Hæstiréttur íslands

Mál nr. 325/2009


Lykilorð

  • Kærumál
  • Farbann
  • Sératkvæði


Þriðjudaginn 16

 

Þriðjudaginn 16. júní 2009.

Nr. 325/2009.

Ákæruvaldið

(Sigríður Elsa Kjartansdóttir saksóknari)

gegn

X

(Erlendur Þór Gunnarsson hdl.)

 

Kærumál. Farbann. Sératkvæði.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X yrði áfram bönnuð för úr landi á grundvelli 1. mgr. 100 gr.  laga nr. 88/2008, sbr. b. lið 1. mgr. 95. gr. sömu laga.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Hjördís Hákonardóttir og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 12. júní 2009, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 12. júní 2009, þar sem varnaraðila er bönnuð brottför af landinu, en þó eigi lengur en til föstudagsins 10. júlí 2009 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi. 

Sóknaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði staðfestur.

Hinn kærði úrskurður verður staðfestur með vísan til forsendna.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

                                               

Sératkvæði

Ólafs Barkar Þorvaldssonar

hæstaréttardómara

Með úrskurði Héraðsdóms 8. maí 2009 var varnaraðila gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 til 15. maí 2009. Með dómi Hæstaréttar 13. sama mánaðar í máli nr. 226/2009 var úrskurði héraðsdóms breytt og varnaraðila í stað gæsluvarðhalds gert að sæta farbanni til sama tíma. Með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur 15. maí 2009 var farbann varnaraðila framlengt allt til 12. júní 2009 klukkan 16. Sá úrskurður var staðfestur í Hæstarétti með dómi 19.  maí 2009 í máli nr. 253/2009. Var það gert með þeim athugasemdum að sérstaka skyldu bæri til að hraða rannsókn og meðferð sakamála, þar sem sakborningur sætir þvingunaraðgerð, en samkvæmt gögnum málsins virtist rannsókn lögreglu lokið og einungis væri eftir að taka ákvörðun um saksókn. Þó var talið að enn væru fyrir hendi skilyrði farbanns „þann tíma sem ákveðinn var í hinum kærða úrskurði.“  Af gögnum málsins verður ekki séð að nokkuð hafi gerst í rannsókn málsins síðan þessi dómur Hæstaréttar gekk en ákæra var ekki gefin út fyrr en 15. þessa mánaðar, eða nokkrum dögum eftir að farbann samkvæmt dómi Hæstaréttar rann út. Tel ég að meðferð málsins hafi verið með þeim hætti að ekki séu efni til að fallast á kröfu sóknaraðila um frekara farbann og því beri að fella hinn kærða úrskurð úr gildi. 

 

                 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 12. júní 2009.

Ríkissaksóknari hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykja­víkur úrskurði að X, f. 9. ágúst 1969, með dvalarstað á [hótel] við [heimilisfang], Reykjavík, verði gert að sæta áfram farbanni þar til niðurstaða málsins liggur fyrir og þá eftir atvikum með dómi héraðsdóms en þó ekki lengur en til föstudagsins 10. júlí 2009, kl. 16.00.

Í greinargerð ríkissaksóknara kemur fram að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafi verið með til rannsóknar ætlað kynferðisbrot kærða og félaga hans, kærða Y, aðfaranótt föstudagsins 8. maí sl. gegn kæranda, A og séu atvik talin hafa gerst á herbergi á [hótel].

Kærði sé grunaður um að hafa misnotað sér ástand kæranda í því skyni að hafa við hana samræði. Fyrir liggi að kærandi hafi áður haft samræði við kærða Y og hafi talið þegar kærði hafi haft samræði við hana skömmu síðar að það hafi einnig verið kærði Y

Brot kærða sé talið varða við 2. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Rannsókn málsins sé nú lokið og hafi ríkissaksóknara borist rannsóknargögn sl. mánudag þann 8. júní, og muni ákvörðun um framhald málsins liggja fyrir í næstu viku.

Að mati ríkissaksóknara liggi fyrir rökstuddur grunur um að kærði hafi með háttsemi sinni gerst sekur um kynferðisbrot. Kærði hafi viðurkennt að hafa haft samræði við kæranda í umrætt sinn. Atvik öll, þar á meðal framburður kæranda og kærða Y, benda til þess að kærði hafi vitað að kærandi hafi átti von á kærða Y og að hann hafi áður haft samræði við kæranda. Kærði hafi notfært sér þær aðstæður að kærandi hafi beðið eftir kærða Y og farið inn í herbergi til hennar og upp í rúm og byrjað að hafa við hana samræði. Fyrir liggi að lítil birta hafi verið í herberginu og að kærðu virðist nokkuð líkir útlits. Kærði segi í framburði sínum að verið geti að kærandi hafi haldið að hann væri kærði Y og einnig komi þar fram að hann telji sig vera líkan honum í útliti.

Kærði hafi verið handtekinn þann 8. maí 2009 og verið þann sama dag úrskurðaður til að sæta gæsluvarðhaldi til 15. maí 2009. Þegar gæsluvarðhaldið hafi runnið út hafi kærði verið úrskurðaður í farbann til 12. júní 2009, kl. 16.00, sbr. úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. [nr.]. Sá úrskurður hafi verið kærður til Hæstaréttar af hálfu kærða sem hafi staðfesti úrskurð héraðsdóms, sbr. meðfylgjandi dóm í máli hæstaréttar nr. 253/2009.

Vísað sé til þess að kærði sé erlendur ríkisborgari og þyki hætta á að hann hverfi af landi brott til að koma sér undan dómi. Ekki sé vitað til þess að hann hafi nein tengsl við landið. Þyki því nauðsynlegt að kærði sæti farbanni til að tryggja nærveru hans til að ljúka megi meðferð málsins eftir atvikum með dómi og fullnustu dóms.    

Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og 1. mgr. 100. gr., sbr. b lið 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála sé þess beiðst að ofangreind krafa nái fram að ganga.

                Með vísun til þess sem að framan var rakið úr greinargerð ríkissaksóknara er fallist á það með honum að fram sé kominn sá áskilnaður sem gerður er í 1. mgr. 95. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. laga nr. 88/2008 um að rökstuddur grunur sé fyrir hendi um að kærði hafi framið verknað sem fangelsisrefsing er lögð við. Kærði kom til landsins sem ferðamaður og eru því einnig uppfyllt skilyrði b. liðar 1. mgr. 95. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. sömu laga. Þá hefur saksóknari upplýst að ákæra verði gefin út næstkomandi mánudag. Samkvæmt þessu verður orðið við kröfu ríkissaksóknara eins og nánar greinir í úrskurðarorði.      

Arngrímur Ísberg héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

ÚRSKURÐARORÐ:

Kærða, X, fæddum 9. ágúst 1969, er bönnuð brottför af landinu, en þó ekki lengur en til föstudagsins 10. júlí 2009, kl. 16.00.