Hæstiréttur íslands
Mál nr. 706/2012
Lykilorð
- Niðurfelling máls
- Málskostnaður
- Gjafsókn
|
|
Fimmtudaginn 18. apríl 2013. |
|
Nr. 706/2012.
|
K (Þyrí H. Steingrímsdóttir hrl.) gegn M (Hulda Rós Rúriksdóttir hrl.) |
Niðurfelling máls. Málskostnaður. Gjafsókn.
Aðilar deildu um forsjá barns síns og var málið fellt niður að ósk K. Voru aðilar sammála um að leggja það í dóm um málskostnað. Talið var rétt að málskostnaður fyrir Hæstarétti félli niður og að gjafsóknarkostnaður K fyrir réttinum greiddist úr ríkissjóði.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Helgi I. Jónsson og Benedikt Bogason og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.
Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 28. nóvember 2012. Með bréfi 3. apríl 2013 féll áfrýjandi frá áfrýjun sinni. Aðilar óska eftir því að dómur gangi um málskostnað. Þau krefjast hvort um sig málskostnaðar fyrir Hæstarétti úr hendi hins, en áfrýjandi gerir þá kröfu fyrir sitt leyti án tillits til gjafsóknar sem henni hefur verið veitt fyrir réttinum.
Með vísan til c. liðar 1. mgr. 105. gr., sbr. 166. gr., laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála er málið fellt niður.
Rétt er að málskostnaður fyrir Hæstarétti falli niður.
Um gjafsóknarkostnað áfrýjanda fer eins og í dómsorði greinir.
Dómsorð:
Mál þetta er fellt niður.
Málskostnaður fyrir Hæstarétti fellur niður.
Allur gjafsóknarkostnaður áfrýjanda, K, fyrir Hæstarétti greiðist úr ríkissjóði, þar með talin málflutningsþóknun lögmanns hennar, 400.000 krónur.