Hæstiréttur íslands
Mál nr. 59/2008
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Mánudaginn 4. febrúar 2008. |
|
Nr. 59/2008. |
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum(Alda Hrönn Jóhannsdóttir, fulltrúi) gegn X (Karl Georg Sigurbjörnsson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
Úrskurður héraðsdóms um að X sætti gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir, Ólafur Börkur Þorvaldsson, Hjördís Hákonardóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 31. janúar 2008, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 1. febrúar sama ár. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 31. janúar 2008, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 15. febrúar 2008 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi varnaraðila verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Fallist er á með sóknaraðila að varnaraðili sé undir rökstuddum grun um að hafa framið afbrot sem fangelsisrefsing er lögð við og að rannsóknarhagsmunir standi til þess að hann sæti gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991. Með þessum athugasemdum en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 31. janúar 2008.
Með beiðni lögreglustjórans á Suðurnesjum, dagsettri í dag, er þess krafist að X, kt. [...], [heimilisfang], verði með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 15. febrúar 2008 kl. 16.00, á grundvelli a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.
Í greinargerð lögreglustjórans segir að lögreglustjórinn á Suðurnesjum og lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi um nokkurt skeið rannsakað innflutning á um 4,6 kg af amfetamíni og 600 g af kókaíni, sem fannst við eftirlit lögreglu og tollgæslu í bifreið á vegum hraðflutningafyrirtækisins Z við húsakynni Y á Keflavíkurflugvelli þann 15. nóvember sl. en hin ætluðu fíkniefni komu í kassa frá Þýskalandi. Þá hafi lögreglu borist upplýsingar um að starfsmaður Z flutningsþjónustunnar á Keflavíkurflugvelli sjái m.a. annars um að halda ákveðinni leið fyrir innflutning fíkniefna opinni, sem grunur leikur á að sé A kt. [..], sem mun vera yfirmaður á gólfi hjá Z og hafi því óheftan aðgang að flugsvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Rannsókn lögreglu hafi leitt líkum að því að þessi innflutningsleið hafi verið notuð áður og til standi að nota hana aftur. Lögreglan fékk upplýsingar um að nota ætti þessa leið til að flytja til landsins þrjár sendingar sem hver um sig ætti að innihalda 3 kíló af kókaíni. Þann 14. janúar bárust lögreglu svo upplýsingar að B, kt. [...], hefði móttekið vörusendingu hjá Z við Þ í Hafnarfirði rétt fyrir hádegi sama dag. Er lögregla kannaði með vörusendingar sem afhentar voru á mánudeginum hafi engin slík verið skráð á B.
Í þágu rannsóknar málsins hafi lögregla þann 23. og 24. janúar sl. handtekið fimm aðila m.a. þá B, [kt.], C, kt. [...], og ofangreindan A sem allir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald, B og C til 1. febrúar nk. og A til 8. febrúar nk. Þann 30. janúar sl. var kærði handtekinn vegna sterks gruns lögreglu um vera viðriðinn innflutning fíkniefnanna hingað til lands og að vera sé aðili sem hefði séð um að skipuleggja innflutninginn með því að nota leið með flutningsþjónustu Z. Fundust við húsleit hjá kærða m.a. um 100 g af ætluðu kókaíni og amfetamíni.
Í máli verjanda kærða við fyrirtöku kröfunnar kemur fram að hann mótmælir alfarið kröfu um gæsluvarðhald. Hann krefst þess að kröfunni verði hafnað, til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.
Rannsókn máls þessa er í fullum gangi og er enn langt í land að henni ljúki. Meðal þess sem rannsaka þarf er umfang þess innflutnings sem farið hefur í gegnum hraðflutningaþjónustuna Z á síðustu mánuðum og árum og hverjir séu eigendur þeirra sendinga og þeirrar sendingar sem lögregla og tollgæsla haldlagði þann 15. nóvember sl. Þá á eftir að rannsaka hver/hverjir fjármagni innflutning fíkniefnanna, samskipti og samskiptaform þeirra sem stóðu að innflutningi efnanna og hvort og þá hverjir fleiri kunni að vera viðriðnir innflutning fíkniefnanna að öðru leyti. Það magn fíkniefna, sem haldlagt var þann 15. nóvember sl. þykir benda til þess að efnin hafi verið ætluð til sölu og dreifingar og ætluð háttsemi kærða varða við ákvæði laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sem varðað getur fangelsi allt að 12 árum. Lögregla telur að ætla megi að kærði kunni að torvelda rannsókn málsins og hafa áhrif á samseka og vitni gangi hann laus.
Með vísan til alls framangreinds, rannsóknarhagsmuna, a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19, 1991 um meðferð opinberra mála, 173. gr.a almennra hegningarlaga nr. 19, 1940 og laga nr. 65, 1974 um ávana og fíkniefni og eftir skoðun á fyrirliggjandi rannsóknargögnum málsins er það mat dómara að lög standi til þess að verða við kröfu lögreglustjórans á Suðurnesjum eins og hún er fram sett og verður kærða gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 15. febrúar 2008 kl. 16.00.
Anna M. Karlsdóttir settur héraðsdómari kveður upp úrskurðinn.
ÚRSKURÐARORÐ
Kærði, X, sæti gæsluvarðhaldi allt til kl. 16.00 föstudaginn 15. febrúar 2008.