Hæstiréttur íslands
Mál nr. 428/2000
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Fimmtudaginn 30. nóvember 2000. |
|
Nr. 428/2000. |
Lögreglustjórinn í Reykjavík (Sigurður Gísli Gíslason fulltrúi) gegn X (Róbert Árni Hreiðarsson hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Árni Kolbeinsson og Gunnlaugur Claessen.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 24. nóvember 2000, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 27. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 24. nóvember 2000, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 1. desember nk. kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.
Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 24. nóvember 2000.
Lögreglan hefur krafist þess að X, verði gert að sæta gæsluvarðhaldi til föstudagsins 1. desember 2000 klukkan 16.00 á grundvelli a- liðar 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991.
Kærði kveðst mótmæla kröfunni.
[ . . . ]
Með hliðsjón af rannsóknargögnum sem lögð hafa verið fyrir dóminn, þykir kominn fram rökstuddur grunur um aðild kærða að fíkniefnamisferli því sem til rannsóknar er hjá lögreglu, en rannsóknin er enn á frumstigi. Í ljósi rannsóknarhagsmuna og með hliðsjón af a- lið 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19,1991 um meðferð opinberra mála er fallist á kröfu lögreglustjórans í Reykjavík eins og hún er fram sett og greinir í úrskurðarorði.
Sigríður Ólafsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
ÚRSKURÐARORÐ:
Kærði, X, sæti gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 1. desember nk. kl. 16.00.