Hæstiréttur íslands
Mál nr. 628/2011
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Föstudaginn 25. nóvember 2011. |
|
Nr. 628/2011. |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H.B. Snorrason saksóknari) gegn X (Stefán Karl Kristjánsson hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi áfram sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli c. liðar. 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma Þorgeir Örlygsson hæstaréttardómari og Benedikt Bogason og Helgi I. Jónsson settir hæstaréttardómarar.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 24. nóvember 2011 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 24. nóvember 2011, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 22. desember 2011 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 24. nóvember 2011.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, kt. [...], verði gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi, allt til fimmtudagsins 22. desember 2011 kl. 16:00.
Í greinargerð lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að kærði hafi verið handtekinn aðfaranótt 27. október sl. í kjölfar þess að lögregla hafði af honum afskipti þar sem hann hafi verið að aka bifreiðinni [...] með skráningarnúmerunum [...] en bifreiðin, sem og skráningarnúmerin, hafi áður verið tilkynnt stolin. Kærði hafi verið úrskurðaður í gæsluvarðhald allt til fimmtudagsins 24. nóvember 2011 kl. 16:00 með úrskurði héraðsdóms Reykjavíkur nr. R-493/2011.
Kærði hafi margsinnis komið við sögu lögreglu og sé nú grunaður um þjófnaði, gripdeildir, fjársvik, nytjastuld, skjalafals, aðild að ránum og umferðarlagabrot allt frá því í um miðjan september, fyrir utan eitt brot frá því í maí sl. Kærði hafi hlotið fjöldamarga fangelsisdóma fyrir samskonar brot. Þyki að mati lögreglu ljóst að kærði hafi einbeittan brotavilja og virðist ekkert lát vera á brotastarfsemi hans.
Ákæra hafi verið gefin út vegna meintra brota kærða með ákæruskjali lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu dagsettu 22. nóvember sl. Málið verði þingfest þann 1. desember nk. Þá hafi fjögur mál verið send til frekari afgreiðslu hjá ríkissaksóknara og megi vænta þess að ákæra verði gefin út og sameinuð máli lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir dómi.
Með ákæruskjali dagsettu 22. nóvember sl. hafi lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu höfðað mál á hendur kærða vegna eftirfarandi brota:
Hinn 6. maí sl. hafi verið tilkynnt um gripdeild á handtösku úr bifreið á gatnamótum [...] og [...] í [...]. Kærði hafi viðurkennt við skýrslutöku að hafa opnað farþegahurð bifreiðarinnar og tekið töskuna sem bílstjórinn hafði lagt frá sér í farþegasætið við hliðina á sér.
Kærði hafi viðurkennt við skýrslutöku hjá lögreglu að hafa hinn 11. september sl. dælt eldsneyti að fjárhæð kr. 11.041 á bifreið með skráningarmerkinu [...] og ekið henni á brott án þess að greiða fyrir eldsneytið.
Kærði hafi viðurkennt við skýrslutöku hjá lögreglu að hafa hinn 16. september sl. dælt eldsneyti að fjárhæð kr. 8.549 á bifreið með skráningarmerkinu [...] og ekið henni á brott án þess að greiða fyrir eldsneytið.
Kærði hafi viðurkennt við skýrslutöku hjá lögreglu að hafa hinn 24. september sl. dælt eldsneyti að fjárhæð kr. 8.075 á bifreið með skráningarmerkinu [...] og ekið henni á brott án þess að greiða fyrir eldsneytið.
Kærði hafi verið kærður fyrir þjófnað með því að hafa hinn 12. október sl. brotist inn í íbúð að [...] í [...] og stolið þaðan tveimur 42” flatskjám, tveimur bolum og derhúfu. Kærði hafi neitað sök en samkvæmt vitnum hafi kærði verið á vettvangi umrætt sinn og hafi sést til hans bera út flatskjá úr húsinu.
Kærði hafi viðurkennt við skýrslutöku hjá lögreglu að hafa hinn 13. október sl. stolið súrmjólk í verslun 11-11, Laugavegi 116, Reykjavík.
Kærði hafi viðurkennt við skýrslutöku hjá lögreglu að hafa aðfaranótt 27. október sl. ekið bifreiðinni [...] með röngum skráningarmerkjum sem kærði hafi áður stolið, en kærði hafi vitað að bifreiðin hafi verið stolin og jafnframt að hafa ekið bifreiðinni undir áhrifum ávana og fíkniefna.
Kærði hafi viðurkennt í skýrslutöku hjá lögreglu að hafa mánudaginn 3. október sl. ekið bifreiðinni[...] undir áhrifum ávana- og fíkniefna.
Kærði hafi viðurkennt við skýrslutöku hjá lögreglu að hafa hinn 8. október sl. blekkt starfsfólk í staðgreiðsluviðskipum í verslun Intersport, með því hafa framvísað og greitt með greiðslukorti í eigu annars aðila og þannig svikið út vörur að fjárhæð kr. 89.920.
Þá hafi eftirfarandi mál verið send til ríkissaksóknara til frekari afgreiðslu:
007-2011-60662
Hinn 6. október sl. hafi verið tilkynnt um rán við [...] í [...]. Er lögregla hafi komið á vettvang sat þar gömul kona á bekk og hafi vegfarendur verið að hlúa að henni. Kvaðst hún hafa verið á göngu er tveir einstaklingar hafi skyndilega komið aftan að henni, hrint henni og hrifsað veskið hennar af henni. Kærði hafi viðurkennt við skýrslutöku hjá lögreglu að hafa átt þátt í ráninu ásamt annarri stúlku.
007-2011-60685
Hinn 6. október sl. hafi verið tilkynnt um rán í undirgöngum við [...] við Fífuhvammsveg í Kópavogi. Hafi kona leitað aðstoðar á “Stöðinni” við [...] í Kópavogi. Er lögregla hafi komið þangað hafi konan verið í miklu sjokki og kvaðst finna til eymsla í sköflungi eftir að árásaraðili hafði sparkað í hana. Kvað hún tvo aðila, mann og konu, hafa verið fyrir aftan sig þar sem hún var að ganga í undirgöngunum og þar hafi konan ráðist á sig og þær slegist í stutta stund en konan náð að hrifsa af henni veskið og hlaupa burt. Kvað hún manninn ekki hafa ráðist á sig heldur staðið álengdar og fylgst með.
Kærði hafi viðurkennt í skýrslutöku hjá lögreglu að hafa verið þarna með annarri stúlku og að þau hafi ákveðið í sameiningu að ná veskinu af konunni en það hafi verið skyndiákvörðun.
007-2011-61916
Hinn 14. október sl. hafi verið óskað eftir aðstoð lögreglu að Sundhöll Reykjavíkur. Þar hafi kona verið sem kvaðst hafa verið að koma úr sundi og verið að ganga heim til sín er par hefði komið að henni og hrifsað til sín töskuna hennar. Hún kvaðst hafa haldið fast í töskuna og fallið fram fyrir sig er töskunni var kippt af henni.
Við skýrslutöku hjá lögreglu kvaðst kærði ekkert hafa munað þar sem hann hafi verið undir miklum áhrifum fíkniefna.
007-2011-63096
Hinn 21. október sl. hafi verið óskað eftir aðstoð lögreglu við [...] í Reykjavík vegna ránstilraunar. Þar var kona sem kvaðst hafa verið á gangi ásamt barnabarni sínu á gangstétt skammt sunnan við Íslandsbanka í Kirkjusandi er stúlka hafi komið upp að þeim og reynt að hrifsa af henni veskið. Kvaðst hún hafa haldið fast í veskið og stúlkan togað og við það hafi hún fallið í jörðina og lent á vinstri öxl. Stúlkan hafi svo hlaupið upp í bíl þar rétt hjá en kærði hafi viðurkennt að hafa verið ökumaður bifreiðarinnar greint sinn og að hafa gert sér grein fyrir því hver ætlun félaga hans hefði verið.
Kærði eigi langan sakaferil að baki og hafi margsinnis hlotið fangelsisdóma fyrir hegningarlagabrot, s.s. þjófnaði, gripdeildir, rán og líkamsárás.
Með vísan til framangreinds og ferils kærða telji lögregla yfirgnæfandi líkur á því að kærði muni halda brotastarfsemi áfram fari hann frjáls ferða sinna og því nauðsynlegt að kærði sæti gæsluvarðhaldi á meðan mál hans sæta dómsmeðferð.
Sakarefni málanna séu talin varða við 244., 245., 248., 252. og 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, auk umferðarlaga nr. 50/1987, en brot gegn ákvæðunum geti varðað fangelsi allt að 10 árum ef sök sannast. Um heimild til gæsluvarðhalds sé vísað til c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.
Kærði hefur setið í gæsluvarðhaldi á grundvelli c-liðar 95. gr. laga nr. 88/2008, frá 27. október sl. Gögn málsins bera með sér að kærði á að baki nokkuð langan sakarferil og hefur margsinnis hlotið fangelsisdóma fyrir hegningarlagabrot, svo sem þjófnaði, gripdeildir, rán og líkamsárás. Í greinargerð lögreglustjóra, er rakin brotastarfsemi kærða frá 6. maí sl. til 27. október. Þau brot eru talin varða við 244., 245, 248, 252. og 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Við brotum þessum liggur fangelsisrefsing sannist sök. Ákæra hefur nú verið gefin út á hendur kærða vegna margra þessara brota, og verður ákæran þingfest 1. desember nk. Þá liggur fyrir að fleiri mál á hendur kærða hafa verið send ríkissaksóknara til frekari afgreiðslu. Með vísan til alls framangreinds og gagna málsins er fallist á að líkur séu til þess að kærði haldi áfram brotastarfsemi meðan málum hans er ekki enn lokið, fari hann frjáls ferða sinna. Með vísan til c liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 er fallist á kröfu lögreglustjóra eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði, en ekki þykir ásatæða til að marka varðhaldinu skemmri tíma.
Hervör Þorvaldsdóttir héraðsdómari kveður upp þennan úrskurð.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð :
Kærða, X, kt. [...], er gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi, allt til fimmtudagsins 22. desember 2011 kl. 16:00.