Hæstiréttur íslands

Mál nr. 277/2016

Þrotabú Skollaness ehf. (Sigurður Sigurjónsson hrl.)
gegn
Lýsingu hf. (Árni Ármann Árnason hrl.)

Lykilorð

  • Niðurfelling máls
  • Málskostnaður

Reifun

Eftir kröfu þrotabús S ehf. var mál þess á hendur L hf. fellt niður fyrir Hæstarétti. Var þrotabú S ehf. dæmt til greiðslu málskostnaðar fyrir réttinum að kröfu L hf.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Helgi I. Jónsson og Benedikt Bogason og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.

Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 13. apríl 2016. Með bréfi til réttarins 1. febrúar 2017 tilkynnti áfrýjandi að hann félli frá áfrýjun málsins. Af hálfu stefnda er gerð krafa um málskostnað fyrir Hæstarétti.

Með vísan til c. liðar 1. mgr. 105. gr., sbr. 166. gr., laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála verður málið fellt niður fyrir Hæstarétti.

Samkvæmt 2. mgr. 130. gr., sbr. 166. gr., laga nr. 91/1991 verður áfrýjanda gert að greiða málskostnað fyrir Hæstarétti eins og í dómsorði greinir. 

Dómsorð:

Mál þetta er fellt niður.

Áfrýjandi, þrotabú Skollaness ehf., greiði stefnda, Lýsingu hf., 500.000 krónur í málskostnað fyrir Hæstarétti.