Hæstiréttur íslands
Mál nr. 339/2016
Lykilorð
- Kærumál
- Farbann
Reifun
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma Benedikt Bogason hæstaréttardómari og Ingibjörg Benediktsdóttir og Ingveldur Einarsdóttir settir hæstaréttardómarar.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 3. maí 2016, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 3. maí 2016 þar sem varnaraðila var gert að sæta farbanni þar til dómur gengur í máli hans en þó eigi lengur en til þriðjudagsins 31. maí 2016 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 3. maí 2016.
Héraðssaksóknari hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði að X, kt. […], verði gert að sæta áfram farbanni þar til dómur fellur í máli hans, en þó eigi lengur en til þriðjudagsins 31. maí 2016, kl. 16.00, með vísan til b. liðar 1. mgr. 95. gr. og 2. mgr. 95. gr., sbr. 100. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.
Kærði mótmælir kröfunni og krefst þess að henni verði hafnað.
Í greinargerð héraðssaksóknara segir að þann 28. september sl. hafi lögreglan lagt hald á rúmlega 19,5 kg af amfetamíni og rúmlega 2,5 kg af kókaíni sem hafi fundist í bifreið í [...]. Hafi tveir erlendir aðilar verið handteknir grunaðir um aðild að innflutningi fíkniefnanna hingað til lands en annar þeirra hafi komið með bifreiðina til landsins með ferjunni Norrænu þann 22. september s.l. Lögreglan hafi verið með eftirlit með bifreiðinni sem hafi innihaldið fíkniefnin í nokkra daga. Við það eftirlit hafi lögreglan ítrekað orðið vör við aðra bifreið sem hafi virst fylgja hinni eftir. Við frekari skoðun lögreglu hafi komið í ljós að um var að ræða bílaleigubifreiðar sem kærði Y hafi verið skráður leigutaki að. Þá hafi lögreglan einnig borið kennsl á kærða X í bifreiðinni. Þá hafi kærði verið handtekinn þann 28. september ásamt fleirum og sætt í framhaldi gæsluvarðhaldi vegna málsins. Við leit á heimili og í bifreið ákærða hafi fundist munir og gögn sem tengja ákærða við innflutning fíkniefnanna.
Með ákæru héraðssaksóknara dagsettri 5. apríl sl. hafi ákærða X verið gefið að sök stórfellt fíkniefnalagabrot, með því að hafa á árinu 2015 staðið saman ásamt meðákærðu að innflutningi á 19.448,96 g af amfetamíni og 2.597,44 g af kókaíni frá Hollandi til Íslands ætluðu til söludreifingar í ágóðaskyni, eins og nánar greini í ákæruskjali.
Ákærði þykir vera undir sterkum grun um aðild að broti sem geti varðað allt að 12 ára fangelsi. Að mati ákæruvalds þyki meint aðild ákærða mikil en hún sé talin tengjast skipulagningu og flutningi fíkniefnanna hingað til lands. Þá sé einnig lagt til grundvallar kröfu að um mjög mikið magn hættulegra fíkniefna sé að ræða. Metur ákæruvald það svo að skilyrðum 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála sé fullnægt í því máli sem hér um ræðir en staða ákærða þykir sambærileg stöðu sakborninga á öðrum svipuðum málum sbr. mál Hæstaréttar nr. 736/2015, 152/2013, 149/2013, 269/2010, 164/2010 og 91/2010, þar sem sakborningum hafi verið gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli almannahagsmuna þegar legið hafi fyrir sterkur grunur um beina aðild að innflutningi að miklu magni fíkniefna í ágóðaskyni.
Þá kemur fram að ákærði hafi sætt gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknar málsins frá 29. september, síðast með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness nr. R-[...]/2015, en sá úrskurður hafi verið staðfestur með dómi Hæstaréttar. Þar sem ákærði sætti gæsluvarðhaldi í 12 vikur án þess að mál hafi verið höfðað á hendur honum taldi lögregla, í samræmi við 4. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, að ekki væri unnt að fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna. Í samræmi við það hafi verið farið fram á og ákærði í kjölfarið úrskurðaður í farbann sem Hæstiréttur hafi staðfest í eitt skipti með dómi nr. [...]/2016. Sé því farið fram á að ákærði verði úrskurðaður í áframhaldandi farbann á grundvelli 100. gr. laga nr. 88/2008 en á því sé byggt að skilyrði 2. mgr. 95. gr. laganna séu eins og áður er rakið uppfyllt. Þá telji lögregla að jafnframt megi líta til b. liðar 1. mgr. 95. gr. en verði ákærði sakfelldur fyrir þau brot sem hann sé grunaður um eig hann yfir höfði sér þungan dóm. Því megi ætla að ákærði kunni að reyna að komast úr landi eigi hann þess kost. Að mati héraðssaksóknara sé brýnt að tryggja nærveru ákærða á meðan mál hans sé til meðferðar fyrir yfirvöldum hér á landi og því nauðsynlegt að honum verði gert að sæta farbanni þar til mál hans er til lykta leitt.
Ákæruvaldið telur með hliðsjón af því sem rannsókn hafi leitt í ljós að ákærði sé undir sterkum grun um að hafa framið brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940, ásamt síðari breytingum, og geti varðað allt að 12 ára fangelsi.
Um heimild til að úrskurða kærða í farbann er vísað til b. liðar 1. mgr. 95. gr. og 2. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. Með vísan til alls framangreinds og framlagðra gagna málsins sé þess beiðst að krafa héraðssaksóknara um farbann nái fram að ganga.
Með dómi Hæstaréttar [...]. febrúar 2016 í máli nr. [...]/2016, var kærða gert að sæta farbanni til 15. mars 2016 á grundvelli 1. mgr. 100. gr. laga nr. 88/2008, sbr. 2. mgr. 95. gr. sömu laga. Með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness 15. mars 2016 var farbann kærða framlengt til 5. apríl sl. og með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness þann 5. apríl sl. var farbann kærða framlengt til dagsins í dag. Er ekkert fram komið í málinu sem leiðir til þess að ekki séu lengur fyrir hendi skilyrði til að varnaraðila verði gert að sæta farbanni, en rannsókn málsins, sem hefur verið mjög umfangsmikil, er lokið og hefur ákæra verið gefin út. Með vísan til framangreinds er fallist á kröfu héraðssaksóknara um áframhaldandi farbann, eins og nánar greinir í úrskurðarorði.
Úrskurð þennan kveður upp Bogi Hjálmtýsson héraðsdómari.
Úrskurðarorð:
Varnaraðili, X, skal sæta farbanni þar til dómur fellur í máli hans, þó eigi lengur en til þriðjudagsins 31. maí 2016, kl. 16:00.