Hæstiréttur íslands
Mál nr. 344/2007
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
- Gæsluvarðhaldsúrskurður felldur úr gildi
|
|
Mánudaginn 2. júlí 2007. |
|
Nr. 344/2007. |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu(Stefán Eiríksson lögreglustjóri) gegn X (Hilmar Ingimundarson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991. Gæsluvarðhaldsúrskurður felldur úr gildi.
Ekki þóttu skilyrði til þess að X sætti áfram gæsluvarðhaldi meðan mál hans var enn ódæmt.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Garðar Gíslason, Jón Steinar Gunnlaugsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 27. júní 2007, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 28. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 27. júní 2007, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi uns dómur gengi í máli hans, þó ekki lengur en til miðvikudagsins 11. júlí 2007 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Samkvæmt 2. mgr. 133. gr. laga nr. 19/1991 skal dómur kveðinn upp í opinberu máli svo fljótt sem unnt er og að jafnaði ekki síðar en þremur vikum eftir dómtöku. Mál sóknaraðila á hendur varnaraðila var dómtekið í héraði 23. maí 2007 og eru því liðnar tæpar sex vikur án þess að dómur hafi verið kveðinn upp í málinu. Sérstaklega rík skylda er til að hraða málsmeðferð þegar ákærði sætir gæsluvarðhaldi. Með hliðsjón af framangreindu og eins og atvikum er háttað verður varnaraðila ekki gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi meðan mál hans er enn ódæmt. Verður hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er felldur úr gildi.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 27. júní 2007.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur í dag krafist þess fyrir Héraðsdómi Reykjaness að X [kennitala], [heimilisfang] verði með úrskurði gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í máli hans, þó eigi lengur en til 11. júlí nk. kl. 16:00.
Krafan er reist á ákvæðum c-liðar 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991. Fyrir dóminum mótmælti ákærði kröfu lögreglustjórans um áframhaldandi gæsluvarðhald.
Í kröfu lögreglustjórans kemur fram að ákærði hafi sætt gæsluvarðhaldi frá 12. janúar sl. á grundvelli c. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991, nú síðast með dómi Hæstaréttar Íslands nr. 322/2007, til dagsins í dag kl. 16:00.
Með ákæru lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 31. janúar 2007, hafi verið höfðað opinbert mál á hendur ákærða, auk fleiri aðila, þar sem honum sé gefið að sök brot gegn 1. mgr. 259. gr., 244. gr., 244. gr. sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga, auk fíkniefnalagabrots. Með tveimur ákærum lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, dags. 22. febrúar og 22. mars sl., séu ákærða gefin að sök fjölmörg auðgunar- og fjármunabrot, auk fíkniefna- og umferðarlagabrota. Þá hafi ríkissaksóknari gefið út ákæru á hendur ákærða 29. mars sl. fyrir brot gegn valdstjórninni. Aðalmeðferð í málum þessum hafi hafist 27. apríl sl. og framhald aðalmeðferðar farið fram 23. maí sl. og hafi málin þá verið dómtekin. Málin séu rekin undir málsnúmerinu S-64/2007.
Með tveimur ákærum ríkissaksóknara, sem gefnar hafi verið út 17. apríl sl., hafi verið höfðað mál á hendur meðákærðu ákærða, Y og Z, fyrir brot gegn 252. gr. almennra hegningarlaga. Mál þessi hafi verið þingfest 11. maí sl. og á grundvelli meginreglna 23. gr. laga um meðferð opinberra mála og 77. gr. almennra hegningarlaga hafi verið ákveðið að sameina þessi ránsmál ofangreindu máli nr. S-64/2007. Framhald aðalmeðferðar hafi farið fram 23. maí sl. og hafi málið þá verið dómtekið. Beðið sé nú dómsuppkvaðningar en málið sé nokkuð umfangsmikið. Alls hafi þrettán einstaklingar verið ákærðir með átta ákæruskjölum, sem telji samtals 76 ákæruliði.
Við rannsókn mála ákærða hafi komið í ljós að ákærði sé í mikilli óreglu og án atvinnu. Brotaferill hans hafi verið samfelldur, en hann hafi hlotið 9 mánaða fangelsisdóm fyrir rán 6. júní 2006 og hafi hann lokið afplánun dómsins 29. nóvember sl. Þann 23. febrúar hafi honum með dómi Héraðsdóms Reykjaness verið gert að sæta fangelsi í 15 mánuði fyrir fjölda hegningarlaga- og umferðarlagabrota. Sá dómur sé ekki fullnustuhæfur, þar sem ákærði hafi áfrýjað honum til Hæstaréttar Íslands.
Með vísan til brotaferils ákærða sé það mat lögreglustjóra að hann muni halda áfram afbrotum verði hann látinn laus. Fyrir liggi mat Hæstaréttar um nauðsyn þess að ákærði sæti áfram gæsluvarðhaldi og hafi ekkert fram komið sem geti breytt því mati.
Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og c.-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.
Með dómi Hæstaréttar í máli nr. 322/2007 sem upp var kveðinn 15. maí sl. var staðfestur úrksurður Héraðsdóms Reykjaness um að skilyrði væru til að ákærði sætti áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli c. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 þar til dómur gengi í máli hans, þó ekki lengur en til dagsins í dag. Að mati dómsins er ekkert það fram komið að leiði til breytts mats á því að skilyrði nefndrar lagagreinar teljist uppfyllt. Ákærumál á hendur ákærða var dómtekið 23. maí sl. og er að vænta dóms í því á næstu dögum en málið er umfangsmikið. Verður því fallist á kröfu lögreglustjórans um áframhaldandi gæsluvarðhald og þykja ekki efni til að marka því skemmri tíma en lögreglustjóri krefst.
Gunnar Aðalsteinsson héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.
Úrskurðarorð:
Ákærði, X sæti áfram gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í máli hans, þó eigi lengur en til miðvikudagsins 11. júlí 2007 kl. 16.