Hæstiréttur íslands

Mál nr. 500/2008


Lykilorð

  • Kærumál
  • Fyrirsvar
  • Vitni


                                     

Þriðjudaginn 16. september 2008.

Nr. 500/2008.

S10 ehf.

(Ástráður Haraldsson hrl.)

gegn

Reykjavíkurborg

(Gunnar Eydal hrl.)

 

Kærumál. Fyrirsvar. Vitni.

S kærði úrskurð héraðsdóms þar sem leyst var úr ágreiningi um hvort sex nafngreindir einstaklingar skyldu gefa munnlega skýrslu fyrir dómi sem vitni eða með stöðu sem aðilar máls. Talið var að þótt skýrslugjafar sætu ýmist í borgarstjórn eða borgarráði og hefðu atkvæðisrétt á þeim vettvangi, við töku ákvörðunar um hagsmuni R,  gætu þeir ekki skoðast sem fyrirsvarsmenn R samhliða borgarstjóra. Samkvæmt venju í dómaframkvæmd gegndi borgarstjóri því hlutverki einn vegna stöðu sinnar sem framkvæmdastjóri sveitarfélagsins.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingibjörg Benediktsdóttir, Hjördís Hákonardóttir og Markús Sigurbjörnsson.

Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 9. september 2008, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 12. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 9. september 2008, þar sem leyst var úr ágreiningi aðilanna um hvort sex nafngreindir menn skyldu gefa munnlega skýrslu fyrir dómi sem vitni eða með stöðu sem aðilar máls. Kæruheimild er í b. lið 1. mgr. 143. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Sóknaraðili krefst þess að umræddir sex skýrslugjafar teljist vitni í málinu.

Varnaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar og kærumálskostnaðar.

Sóknaraðili höfðaði mál þetta, sem sætir flýtimeðferð, gegn varnaraðila með stefnu 30. júní 2008. Í henni kom meðal annars fram að sóknaraðili hefði í hyggju að kveðja fyrir dóm til skýrslugjafar Ólaf F. Magnússon, þáverandi borgarstjóra varnaraðila, og borgarfulltrúana Björk Vilhelmsdóttur, Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, Júlíus Vífil Ingvarsson, Óskar Bergsson, Svandísi Svavarsdóttur og Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson, sem sæti ættu í borgarráði, ásamt tveimur nafngreindum starfsmönnum varnaraðila. Á dómþingi 2. september 2008 kom fram að aðilana greindi á um hvort þessir nafngreindu skýrslugjafar ættu að skoðast sem vitni í málinu eða hefðu stöðu sem aðilar, en þó að frátalinni Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, sem þá hafði tekið við starfi borgarstjóra og óumdeilt var að kæmi fram sem fyrirsvarsmaður varnaraðila. Ágreiningsatriði þetta var tekið til úrskurðar í sama þinghaldi og úr því leyst með hinum kærða úrskurði. Líta verður svo á að héraðsdómara hafi verið rétt að taka þegar í stað afstöðu til þessa ágreinings þótt skýrslugjafarnir hefðu ekki enn komið fyrir dóm, sbr. dóm Hæstaréttar 21. nóvember 1984 í máli nr. 222/1984, sem birtur er í dómasafni þess árs á bls. 1301.

Eins og að framan er getið greinir aðilana ekki á um að núverandi borgarstjóri varnaraðila komi fram í málinu sem fyrirsvarsmaður hans, sbr. 5. mgr. 17. gr. laga nr. 91/1991, og gefi ef þörf krefur munnlega skýrslu fyrir dómi eins og aðili væri, sbr. 4. mgr. 48. gr. laganna. Þótt þeir menn, sem sæti eiga í borgarstjórn eða borgarráði, eigi á þeim vettvangi atkvæði við töku ákvörðunar um hagsmuni varnaraðila, geta þeir ekki skoðast sem fyrirsvarsmenn hans samhliða borgarstjóra, sem samkvæmt venju í dómaframkvæmd gegnir því hlutverki einn vegna stöðu sinnar sem framkvæmdastjóri sveitarfélagsins. Samkvæmt þessu og með vísan til 1. mgr. 51. gr. laga nr. 91/1991 verður því að líta svo á að borgarfulltrúar, sem sóknaraðili hyggst leiða fyrir dóm, gefi þar að borgarstjóra frátöldum skýrslu sem vitni.

Með því að sóknaraðili hefur ekki krafist kærumálskostnaðar verður hann ekki dæmdur.

Dómsorð:

Munnlegar skýrslur, sem Björk Vilhelmsdóttir, Júlíus Vífill Ingvarsson, Ólafur F. Magnússon, Óskar Bergsson, Svandís Svavarsdóttir og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson gefa í máli sóknaraðila, S10 ehf., á hendur varnaraðila, Reykjavíkurborg, skulu teknar af þeim sem vitni.

Kærumálskostnaður fellur niður.

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 9. september 2008.

 

I

Mál þetta, sem tekið var til úrskurðar um réttarstöðu tiltekinna aðila við skýrslugjöf fyrir dómi föstudaginn 5. september sl., er höfðað fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur af S10 ehf., kt. 510407-0750, Lágmúla 7, Reykjavík, með stefnu, þingfestri 2. júlí 2008, á hendur Reykjavíkurborg, kt. 530269-7609, Ráðhúsinu við Vonarstræti, Reykjavík.

Dómkröfur stefnanda eru þær aðallega, að viðurkennt verði, að samningur stefnanda og stefnda frá 2. apríl 2008 um kaup á byggingarrétti á lóð við Njarðargötu í Reykjavík hafi fullt skuldbindingargildi.  Til vara krefst stefnandi þess, að viðurkennt verði, að stefnda Reykjavíkurborg sé bótaskyld gagnvart stefnanda vegna synjunar borgarráðs Reykjavíkur 19. júní 2008 um staðfestingu á samningi aðila um kaup á byggingarrétti á lóð við Njarðargötu í Reykjavík frá 2. apríl 2008.  Enn fremur krefst stefnandi málskostnaðar.

Dómkröfur stefnda eru þær, að stefndi, Reykjavíkurborg, verði sýknuð af öllum kröfum stefnanda, og að stefnanda verði gert að greiða stefnda málskostnað að mati réttarins.

 

II

Málavextir

Mál þetta snýst um kröfur stefnanda á hendur stefnda vegna synjunar í borgarráði á að staðfesta samning stefnanda, S10 ehf. f.h. S8, og Reykjavíkurborgar, dags. 2. apríl 2008, um lóðaúthlutun til handa félaginu við Sturlugötu í Reykjavík, en samkomulagið var gert með fyrirvara um samþykki Framkvæmda- og eignaráðs og borgarráðs.  Samkomulagið var samþykkt samhljóða af Framkvæmda- og eignaráði þann 7. apríl og þaðan vísað til borgarráðs.  Á fundi borgarráðs þann 30. apríl 2008 var erindið samþykkt með sex atkvæðum gegn einu.  Greiddi fulltrúi Samfylkingar atkvæði gegn erindinu.  Við þessar aðstæður bar að vísa málinu til borgarstjórnar, vegna ákvæða 39. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, um að byggðarráði sé heimil fullnaðarákvörðun mála, sem eigi varða verulega fjárhag sveitarsjóðs eða stofnana hans, enda sé eigi ágreiningur innan ráðsins.  Á fundi borgarstjórnar hinn 6. maí 2008 var samþykkt, með 15 samhljóða atkvæðum, að fresta málinu.  Á fundi borgarstjórnar hinn 20. maí 2008 var málið afgreitt með því, að samþykkt var, með 15 samhljóða atkvæðum, að vísa því til borgarráðs.  Á fundi borgarráðs hinn 19. júní 2008, eftir að málið kom á ný til afgreiðslu ráðsins, var lagt til, að borgarráð staðfesti ekki fyrirliggjandi samkomulag.  Gerir stefnandi í máli þessu kröfu um, að samningur aðila frá 2. apríl 2008 teljist skuldbindandi, auk þess sem stefnandi krefst til vara viðurkenningu á bótaskyldu stefnda vegna synjunar á staðfestingu samningsins.

Í þessum þætti málsins deila aðilar um það, hvort borgarráðsmennirnir og borgarfulltrúarnir, Björk Vilhelmsdóttir, Júlíus Vífill Ingvarsson, Óskar Bergsson, Svandís Svavarsdóttir og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, sem og borgarfulltrúinn og fyrrverandi borgarstjóri, Ólafur F. Magnússon, hafi stöðu aðila eða vitna við væntanlegar skýrslutökur fyrir dómi.  Var málið munnlega flutt um þetta ágreiningsatriði og tekið til úrskurðar. 

 

III

Forsendur og niðurstaða

Samkvæmt 2. mgr. 11. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 fer borgarstjórn með yfirstjórn Reykjavíkurborgar, en borgarstjóri er framkvæmdastjóri borgarinnar.  Samkvæmt 39. gr. sömu laga fer borgarráð, ásamt borgarstjóra með framkvæmdastjórn borgarinnar og fjármálastjórn.  Ákvörðunarvald er þannig ekki alfarið í höndum borgarstjóra, heldur þarf borgarráð að staðfesta ákvarðanir hans.  Verður því að líta svo á, að borgarráðsmenn hafi allir aðilastöðu í máli þessu, og girðir 5. mgr. 17. gr. l. nr. 91/1991, um fyrirsvar sveitarfélaga í dómsmáli, ekki fyrir þá niðurstöðu.  Björk Vilhelmsdóttir, Júlíus Vífill Ingvarsson, Óskar Bergsson, Svandís Svavarsdóttir og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson eiga öll sæti í borgarráði og teljast þannig hafa aðilastöðu í máli þessu.  Þá eiga þessir aðilar allir sæti í borgarstjórn, auk Ólafs F. Magnússonar.  Borgarstjórn er fjölskipað stjórnavald Reykjavíkurborgar.  Af 4. mgr. 17. gr. l. nr. 91/1991 leiðir, að þessir aðilar hafi aðilastöðu, enda þótt sérstaklega sé kveðið á um fyrirsvar sveitarstjórnar í dómsmálum í 5. mgr. sömu grein.  Verður samkvæmt framansögðu að fallast á það með stefndu, Reykjavíkurborg, að framangreindir aðilar hafi allir aðilastöðu í máli þessu.

Sigríður Ólafsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Björk Vilhelmsdóttir, Júlíus Vífill Ingvarsson, Óskar Bergsson, Svandís Svavarsdóttir, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Ólafur F. Magnússon hafa aðilastöðu í máli þessu.