Hæstiréttur íslands
Mál nr. 651/2014
Lykilorð
- Kærumál
- Brottvísun af heimili
- Nálgunarbann
|
|
Þriðjudaginn 7. október 2014. |
|
Nr. 651/2014.
|
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn X (Bjarni Hauksson hrl.) |
Kærumál. Brottvísun af heimili. Nálgunarbann.
Staðfest var ákvörðun L um að X skyldi sæta brottvísun af heimili og nálgunarbanni á grundvelli laga nr. 85/2011.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Helgi I. Jónsson og Benedikt Bogason og Guðrún Erlendsdóttir settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 3. október 2014, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 6. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 1. október 2014, þar sem varnaraðila var gert að sæta brottvísun af heimili og nálgunarbanni eins og nánar greinir í úrskurðarorði. Kæruheimild er í 3. mgr. 15. gr. laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi. Þá krefst hann kærumálskostnaðar.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Ákvörðun sóknaraðila 25. september 2014 um brottvísun af heimili og nálgunarbann var birt varnaraðila sama dag og miðast réttaráhrif hennar við það tímamark, sbr. 2. mgr. 9. gr. laga nr. 85/2011.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur á þann hátt sem í dómsorði greinir.
Þóknun skipaðs verjanda varnaraðila fyrir Hæstarétti, sem ákveðin verður að meðtöldum virðisaukaskatti eins og í dómsorði segir, greiðist úr ríkissjóði samkvæmt 3. mgr. 38. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, sbr. 14. gr. laga nr. 85/2011.
Dómsorð:
Staðfest er ákvörðun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 25. september 2014 um að varnaraðili skuli sæta brottvísun af heimili og nálgunarbanni í fjórar vikur, þannig að lagt er bann við því að hann komi á eða í námunda við heimili sitt og sambúðarkonu sinnar, A, að [...] í [...] á svæði, sem afmarkast við 50 m radíus umhverfis það. Jafnframt er lagt bann við því að varnaraðili veiti A eftirför, nálgist hana á almannafæri eða setji sig í samband við hana á annan hátt.
Ákvæði hins kærða úrskurðar um þóknun verjanda og réttargæslumanns brotaþola eru staðfest.
Þóknun skipaðs verjanda varnaraðila, Bjarna Haukssonar hæstaréttarlögmanns, fyrir Hæstarétti, 125.500 krónur, greiðist úr ríkissjóði.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 1. október 2014.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess fyrir Héraðsdómi Reykjaness að staðfest verði ákvörðun lögreglustjóra frá 25. september 2014 þess efnis að X, kt. [...], skuli sæta brottvísun af heimili og nálgunarbanni, skv. a og b lið 4 gr. og a og b lið 1. mgr. 5. gr. laga 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili, í 4 vikur þannig að lagt er bann við því að hann komi á eða í námunda við heimili hans og sambýliskonu hans, A, að [...] í [...] á svæði sem afmarkast við 50 metra radíus umhverfis heimilið. Jafnframt er lagt bann við því að X veiti A eftirför, nálgist hana á almannafæri eða setji sig í samband við hana með öðrum hætti.
Í greinargerð lögreglustjóra kemur meðal annars fram að samkvæmt upplýsingum lögreglu liggi X undir sterkum grun um að hafa miðvikudaginn 24 september 2014 ráðist á A á sameiginlegu heimili þeirra að [...] í [...] með því að sparka og slá hana ítrekað í höfuð og líkama. A hafi leitað í kjölfarið á slysadeild og reyndist með áverka sem samræmast lýsingum hennar af atvikum.
Í læknisvottorði kemur fram að a hafi hlotið opið sár á höfði, sem hafi þurft að sauma, yfirborðsáverka á öðrum hlutum höfuðs, heilahristing, yfirborðsáverka á framarmi, mar á öxl og upphandlegg og yfirborðsáverka á brjóstkassa.
Þá komi fram í bókunarkerfi lögreglu að nýlega hafi lögreglan þurft að hafa afskipti af X og A en 1. september sl. hafi lögregla verið kölluð að [...] vegna hávaða og hafi A tekið útgrátin á móti lögreglu en X þá verið nýfarinn. Þau hafi verið að rífast vegna peningamála. Þann 26. ágúst sl. hafi lögregla verið kölluð á heimili X og A vegna mikils hávaða innandyra. A hafi þá verið hágrátandi en engin merki um átök.
Í skýrslutöku af A þann 25. september hafi komið fram að hún óttist um öryggi sitt og vilji X út af heimilinu.
Í ljósi ofangreinds telji lögreglustjóri að skilyrði 4. og 5. gr. laga nr. 85/2011 séu uppfyllt en kærði liggi undir sterkum grun um að hafa beitt A líkamlegu ofbeldi og þá sé talin hætta á að hann muni gera slíkt aftur og með því raska friði A í skilningi ákvæðisins njóti hann fulls athafnafrelsis. Ekki sé talið sennilegt að friðhelgi hennar verði vernduð með öðrum og vægari hætti eins og sakir standa.
Af hálfu lögreglunnar hafa verið lögð fram afrit rannsóknargagna sem eru tilefni ákvörðunar lögreglustjóra 25. september 2014 um að kærði skuli sæta nálgunarbanni. Fallist er á með lögreglustjóra að framlögð gögn beri með sér að kærði sé undir rökstuddum grun um að hafa raskað friði brotaþola á þann hátt að heimilt sé, til að vernda friðhelgi hennar, að banna kærða að nálgast brotaþola. Gögn málsins benda eindregið til þess að hætta sé á að kærði haldi áfram að brjóta gegn brotaþola. Þá verður jafnframt tekið undir það mat lögreglustjóra að ekki þykir sennilegt að friðhelgi brotaþola verði verndað með öðrum hætti en að kærði sæti nálgunarbanni. Samkvæmt þessu og með hliðsjón af gögnum málsins er fallist á með lögreglustjóra að fullnægt sé skilyrðum a og b liðar 4. gr. laga númer 85/2011 um heimild til að beita kærða nálgunarbanni, enda er ekki sennilegt að friðhelgi brotaþola verði verndað á annan hátt, sbr. 6. gr. sömu laga. Ekki þykir efni til að marka nálgunarbanni skemmri tíma en hér er ákveðið.
Þóknun skipaðs verjanda kærða, Bjarna Haukssonar hrl., og réttargæslumanns brotaþola, Ingu Lillýar Brynjólfsdóttur, ákveðst 140.000 krónur til hvors um sig
Gunnar Aðalsteinsson héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.
ÚRSKURÐARORÐ
Kærði, X, kt. [...], skal sæta brottvísun af heimili og nálgunarbanni í 4 vikur þannig að lagt er bann við því að hann komi á eða í námunda við heimili hans og sambýliskonu hans, A, að [...] í [...], á svæði sem afmarkast við 50 metra radíus umhverfis heimilið. Jafnframt er lagt bann við því að X veiti A eftirför, nálgist hana á almannafæri eða setji sig í samband við hana með öðrum hætti, svo sem með tölvupóstsendingum eða sms-sendingum.
Þóknun skipaðs verjanda kærða, Bjarna Haukssonar hrl., og réttargæslumanns brotaþola, Ingu Lillýjar Brynjólfsdóttur, 140.000 krónur til hvors um sig greiðist úr ríkissjóði.