Hæstiréttur íslands
Mál nr. 631/2009
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Þriðjudaginn 3. nóvember 2009. |
|
Nr. 631/2009. |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu(Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn X (Kristján Stefánsson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Jón Steinar Gunnlaugsson og Hjördís Hákonardóttir og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 30. október 2009, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 2. nóvember sama ár. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 30. október 2009, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í máli hans, en þó eigi lengur en til föstudagsins 27. nóvember 2009 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 30. október 2009.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði X, kt. [...], til að sæta áfram gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í máli hans, þó eigi lengur en til föstudagsins 27. nóvember 2009 kl. 16.
Til stuðnings kröfunni er vísað til c-lið 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.
Í kröfu lögreglustjóra kemur fram að kærði X sitji nú í gæsluvarðhaldi á grundvelli a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála og renni gæsluvarðhaldið út kl. 16 í dag. Í dag hafi lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu gefið út ákæru á hendur kærða vegna þeirra brota sem hafi verið tilefni gæsluvarðhaldsins, annars vegar fyrir þjófnað, nytjastuld og umferðarlagabrot, með því að hafa aðfaranótt mánudagsins 26. október 2009, brotist inn í bifreiðaverkstæðið D&C við Hamarshöfða 5 í Reykjavík og stolið þaðan farsíma, myndavél og reiðufé og þá tekið bifreiðina [...], í heimildarleysi til eigin nota og ekið henni sviptur ökuréttindum, og hins vegar fyrir þjófnað með því að hafa sömu nótt brotist inn í verslun Olís við Vallargrund 1-3 á Kjalarnesi, og stolið þaðan um 70.000 krónum í reiðufé. Kærði hafi gengist við brotum þessum.
Kærði hafi framið framangreind brot 4 dögum eftir að hann hafi lokið afplánun á refsidómi Hæstaréttar Íslands frá 20. maí sl.
Í Héraðsdómi Reykjavíkur hafi verið rekið mál á hendur kærða samkvæmt þremur ákærum hafi kærði í Héraðsdómi Reykjavíkur verið dæmdur til 10 mánaða fangelsisvistar fyrir mörg auðgunarbrot og brot á umferðarlögum. Dóminum hafi verið áfrýjað til Hæstaréttar Íslands að ósk kærða.
Kærði eigi að baki langan sakaferil. Hann sé vanaafbrotamaður í skilningi 72. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. og mat Hæstaréttar Íslands sem finna megi í dómi 21. febrúar 2008 nr. 665/2007. Hann hafi frá árinu 1985 verið dæmdur 33 sinnum fyrir brot gegn almennum hegningarlögum, lögum um ávana- og fíkniefni, umferðarlögum, tékkalögum og vopnalögum. Samanlögð dæmd fangelsisrefsing kærða séu sextán ár, tveir mánuðir og tíu dagar.
Samkvæmt upplýsingum úr sakavottorði kærða og frá Fangelsismálastofnun ríkisins hafi kærði frá árinu 2004 til dagsins í dag, sætt gæsluvarðhaldi og afplánun refsidóma, eins og hér segi:
1. Þann 12. febrúar 2004 var kærði úrskurður í gæsluvarðhald, grunaður um fjölda afbrota, og sat í gæsluvarðhaldi til 26. mars 2004, er hann hóf afplánun tveggja ára dóms Héraðsdóms Reykjavíkur til 12. júlí 2005, er honum var veitt reynslulausn, sem hann rauf og hóf því afplánun aftur 27. júlí 2005 til 16. apríl 2006, er hann lauk afplánun refsidómsins.
2. Þann 26. júlí 2006 var kærði úrskurðaður í gæsluvarðhald, þá grunaður um fjölda afbrota, og sat samfleytt í gæslu uns hann hlaut 12 mánaða dóm í Héraðsdómi Reykjavíkur 5. september 2006 og hóf þá samdægur afplánun til 9. júní 2007, er hann strauk. Þann 22. júní 2007 var hann handsamaður og sat í afplánun, uns henni lauk 3. ágúst 2007.
3. Þann 11. september 2007 var kærði úrskurðaður í síbrotagæslu, grunaður um fjölda afbrota, og sætti henni til 21. febrúar 2008 er hann fékk 10 mánaða dóm í Hæstarétti Íslands nr. 665/2007og hóf þá afplánun, sem lauk 6. júlí 2008.
4. Þann 25. maí 2009 hóf kærði afplánun dóms Hæstaréttar Íslands frá 20. maí 2009 nr. 57/2009 og lauk hann afplánun fimmtudaginn 22. október 2009.
5. Þann 27. október 2009 var kærði úrskurðaður í gæsluvarðhald til dagsins í dag kl. 16, á grundvelli rannsóknarhagsmuna þeirra mála sem ákæra, dags. í dag, lýtur að.
Ætla megi að kærði, sem sé fíkniefnaneytandi og án atvinnu, framfleyti sér með afbrotum.
Með vísan til brotaferils kærða sé það mat lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu að ætla megi að kærði muni halda áfram afbrotum áður en dómur héraðsdóms gangi í málum sem rekin séu á hendur honum í héraði og fyrir Hæstarétti.
Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.
Fyrr í dag voru þingfest mál á hendur kærða sem varða brot er kærði var úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna og var það mál sameinað þremur öðrum málum sem rekin voru á hendur kærða fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Var honum þar gefið að sök mörg brot á almennum hegningarlögum og brot á umferðarlögum á árinu 2009. Hefur kærði viðurkennt að hafa framið þau brot sem honum voru gefin að sök og hefur mál hans verið dómtekið. Þá liggur fyrir að aðeins fjórir dagar liðu frá því að hann var leystur úr afplánun uns hann var handtekinn á ný vegna þjófnaðar-, nytjastuldar og umferðarlagabrots. Þá er og til þess að líta að hann á að baki langan sakarferil. Er því fallist á það með lögreglu að hætta sé á að kærði haldi áfram brotum hafi hann ferðafrelsi. Er því uppfyllt skilyrði c- liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Hann verður því úrskurðaður í gæsluvarðhald þar til dómur gengur í máli hans eins og krafist er og nánar greinir í úrskurðarorði, en ekki þykir ástæða til að marka gæsluvarðhaldinu skemmri tíma en krafist er.
Hervör Þorvaldsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Úrskurðarorð:
Kærði, X, kt. [...], skal sæta gæsluvarðhaldi, uns dómur gengur í máli hans, þó eigi lengur en til föstudagsins 27. nóvember 2009 kl. 16.