Hæstiréttur íslands

Mál nr. 316/2000


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Föstudaginn 18

 

Föstudaginn 18. ágúst 2000.

Nr. 316/2000.

Lögreglustjórinn í Reykjavík

(Egill Stehpensen saksóknari)

gegn

X

(Pétur Örn Sverrisson hdl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. A.liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðs 103. gr. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Garðar Gíslason, Haraldur Henrysson og Hrafn Bragason.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 15. ágúst 2000, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 16. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 15. ágúst 2000, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 25. ágúst nk. kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur.

Í úrskurði héraðsdóms er því lýst að fram sé kominn rökstuddur grunur um að varnaraðili hafi átt þátt í innflutningi á fíkniefnum. Fallist er á með héraðsdómara að vegna rannsóknarhagsmuna séu fyrir hendi skilyrði gæsluvarðhalds samkvæmt a. lið 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991. Verður hinn kærði úrskurður því staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur þriðjudaginn 15. ágúst 2000.

 

          Ár 2000, þriðjudaginn 15. ágúst, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur,  sem háð er í Dómhúsinu við Lækjartorg af Eggerti Óskarssyni héraðsdómara, kveðinn upp úrskurður þessi.

          Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur krafist þess að X, verði á grundvelli a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991 gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 25. ágúst nk. kl. 16.00 vegna gruns um brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

          [...]

          Verið er að rannsaka brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 vegna innflutnings á fíkniefnum til landsins.  Grunur er um aðild kærða að þeim innflutningi.  Kærði hefur neitað öllum sakargiftum, en rannsókn málsins er á frumstigi.  Ætla verður að kærði geti torveldað rannsókn málsins ef hann gengur laus.  Með vísan til þess og rannsóknargagna málsins er fallist á að  skilyrðum um gæsluvarðhald kærða samkvæmt a-lið 1. mgr. 103. gr. laga 19/1991 sé fullnægt.  Krafa lögreglustjórans í Reykjavík um að kærði sæti gæsluvarðhaldi verður því tekin til greina eins og hún er framsett og nánar greinir í úrskurðarorði.

         

ÚRSKURÐARORÐ :

          Kærði, X, sæti gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 25. ágúst nk. kl. 16:00.