstaklega hættulega háttsemi sem heimfærð er til 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga. Játaði ákærði að hluta sök í þeirri ákæru en neitaði öðrum þáttum sem varða heimfærslu brotsins. Þá játaði ákærði sök í tveimur ákæruliðum er varða vörslur fíkniefna og umferðarlagabrot sem varða fangelsisrefsingu með hliðsjón af sakavottorði ákærða og dómaframkvæmd.

Verjandi ákærða lagði fram yfirlýsingu í þinghaldi þann 24. mars sl. þar sem kæra á hendur ákærða er afturkölluð hjá lögreglu. Hefur ákæruvaldinu ekki afturkallað þann ákærulið og verður málið flutt vegna þess ákæruliðar. Var aðalmeðferð ákveðin 12. maí nk.

 Við brotum þeim sem ákærða er gefin að sök í ákærum, liggur fangelsisrefsing ef sök sannast. Telur dómurinn að ætla megi að kærði haldi brotastarfsemi áfram fari hann frjáls ferða sinna þrátt fyrir yfirlýsingu frá fangelsinu á Litla-Hrauni um að ákærði hafi innritast í meðferð á meðferðargangi og standi sig vel í skóla þar. Er því fallist á það með lögreglustjóra að skilyrðum c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála sé uppfyllt og er krafan tekin til greina.

Úrskurð þennan kveður upp Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari.

Úrskurðarorð:

Kærði, X, skal sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 13. maí nk. kl. 16.00.