Hæstiréttur íslands
Mál nr. 153/2013
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Mánudaginn 11. mars 2013. |
|
Nr. 153/2013. |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H.B. Snorrason saksóknari) gegn Æ (Ómar Örn Bjarnþórsson hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. a. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Gæsluvarðhaldsúrskurður staðfestur.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem Æ var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Greta Baldursdóttir, Benedikt Bogason og Helgi I. Jónsson
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 7. mars 2013, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 7. mars 2013, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 14. mars 2013 klukkan 16 og einangrun meðan á því stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími og að honum verði ekki gert að sæta einangrun.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 7. mars 2013.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess fyrir í dag fyrir Héraðsdómi Reykjaness með vísan til a. liðar 1. mgr. 95 gr. og b. liðar 1. mgr. 99. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 að Æ, kt. [...], skuli sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 14. mars 2013, kl. 16:00. Þá er þess krafist að honum verði gert að sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.
Kærði mótmælir kröfunni. Hann krefst þess að gæsluvarðhaldinu verði hafnað en til vara að því verði markaður skemmri tími en krafist er. Þá er þess krafist að kröfu um að kærði verði látinn sæta einangrun verði hafnað.
Krafan er reist á því að kærði sé undir grun um brot gegn lögum nr. 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. nr. 19/1940.
Í kröfu lögreglustjórans segir m.a. að ávana- og fíkniefnadeild lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu hafi nú til rannsóknar stórfelldan innflutning fíkniefna frá Kaupmannahöfn. Um sé að ræða tæp 20 kíló af amfetamíni og tæpa 2 lítra af amfetamínvökva, sem flutt hafi verið hingað til lands með pósti, en lögregla hafi lagt hald á sendingarnar 21. og 24. janúar sl.
Í þágu rannsóknar málsins hafi lögregla handtekið og yfirheyrt átta sakborninga, þ.m.t. kærða Æ, og sæti nú alls fimm einstaklingar gæsluvarðhaldi m.t.t. rannsóknarhagsmuna málsins.
Lögregla hafi undir höndum myndbandsupptökur þar sem sjá megi meðkærðu, Z, Þ og X, póstleggja þann 18. janúar sl. þær sendingar er innihéldu umrædd 20 kíló af amfetamíni. Lögregla bíði hins vegar enn myndbandsupptaka úr pósthúsi þar sem amfetamínvökvinn hafi verið póstlagður þann 22. janúar sl.
Þann 20. febrúar hafi kærði Æ verið handtekinn grunaður um aðild að umræddum fíkniefnainnflutningi og hann úrskurðaður í gæsluvarðhald til dagsins í dag, sbr. dóm Hæstaréttar Íslands nr. 125/2013. Í skýrslutökum hjá lögreglu hafi kærði neitað allri aðild sinni að málinu.
Í málinu liggi fyrir mikil símasamskipti milli meðkærða Z og kærða Æ, þá daga sem Z hafi verið staddur í Kaupmannahöfn í umrætt sinn. Af símagögnum megi sjá nokkurn fjölda SMS-skeyta þeirra á milli þá daga sem innflutningurinn hafi átt sér stað og hafi þeim skeytum verið eytt úr símum þeirra. Hvorki Z né Æ hafi getað upplýst lögreglu um innihald skeytanna. Þann 4. mars sl. hafi símar þeirra verið sendir norskum lögregluyfirvöldum með ósk um endurheimtingu hinna eyddu skeyta. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Noregi hafi tekist að afla mikils fjölda gagna sem eytt var úr símunum og bíði nú lögregla eftir þeim gögnum.
Þá liggi og fyrir að kærði Æ hafi sótt meðkærða Z er hann kom til landsins 23. janúar sl. og hafi lögregla fylgst með því hvar kærði hafi tekið Z upp í bifreið sína við Keflavíkurflugvöll og ekið honum að heimili hans við [...] í [...]. Þaðan hafi þeir ekið upp í [...] í [...], þar sem lögregla hafi fylgst með þeim ganga um móana.
Við rannsókn málsins hafi komið fram, í framburði tveggja sakborninga, þ.e. Y og Þ, sem báðir sæti nú einangrun vegna málsins, að Z hafi greint þeim frá því að hann væri með mann á sínum vegum, starfsmann tollsins, sem hafi átt að tryggja að umræddar póstsendingar kæmust í gegnum tollafgreiðslu. Kváðu þeir báðir að umræddur starfsmaður tollsins væri frændi Z, hann væri [...], hann væri [...] og æki um á [...] bifreið.
Kærði, Æ, sem sé tollvörður með [...], sé [...] Z, þá sé hann [...] og aki um á [...].
Í málinu liggi fyrir að eftir samskipti Z og kærða Æ þann 23. janúar hafi Z greint meðkærða Þ frá því að lögregla væri búin að haldleggja póstsendingarnar og jafnframt að lögregla fylgdist með ferðum Z. Sé það grunur lögreglu að kærði Æ hafi upplýst Z um haldlagningu fíkniefnanna og að lögregla fylgdist með ferðum hans.
Kærði sé undir rökstuddum grun um aðild að afbroti sem allt að 12 ára fangelsisrefsing sé lögð við. Um er að ræða stórfelldan innflutning fíkniefna sem víst þyki að hafi átt að fara í sölu- og dreifingu hér á landi.
Rannsókn málsins sé vel á veg komin en þó hvergi nærri lokið hvað varði þátt kærða. Nauðsynlegt sé að taka frekari skýrslur af kærða og öðrum sakborningum auk vitna. Þá bíði lögregla enn gagna frá Danmörku auk þess sem unnið er að rannsókn á símagögnum kærða og annarra sakborninga. Allt séu þetta atriði sem kunni að varpa frekara ljósi á málið. Það sé því afar brýnt að vernda rannsóknarhagmuni málsins sem teljist engan veginn upplýst en ljóst megi vera að gangi kærði frjáls ferða sinna kunni hann að torvelda og spilla rannsókninni, s.s. með því að koma undan munum sem hafi sönnunargildi í málinu eða haft áhrif á aðra samverkamenn.
Með vísan til framangreinds sé það mat lögreglustjóra að lagaskilyrðum rannsóknargæslu sé fullnægt. Með skírskotun til þess, framlagðra gagna, a. liðar 1. mgr. 95. gr. og b. liðar 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála sér þess krafist að krafan nái fram að ganga.
Kærði var handtekinn 20. febrúar sl. og úrskurðaður í gæsluvarðhald í framhaldi af því. Rökstuddur grunur er kominn fram um að kærði hafi gerst sekur um háttsemi sem fangelsisrefsing er lögð við. Ljóst þykir að lögregla þarf frekara svigrúm til þess að ná utanum rannsóknina og tryggja rannsóknarhagsmuni málsins, enda málið mjög umfangsmikið. Verður því talið brýnt að kærði sæti áfram gæsluvarðhaldi þannig að hann fái ekki tækifæri til að torvelda rannsókn málsins með því að hafa áhrif á aðra samseka eða vitni. Með vísan til a. liðar 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála er fallist á kröfu lögreglustjórans um gæsluvarðhald eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði. Fallist verður jafnframt á að kærði sæti einangrun meðan á gæsluvaðhaldinu stendur.
Gunnar Aðalsteinsson héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.
Úrskurðarorð:
Kærði, Æ, skal sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 14. mars 2013, kl. 16:00.
Kærði skal sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.