Hæstiréttur íslands
Mál nr. 596/2011
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Fimmtudaginn 10. nóvember 2011. |
|
Nr. 596/2011. |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H.B. Snorrason saksóknari) gegn X (Ómar Örn Bjarnþórsson hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi áfram sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Eiríkur Tómasson, Greta Baldursdóttir og Þorgeir Örlygsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 8. nóvember 2011 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 9. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 8. nóvember 2011, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 6. desember 2011 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Meðal þeirra fíkniefna, sem sterkur grunur leikur á að varnaraðili hafi skipulagt innflutning á, eru samkvæmt gögnum málsins 9.908,06 g af amfetamíni og 8.100 töflur af ecstasy. Að þessu virtu og að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 8. nóvember 2011.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að [X], kt. [...], verði áfram gert að sæta gæsluvarðhaldi, allt til þriðjudagsins 6. desember 2011, kl. 16:00.
Í greinargerð lögreglu kemur fram að ávana- og fíkniefnadeild lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu hafi nú haft til rannsóknar mál er varði ætlaðan innflutning á miklu magni af fíkniefnum hingað til lands. Hinn 10. október sl. hafi lögreglan fundið og lagt hald á mikið magn af hættulegum fíkniefnum sem hafi verið flutt hingað til lands með skipi frá Hollandi. Efnin hafi verið vel falin í vörugámi á vegum fyrirtækisins A ehf., sem kærði X sé starfsmaður hjá. Um magn, tegund og styrkleika efnanna sé vísað til efnaskýrslu tæknideildar og matsgerðar rannsóknarstofu Háskólans.
Við skýrslutöku hjá lögreglu hafi kærði játað aðild sína að innflutningnum. Hann kvaðst þó ekki hafa vitað að um fíkniefni væri að ræða, heldur talið að þetta væru sterar. Kærði hafi sagt sitt hlutverk hafa verið að fara út til Amsterdam og hitta þar aðila sem afhenti honum kassa með efnunum. Hann hafi beðið aðila úti að koma efnunum fyrir í gámnum á vegum fyrirtækisins. Hafi kærði sagst hafa ætlað að taka sjálfur á móti kössunum hér á landi og geyma þá þar til þeir yrðu sóttir. Kærði hafi kveðið aðila að nafni B hafa fengið sig til verksins. B hafi verið staddur á Spáni er fíkniefnin hafi komið til landsins en hafi verið handtekinn er hann hafi komið til landsins hinn 30. október sl. og sæti nú gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknar málsins. B neiti allri sök í málinu.
Rannsókn lögreglu miði nú áfram en hér sé um að ræða umfangsmikið og vel skipulagt fíkniefnamál þar sem mikið magn af sterkum fíkniefnum hafi verið flutt hingað til lands. Unnið sé að rannsókn málsins í samvinnu við erlend lögregluyfirvöld.
Kærði þyki vera undir rökstuddum grun um aðild að broti sem geti varðað allt að 12 ára fangelsi. Meint aðild kærða þyki mikil en hún sé talin tengjast skipulagningu og flutningi fíkniefnanna hingað til lands. Lögregla telji nær öruggt að fíkniefnin hafi átt að fara í sölu og dreifingu til ótiltekins fjölda manna hér á landi. Þá sé einnig lagt til grundvallar kröfu um áframhaldandi gæsluvarðhald að um mjög mikið magn hættulegra fíkniefna sé að ræða. Hið ætlaða brot kærða þyki mjög alvarlegt. Með tilliti til hagsmuna almennings þyki þannig nauðsynlegt að kærði sæti áfram gæsluvarðhaldi á meðan mál hans sé til meðferðar en telja verði að ef sakborningur, sem orðið hafi uppvís að jafn alvarlegu broti og kærði, gangi laus áður en máli ljúki með dómi þá valdi það hneykslun í samfélaginu og særi réttarvitund almennings. Staða kærða í málinu þyki sambærileg stöðu sakborninga í öðrum svipuðum málum, sbr. mál Hæstaréttar nr. 91/2010, 56/2010, 136/2008, 306/2008, 635/2007, 376/2006, 377/2006, 378/2006, 154/2006, 368/2005, 93/2005, 488/2004, 269/2004, 417/2000 og 471/1999, þar sem sakborningum hafi verið gert að sæta gæsluvarðhaldi fram að uppkvaðningu dóms þegar legið hafi fyrir rökstuddur grunur um beina aðild að innflutningi að miklu magni fíkniefna í ágóðaskyni. Ekki sé talin ástæða til að ætla að refsimat og réttarvitund almennings í slíkum málum hafi breyst frá því téðir dómar hafi verið uppkveðnir, og sé talið að skilyrðum 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála sé fullnægt í því máli sem hér um ræði.
Til rannsóknar sé ætlað brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 ásamt síðari breytingum, sem getur varðað allt að 12 ára fangelsi. Um heimild til gæsluvarðhalds er vísað til 2. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.
Eins og rakið hefur verið er kærði undir sterkum grun um aðild að broti á fíkniefnalöggjöfinni með því að hafa skipulagt innflutning á umtalsverðu magni af sterkum fíkniefnum. Hefur kærði játað aðild sína að innflutningnum en hefur borið að hann hafi haldið að um væri að ræða stera. Brot það sem kærði er grunaður um að hafa framið getur varðað allt að 12 ára fangelsi, sbr. 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þegar litið er til eðlis hins ætlaða brots verður fallist á það að gæsluvarðhald sé nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna, samkvæmt 2. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. Verður því orðið við kröfu lögreglustjórans, eins og nánar greinir í úrskurðarorði, en ekki þykja efni til að marka gæsluvarðhaldinu skemmri tíma.
Hervör Þorvaldsdóttir héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.
Úrskurðarorð:
Kærði, X, kt. [...], skal sæta gæsluvarðhaldi, allt til þriðjudagsins 6. desember 2011, kl. 16:00.