Hæstiréttur íslands
Mál nr. 482/2015
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Miðvikudaginn 22. júlí 2015. |
|
Nr. 482/2015.
|
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Hrafnhildur María Gunnarsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Jóhann Karl Hermannsson hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og einangrun meðan á því stæði.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Viðar Már Matthíasson og Ólafur Börkur Þorvaldsson og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 19. júlí 2015 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 21. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 17. júlí 2015 þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 24. júlí 2015 klukkan 16 og einangrun meðan á því stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður staðfest niðurstaða hans um gæsluvarðhald varnaraðila. Með vísan til 2. mgr. 98. gr. laga nr. 88/2008 er fallist á með sóknaraðila að uppfyllt séu skilyrði til að varnaraðili sæti einangrun samkvæmt b. lið 1. mgr. 99. gr. laganna meðan á gæsluvarðhaldi stendur. Verður hinn kærði úrskurður því staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness föstudaginn 17. júlí 2015.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði að X, kt. [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 24. júlí 2015 kl. 16. Þá er þess krafist að kærða verði gert að sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.
Í greinargerð lögreglustjóra segir að hann hafi nú til rannsóknar mál er varðar framleiðslu, innflutning, sölu og dreifingu á sterkum fíkniefnum.
Þann 30. júní sl. hafi lögreglan farið í húsleit að [...], heimili A, en þá hafi lögreglan haft í höndum upplýsingar um að A geymdi fíkniefni í sameign hússins. Við þá leit hafi fundist mikið magn af e-töflum og peningar. Í kjölfarið hafi lögreglan farið í húsleit í íbúð A og við þá leit fundist upplýsingar um sendingu á sófa frá Rotterdam í Hollandi. Samskiptin í tölvunni hafi verið á nafni B, en skjöl varðandi þessa sendingu hafi fundist í tölvu A á heimili hans. Lögreglan hafi farið að vöruhóteli Eimskips og kannað með umræddan sófa, en grunur hafi leikið á að í honum væru falin fíkniefni. Við skoðun á sófanum hafi komið í ljós að búið hafi verið að negla spónaplötu við bak hægra sætis sófans. Sófinn hafi verið gegnumlýstur og þá komið í ljós pakkningar sem innihéldu mikið magn af sterkum fíkniefnum.
A, B og aðili að nafni C hafi verið handteknir í kjölfarið og gert að sæta gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknar málsins, en þeir hafi verið grunaðir um að hafa staðið að ofangreindum innflutningi fíkniefna.
Við skýrslutöku hjá lögreglu hafi B og C gert grein fyrir aðild sinni að málinu. C kvaðst skulda A pening og að A hafi boðið honum að greiða skuldina með því að móttaka fíkniefnin. C kvaðst hafa tekið því og þeir hafi fengið B til að afhenda vegabréf sitt og þannig hafi þeir getað skráð hann sem móttakanda sófans. Framburði C og B beri saman um aðild þeirra að innflutningnum og einnig renni skjöl og gögn í vörslum A stoð undir frásögn þeirra.
A neiti sök. Hann kveðst ekki kannast við B né C. A kannist ekki við þau skjöl sem hafi fundist í tölvu á heimili hans sem hafi að geyma upplýsingar um pöntun á sófa frá Rotterdam. A neiti því einnig að hafa átt þær e-töflur sem fundust í sameign á heimili hans. Með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness þann 15. júlí sl. hafi A verið gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 22. júlí n.k. í þágu rannsóknar málsins. Aðrir aðilar sem hafi verið látnir sæta gæsluvarðhaldi hafi verið látnir lausir. Nánar varðandi málsatvik og framburði kærðu sé vísað í meðfylgjandi gögn.
Við leit í tölvu A hafi fundist samskipti hans í gegnum Skype við kærða X sem bendi til þess að kærði eigi aðild að málinu. Samskipti milli aðila snúist m.a. um sendingu sófa til landsins og tollafgreiðslu auk þess sem kærði hafi sent A vefslóð á heimsíðu þess aðila sem sófinn var keyptur af. Þá liggi fyrir að kærði hafi verið staddur í Hollandi nokkrum dögum áður en sófinn var sendur til Íslands. Kærði hafi verið handtekinn í gær um hádegi vegna rannsóknar málsins. Við yfirheyrslur hafi hann neitað sök. Að mati lögreglu séu skýringar hans á nefndum samskiptum við A ótrúverðugar. Þá hafi kærði viðurkennt að hafa, er hann var staddur í Hollandi, verið á ferð með nafngreindum erlendum aðila sem gögn málsins bendi sterklega til að eigi aðild að meintum brotum. Sjá nánar meðfylgjandi upplýsingaskýrslu lögreglu, dags. 17. júlí 2015, og önnur rannsóknargögn.
Með vísan til framangreinds sé kærði undir rökstuddum grun um aðild að umfangsmiklum inniflutningi á MDMA hingað til lands sem og sölu og dreifingu þessara efna hér á landi. Geti ætluð brot kærða varðað allt að 12 ára fangelsi, sbr. 173. gr. a almennra hegningarlaga.
Rannsókn á þætti kærða sé nýlega hafin. Lögreglan hafi upplýsingar um að enn fleiri aðilar hafi staðið að innflutningi fíkniefnanna og sé nauðsynlegt að hafa uppi á þeim einstaklingum sem og öðrum sem kunni að tengjast málinu. Eftir því sem lögregla best veit hafi sá aðili sem kærði hefur viðurkennt að hafa verið með í Hollandi, og talinn er meðal grunaðra í brotinu, ekki vitneskju um að lögregla viti um tengsl hans við málið eða þau gögn sem lögregla hefur um hans þátt. Gögnin hafi hins vegar að hluta verið borin undir kærða og A sem þegar sæti gæsluvarðhaldi.
Lögreglan hafi þegar óskað eftir aðstoð hollenskra yfirvalda við rannsókn málsins. Þá sé lögreglan að vinna í því að fara yfir þau gögn sem lagt hafi verið hald á í tengslum við rannsókn málsins. Lögreglan telur brýna nauðsyn á því að kærði sæti gæsluvarðhaldi, en það sé ljóst að ef kærði gengur laus þá geti hann sett sig í samband við meinta samverkamenn sem gangi lausir eða þeir geti sett sig í samband við hann.
Þá liggi það fyrir í málinu að áður en kærði var handtekinn í gærdag hafi hann farið á fund verjanda A. Kærði geti einnig komið undan gögnum með sönnunargildi sem lögreglan hefur ekki lagt hald á. Þyki þannig brýnt að vernda rannsóknarhagmuni á þessu stigi málsins.
Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, og til að sæta einangrun samkvæmt b-lið 1. mgr. 99. gr. sömu laga, er þess krafist að krafan nái fram að ganga eins og hún er sett fram.
Samkvæmt rannsóknargögnum málsins er kærði undir rökstuddum grun um að aðild að broti sem getur varðað allt að tólf ára fangelsisrefsingu. Haldi kærði óskertu frelsi sínu gæti hann torveldað rannsókn málsins, s.s. með því að koma sönnunargögnum undan eða hafa samband við samseka. Með vísan til a-liðar 1. mgr. 95. gr. og b-liðar 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála, er því fallist á kröfur lögreglustjóra eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði.
Úrskurð þennan kveður upp Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari.
Úrskurðarorð:
Kærði, X, skal sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 24. júlí 2015 kl. 16. Þá skal kærði sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.