Hæstiréttur íslands

Mál nr. 6/2000


Lykilorð

  • Ómerking héraðsdóms
  • Heimvísun
  • Dómur
  • Málsástæða


Miðvikudaginn 8

 

Miðvikudaginn 8. mars 2000.

Nr. 6/2000.

Gunnar Þór Jónsson

(Jón Steinar Gunnlaugsson hrl.)

gegn

Landspítala, háskólasjúkrahúsi

(Skarphéðinn Þórisson hrl.)

 

Ómerking héraðsdóms. Heimvísun. Dómur. Málsástæður.

Sjúkrahúsið L sagði G upp starfi yfirlæknis, sem hann gengdi jafnframt því að vera prófessor við læknadeild HÍ. Höfðaði G mál á hendur L og krafðist þess að uppsögnin yrði dæmd ógild. Héraðsdómari sýknaði L af kröfum G. Talið var að í röksemdum fyrir niðurstöðu héraðsdóms væri ekki tekin afstaða til allra þátta í málflutningi G og hefði ekki verið unnt að komast efnislega að niðurstöðu um sýknu L af kröfum G án þess að afstaða yrði tekin til umræddra atriða með fullnægjandi hætti. Var því ekki talið að komist yrði hjá því að ómerkja héraðsdóminn og vísa málinu heim í hérað til málflutnings og dómsálagningar að nýju.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Haraldur Henrysson, Markús Sigurbjörnsson og Pétur Kr. Hafstein.

Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 5. janúar 2000 og krefst hann þess að viðurkennt verði með dómi að uppsögn Sjúkrahúss Reykjavíkur 22. júlí 1999 á ráðningu áfrýjanda sé ógild og að stefndi verði dæmdur til að greiða málskostnað í héraði og fyrir Hæstarétti.

Stefndi, sem nú heitir Landspítali, háskólasjúkrahús, sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 127/2000 um sameiningu heilbrigðisstofnana, krefst staðfestingar héraðsdóms og málskostnaðar fyrir Hæstarétti.

Áfrýjandi höfðaði málið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur 25. október 1999. Hefur það sætt flýtimeðferð samkvæmt XIX. kafla laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.

Málið er risið af því að Sjúkrahús Reykjavíkur sagði áfrýjanda hinn 22. júlí 1999 upp starfi yfirlæknis bæklunarlækningadeildar, sem hann gegndi jafnframt því að vera prófessor í slysalækningum við læknadeild Háskóla Íslands. Í héraðsdómsstefnu byggði áfrýjandi dómkröfu sína einkum á þremur málsástæðum. Í fyrsta lagi hafi starf hans við sjúkrahúsið leitt af skipun hans í embætti prófessors samkvæmt ódagsettum samningi á milli Borgarspítalans í Reykjavík og Háskóla Íslands, sem hafi tekið gildi 1. janúar 1983. Verði því að líta svo á að Háskólinn sé í reynd vinnuveitandi sinn og uppsögnin þannig ógild. Í öðru lagi sé engum ráðningarsamningi til að dreifa á milli áfrýjanda og sjúkrahússins, gagnstætt því, sem stefndi haldi fram. Sé þrátt fyrir þetta talið að sjúkrahúsið hafi átt beina aðild að ráðningu áfrýjanda hljóti hann að njóta réttarstöðu samkvæmt VI. kafla laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Í þriðja lagi mótmæli áfrýjandi að bréf frá 1. desember 1997, sem stefndi vísi til, uppfylli kröfur um áminningu samkvæmt 21. gr. áðurnefndra laga. Jafnvel þótt bréfið teldist hafa að geyma fullgilda áminningu, geti sakirnar, sem þar greini, ekki réttlætt brottvikningu áfrýjanda úr starfi. Í greinargerð fyrir Hæstarétti reisir áfrýjandi kröfu sína á sömu málsástæðum.

Í röksemdum fyrir niðurstöðu hins áfrýjaða dóms er ekki tekin afstaða til þeirra þátta í málflutningi áfrýjanda, sem lúta að gildi áminningarinnar 1. desember 1997 eða því að ávirðingar, sem þar um ræði, nægi ekki til að víkja honum úr starfi. Ekki var unnt að komast efnislega að niðurstöðu um sýknu stefnda af kröfu áfrýjanda án þess að afstaða yrði tekin til þessara atriða með fullnægjandi hætti. Í því sambandi nægði ekki það eitt að vísa til þess að úrlausnarefni málsins væri einskorðað við gildi uppsagnar áfrýjanda. Verður því ekki komist hjá að ómerkja hinn áfrýjaða dóm og vísa málinu heim í hérað til málflutnings og dómsálagningar að nýju.

Rétt þykir að á þessu stigi beri hvor aðili sinn kostnað af málinu í héraði og fyrir Hæstarétti.

Dómsorð:

Hinn áfrýjaði dómur er ómerktur og er málinu vísað heim í hérað til munnlegs flutnings og dómsálagningar á ný.

Málskostnaður í héraði og fyrir Hæstarétti fellur niður.

 

 

Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur 28. desember 1999.

I

Mál þetta var höfðað með stefnu birtri 25. október 1999 og dómtekið 15. þ.m.

Stefnandi er  Gunnar Þór Jónsson, kt. 190642-3219, Laugavegi 39 B, Reykjavík.

Stefndi er Sjúkrahús Reykjavíkur, kt. 53119-2999, Fossvogi í Reykjavík.

Stefnandi krefst þess að viðurkennt verði með dómi að uppsögn stefnda 22. júlí 1999 á ráðningu sinni við spítalann sé ógild og að stefnda verði gert að greiða sér málskostnað.

Stefndi krefst sýknu af kröfum stefnanda og málskostnaðar úr hendi hans.

Málið sætir flýtimeðferð eftir XIX. kafla laga nr. 91/1991.

II

Frammi liggur „Samningur milli Háskóla Íslands og borgarspítalans í Reykjavík um kennslu læknanema og hlutverk spítalans sem kennslusjúkrahúss.“  Hann gilti upphaflega frá 1. janúar 1983 til 1. júlí 1984 en hefur síðan framlengst um eitt ár í senn eftir 9. grein hans þar sem honum hefur ekki verið sagt upp með sex mánaða fyrirvara.

Í samningnum er kveðið á um samvinnu um kennslu í læknisfræði, nýtingu nýjunga og framfara í læknisfræði, rannsóknarstarfsemi í læknisfræði og heilbrigðisþjónustu, áætlanagerð og framhaldsmenntun lækna.  Að meginefni hefur samningurinn að geyma reglur er varða stjórnunarleg tengsl, ráðningu starfsliðs, þ.e. kennara, vinnuaðstöðu kennara, vísindastörf, aðstöðu fyrir læknanema og skiptingu kostnaðar.

Um starfslið segir í 4. gr. samningsins:

„1.  Sameiginlegt starfslið er þrenns konar:

   a) Prófessor, dósent eða lektor í fullu starfi við læknadeild og jafnframt í hlutastarfi við sjúkrahúsið.  Sé starfandi prófessor við sjúkrahúsið skal hann jafnframt vera yfirlæknir á viðkomandi deild, samanber 2. tölulið þessarar greinar. . .

Háskólinn velur starfsmann skv. a – lið hér að framan, en leitað skal álits stjórnar sjúkrahússins áður en  Háskólinn gerir tillögu um ráðstöfun stöðunnar. . .

2.  Forstöðumaður kennslugreinar skv. skilgreiningu læknadeildar skal hafa yfirlæknisstöðu en stjórn sjúkrahússins ákveður hver hefur á hendi forstöðu viðkomandi deildar. . .“

Um læknisstarfið segir að það sé hlutastarf.

Þann 21. desember 1983 var stefnandi af forseta Íslands/menntamálaráðherra skipaður prófessor í slysalækningum við læknadeild Háskóla Íslands frá 1. janúar 1984 að telja.  Auglýsing menntamálaráðuneytisins frá 16. nóvember 1983 um að prófessorsembættið væri laust til umsóknar kvað jafnframt á um að prófessorinn mundi fá starfsaðstöðu við slysadeild Borgarspítalans.  Þá segir í auglýsingunni að laun séu samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.

Í bréfi framkvæmdastjóra stjórnar sjúkrastofnana Reykjavíkurborgar, dags. 18. janúar 1984, til stefnanda segir að á fundi stjórnarinnar 13. s.m. hafi verið lagt fram bréf deildarforseta læknadeildar Háskóla Íslands, dags. 11. s.m., ásamt afriti af skipunarbréfi stefnanda sem prófessors í slysalækningum við læknadeild Háskóla Íslands. Í bréfinu sé vísað til bréfaskipta læknadeildar og stjórnar sjúkrastofnana um að stefnandi verði jafnframt yfirlæknir slysadeildar.  Segir í bréfi framkvæmdastjórans að stjórnin  staðfesti samhljóða ráðningu hans í embætti yfirlæknis slysa- og sjúkravaktar Borgarspítalans. 

Þann 1. janúar 1996 voru Borgarspítalinn og St. Jósefsspítali, Landakoti, sameinaðir í eina stofnun, Sjúkrahús Reykjavíkur.  Stefnandi starfaði við sjúkrahúsið frá því í janúar 1984 til 30. nóvember 1999, sbr. það sem síðar verður greint.  Á árinu 1991 var sú breyting gerð á störfum hans að stjórnunarskyldum var létt af honum.  Samkvæmt samningi ríkisins og Reykjavíkurborgar tók ríkið frá og með 1. janúar 1999 við rekstri og stjórnun allra deilda Sjúkrahúss Reykjavíkur.  Samkvæmt 8. gr. samningsins tók ríkið frá sama tíma við öllum réttindum og skyldum borgarinnar gagnvart starfsmönnum Sjúkrahúss Reykjavíkur og fer frá þeim degi með samningsaðild vinnuveitanda.

Með bréfi, dags. 1. desember 1997, veitti Jóhannes M. Gunnarsson, lækningaforstjóri stefnda, stefnanda formlega áminningu vegna ætlaðra slælegra vinnubragða hans varðandi skil á umbeðnum vottorðum og greinargerðum.  Segir í lok þess að stefnandi verði leystur frá störfum við sjúkrahúsið ef vanræksla af þessu tagi endurtæki sig.  Afrit bréfsins voru send landlækni, Jóhannesi Pálmasyni, forstjóra stefnda, og Brynjólfi Mogensen, yfirlækni bæklunarlækningadeildar stefnda. 

Samkvæmt starfslýsingu lækningaforstjórans er forstjóri stefnda næsti yfirmaður hans og undir verksvið hans heyrir m.a. að ráða og leysa frá störfum forstöðulækna og yfirlækna sjúkrahússins.

  Af hálfu stefnda var stefnanda sent bréf, dags. 27. maí 1999, undirritað af Magnúsi Péturssyni, forstjóra SHR, Jóhannesi M. Gunnarssyni, lækningaforstjóra SHR, og Jóhannesi  Pálmasyni, framkvæmdastjóra SHR.  Þar er vísað til ætlaðrar vanrækslu stefnanda, sem hann hafi áður verið ítrekað áminntur um, og er honum tjáð að stefndi hafi í hyggju að segja upp ráðningarsamningi hans við spítalann.  Stefnanda var gefinn kostur á að koma að athugasemdum og andmælum vegna fyrirhugaðrar uppsagnar.  Upphaflegur frestur, sem var til 17. júní 1999, var lengdur að beiðni lögmanns stefnanda sem sendi stefnda bréf þ. 25. júní sl. og mótmælti fyrirætlunum hans sem ólögmætum.

Með bréfi, dags. 22. júlí 1999, sem var undirritað af hinum sömu og bréfið frá 27. maí s.á., var stefnanda tilkynnt að stefndi segði upp ráðningarsamningi spítalans við hann.  Uppsagnarfrestur var tiltekinn fjórir mánuðir frá 31. júlí 1999 að telja og síðasti starfsdagur stefnanda samkvæmt því 30. nóvember 1999.  Í uppsagnarbréfinu er vísað til aðvörunarbréfs frá 27. maí 1999 og til formlegrar áminningar sem stefndi hafi veitt stefnanda með bréfi 1. desember 1997.

Eftir þetta áttu sér stað bréfaskipti milli lögmanns stefnanda og fyrirsvarsmanna stefnda.  Lögmaðurinn skýrði sjónarmið sín um réttarstöðu stefnanda í starfinu við sjúkrahúsið og óskaði eftir skýringum frá stefnda á heimildum hans til uppsagnarinnar.  Með bréfi forstjóra stefnda til lögmannsins, dags. 26. ágúst 1999, fylgdi ljósrit af bréfi háskólarektors, dags. 15. júlí 1999, til stefnda.  Í því er vísað til bréfs þar sem lýst sé ákvörðun stjórnenda sjúkrahússins um að segja upp ráðningarsamningi sjúkrahússins og stefnanda og aðdragandi þeirrar ákvörðunar rakinn.  Síðan segir:  „Með vísan til samkomulags Borgarspítalans (nú Sjúkrahúss Reykjavíkur) og Háskóla Íslands um kennslu læknanema og hlutverk spítalans sem kennslusjúkrahúss frá árinu 1983 vil ég staðfesta að Háskóli Íslands gerir ekki athugasemd við ákvörðun stjórnenda sjúkrahússins um að slíta ráðningarsamningnum.“  Í bréfi heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins til stefnda frá 1. október 1999 er greint frá því að lögmaður stefnanda hafi leitað til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra og borið fram kvörtun þess efnis að stefndi hafi ekki farið að lögum við uppsögn hans.  Af því tilefni óskaði ráðuneytið eftir því að stefndi veitti ráðuneytinu upplýsingar um lagagrundvöll uppsagnarinnar.  Það var gert með bréfi 20. október 1999.

Samkvæmt gildandi kjarasamningi ríkissjóðs og Reykjavíkurborgar annars vegar og Læknafélags Íslands og Læknafélags Reykjavíkur hins vegar er gagnkvæmur uppsagnarfrestur fjórir mánuðir að því er tók til stefnanda.

III

Meginmálsástæða stefnanda er að starf hans við Sjúkrahús Reykjavíkur hafi byggst á fyrrgreindum samningi milli sjúkrahússins og Háskóla Íslands sem fari með aðild vinnuveitanda gagnvart sér.  Hafi stefndi eitthvað við samninginn að athuga verði hann að snúa sér til viðsemjanda síns með athugasemdir sinar. Uppsögn stefnda, sem beint sé til stefnanda, sé ógild og að engu hafandi.

Stefnandi kveðst ekki kannast við neinn sérstakan ráðningarsamning og hafi hann einfaldlega starfað á grundvelli þess samnings sem áður var getið.  Sé þrátt fyrir þetta talið að stefndi eigi beina aðild að ráðningu stefnanda í starf á sjúkrahúsinu hljóti hann a.m.k. að njóta í því réttarstöðu samkvæmt VI. kafla laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, sbr. 3. mgr. ákvæðis til bráðabirgða með þeim lögum. Er á því byggt af hálfu stefnanda að hann hafi ekki að þessu leyti verið látinn njóta réttar sem honum þá bæri.

Að því er varðar framgang ráðningarslita samkvæmt starfsmannalögum tekur stefnandi fram:

Af hálfu stefnda hafi verið vísað til þess að stefnandi hafi fengið áminningu með bréfi 1. desember 1997.  Því er mótmælt að hér hafi verið um að ræða áminningu sem uppfylli kröfur 21. gr. starfsmannalaga.  Í fyrsta lagi hafi það ekki verið "forstöðumaður stofnunar" sem sendi honum bréf þann dag heldur lækningaforstjóri.  Í öðru lagi hafi tilefni bréfsins verið ónógt til að þjóna þessu markmiði.  Segir stefnandi starfshætti sína við skil á vottorðum hafa verið að öllu leyti í samræmi við það sem tíðkist um slík efni og hafi hann gert grein fyrir því áður en hann fékk bréf þetta. Eftir að stefnanda hafi verið sent uppsagnarbréfið 22. júlí 1999 hafi samstarfsmenn hans við bæklunardeild sjúkrahússins, læknar og hjúkrunarfræðingar, sent frá sér yfirlýsingar, þar sem m.a. sé talið óskiljanlegt að slíkar ávirðingar geti leitt til brottvikningar úr starfi.  Jafnvel þótt gengið væri út frá því að bréfið 1. desember 1997 teldist hafa að geyma fullgilda áminningu samkvæmt starfsmannalögum geti það ekki heimilað stefnda endanlega brottvikningu stefnanda úr starfi.  Þótt talið yrði að stefnandi hefði brotið af sér á þessu sviði þannig að áminningu hafi varðað og stefndi teldi hann ekki hafa bætt ráð sitt eftir það gæti slíkt aldrei réttlætt brottvikningu. Við slíkar aðstæður ætti að veita starfsmanninum lausn um stundarsakir meðan mál væri rannsakað að hætti 27. gr. laganna.

IV

Af hálfu stefnda er því mótmælt að Háskóli Íslands fari með aðild vinnuveitanda vegna starfa stefnanda hjá sjúkrahúsinu.  Skipun stefnanda í stöðu prófessors hafi tekið til starfa hans við læknadeild.  Ráðning stefnanda hjá stefnda hafi byggst á sérstökum samningi Háskólans og Borgarspítalans.  Ekki hafi verið gerður skriflegur ráðningarsamningur við stefnanda þar sem slíkt hafi ekki tíðkast hjá Reykjavíkurborg á þeim tíma.  Um laun stefnanda gildi að Háskóli Íslands hafi greitt að fullu laun  hans vegna stöðu hans sem  prófessors en Sjúkrahús Reykjavíkur vegna starfa hans sem yfirlæknis.  Þegar litið sé einnig á faglegar starfsskyldur stefnanda og verksvið sé fráleitt að líta á starf hans hjá stefnda annars vegar og Háskólanum hins vegar sem eitt og hið sama.

Því er mótmælt að um ráðningarslit stefnanda hjá stefnda skuli fara samkvæmt ákvæðum VI. kafla laga nr. 70/1996, sem fjalli um lausn embættismanna, heldur gildi ákvæði IX. kafla laganna um uppsögn á ráðningarsamningi hans.   Á því er byggt að málsmeðferð stefnda hafi að öllu leyti uppfyllt ákvæði laga.Að lokum er á það bent af hálfu stefnda að kröfugerð stefnanda í málinu lúti að því að uppsögn verði dæmd ógild.  Samkvæmt grundvallarreglum vinnuréttar hafi vinnuveitandi rétt til að ráða starfsmenn og segja þeim upp störfum.  Honum sé því heimilt að hafna vinnuframlagi þeirra.  Á því er byggt að ákvörðun vinnuveitanda um uppsögn ráðningarsamnings verði aldrei ógilt.  Kröfugerð stefnanda miði að því að hann fái með dómi starf sitt aftur og sé hún í andstöðu við meginreglur vinnuréttar og skýr fordæmi.  Í þeim tilvikum sem starfsmönnum hafi tekist að sýna fram á að uppsagnir hafi verið ólögmætar hafi skaðabætur verið dæmdar. 

V

Úrlausnarefni dómsins einskorðast við gildi uppsagnar.  Fram hefur verið lagður fjöldi skjala, auk dómskýrslna, sem varða ekki gildi heldur lögmæti uppsagnarinnar.  Þau gögn verða ekki reifuð eða afstaða tekin til málsástæðna, sem að þessu lúta, en í stefnu er áskilnaður stefnanda um „rétt til skaðabóta úr hendi stefnda vegna þess tjóns sem hin ólögmæta uppsögn veldur honum.“

Tilvitnaður samningur milli Háskóla Íslands og Borgarspítalans í Reykjavík er ekki á sviði vinnuréttar.  Þar er þó kveðið á um val á prófessor í fullt starf við læknadeild og jafnframt í hlutastarf við sjúkrahúsið.  Störfin voru samkvæmt þessu tvö og launagreiðendur voru tveir; annars vegar ríkissjóður vegna Háskóla Íslands og hins vegar þá stefnandi laun frá Borgarspítalanum – síðar Sjúkrahúsi Reykjavíkur - sem var lengst af borgarstofnun en er ríkisstofnun frá síðustu áramótum.

Aðspurður við aðalmeðferð málsins 15. þ.m. kvaðst stefnandi hafa látið af störfum við Sjúkrahús Reykjavíkur þann 30. fyrri mánaðar en gegna enn embætti prófessors við læknadeild Háskóla Íslands.

Um lagaskilyrði fyrir starfslokum stefnanda fer eftir IX. kafla laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, sem gildir um aðra starfsmenn þess en embættismenn, en staða yfirlæknis verður ekki skilgreind sem embætti.

Allt frá ráðningu stefnanda að sjúkrahúsinu 18. janúar 1984 hafði stefndi aðild vinnuveitanda gagnvart honum og forstöðumenn stefnda, sem sögðu stefnanda upp störfum, voru bærir til þess.

Niðurstaða málsins er sú að sýkna beri stefnda af kröfum stefnanda.  Eftir þessum úrslitum verður stefnanda, samkvæmt 1. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991, gert að greiða stefnda málskostnað sem er ákveðinn 200.000 krónur.

Mál þetta dæmir Sigurður Hallur Stefánsson héraðsdómari.

Dómsorð:

Stefndi, Sjúkrahús Reykjavíkur, er sýknaður af kröfum stefnanda, Gunnars Þórs Jónssonar.

Stefnandi greiði stefnda 200.000 krónur í málskostnað.