Hæstiréttur íslands

Mál nr. 593/2010


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


Fimmtudaginn 14. október 2010.

Nr. 593/2010.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Jón H.B. Snorrason saksóknari)

gegn

X

(Ólafur Örn Svansson hrl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Jón Steinar Gunnlaugsson og Viðar Már Matthíasson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 12. október 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 11. október 2010, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 15. október 2010 klukkan 16 og sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími. Þá krefst hann þess að sér verði ekki gert að sæta einangrun á gæsluvarðhaldstíma.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

      Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 11. október 2010.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, kt. [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi, allt til föstudagsins 22. október n.k. kl. 16:00. Þá er gerð krafa um að sakborningur sæti einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.

Í greinargerð lögreglu kemur fram að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsaki nú ætluð stórfelld brot gegn 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt og gegn peningaþvættisákvæði almennra hegningarlaga sbr. 264 gr.  almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Upphaf þessa máls séu tilkynningar frá Íslandsbanka og frá Arion banka um peningafærslur sem hafi þótt grunsamlegar og ekki samræmast upplýsingum og/eða viðskiptum hjá reikningshöfum í bönkunum.

Við könnun lögreglu hafi komið í ljós að um hafi verið að ræða greiðslur inn og út af reikningum tveggja fyrirtækja A, kt. [...], og B, kt. [...]. Hafi reikningsyfirlit sýnt háar fjárgreiðslur frá tollstjóra inn á reikninga þessar tveggja fyrirtækja. Fjárhæðirnar hafi síðan smám saman verið teknar út af reikningunum fyrirtækjanna, að mestu í reiðufé. Innlagnir og úttektir sem til rannsóknar eru áttu sér stað frá október 2009 til júní 2010.

Með upplýsingaöflun lögreglu, m.a. hjá skattrannsóknarstjóra, hafi verið upplýst að hinar háu greiðslur inn á reikningana hafi verið endurgreiðslur á innskatti vegna endurbóta á húsnæði en slíkar endurgreiðslur er gerðar á grundvelli sérstakrar skráningar á virðisaukaskattsskrá skv. reglugerð nr. 577/1989. Við nánari eftirgrennslan um grundvöll þessara endurgreiðslna kom í ljós að húsnæði það sem félögin tvö fengu endurgreiddan innskatt vegna hafði aldrei verið í eigu félaganna eða þeirra einstaklinga sem að þeim stóðu eða voru í forsvari fyrir þau. Endurgreiðslurnar byggðu því á röngum og/eða tilhæfulausum grundvelli og bendir því allt til að greiðslurnar hafi verið fengnar með sviksamlegum hætti úr ríkissjóði. Endurgreiðslur á innskatti til A, hafi verið samtals kr. 174.330.155, sem lagðar voru inn á reikning félagsins í Arion banka. Endurgreiðslur til B, voru samtals kr. 103.000.000, sem lagðar hafi verið inn á reikning félagsins í Íslandsbanka.

Rannsókn málsins sé margþætt og umfangsmikil en þegar hafi alls sex einstaklingar sætt gæsluvarðhaldi vegna málsins. Gögn og upplýsingar bendi til að hlutverkum hafi verið skipt á milli einstaklinganna í brotum þessum. Rannsókn málsins virðist þó hafa leitt í ljós að maður að nafni Y hafi einn, eða ásamt öðrum, skipt verkum á milli aðilanna, gefið þeim fyrirmæli og móttekið fjármuni frá þeim einstaklingum sem önnuðust úttektir af bankareikningunum. Jafnframt sé talið að Y hafi notið aðstoðar starfsmanns hjá skattinum, Z, sem sé grunaður um að hafa með ólögmætum hætti afgreitt erindi fyrirtækja tveggja um sérstaka skráningu og endurgreiðslu á innskatti og að hafa þegið hluta afrakstursins fyrir.  Z sé einn þeirra sem nú sæti gæsluvarðhaldi vegna málsins.

Sakborningur, X, sé þekktur félagi Y og frændi og vinur Z.

Þann 8. október s.l. kom fram í yfirheyrslum yfir öðrum sakborningi í málinu, Þ, að hann hefði í eitt skipti, er Y hafi verið á leið til útlanda, fengið fyrirmæli um að afhenda fjárhæðir, sem teknar hafi verið af bankareikningum A og B, manni sem hann ætti að hitta á nánar tilgreindum veitingastað í Kópavogi. Hafi Y beðið Þ um að klæðast ákveðnum bol svo að maðurinn þekkti hann. Þ hafi verið á veitingastaðnum er maðurinn hafi komið inn, pikkað í hann og spurt hvort hann væri ekki Þ.  Þ kvaðst þá hafa hlaupið út í bíl og náð í poka sem í voru 16 eða 17 milljónir króna og afhent manninum. Þ sagðist ekki hafa fengið símanúmer eða nafn á þessum manni. Hann hefði séð hann einu sinni áður heima hjá Y og taldi sig geta þekkt hann aftur á mynd. Þá hafi hann getað lýst manninum vel auk þess sem hann tjáði lögreglu að maðurinn hefði komið á svörtum [...] jepplingi.

Lýsing sú sem Þ hafi gefið lögreglu á við um sakborning og í morgun fór fram myndsakbending þar sem Þ hafi borið kennsl á sakborning sem þann mann, sem hann hefði afhent áðurnefnda fjármuni. Sakborningur sé einnig skráður fyrir svartri [...] bifreið (jepplingi).

Laugardaginn 9. október hafi lögreglu ennfremur borist upplýsingar um aðild að stórfelldu skattalagabroti. Upplýsingarnar, sem lögregla mat áreiðanlegar, hafi verið á þann veg að karlmaður, sem kallaður væri X og héti líklega X, hafi gengt lykilhlutverki ásamt Y og Z í brotinu. Hlutverk X hafi verið skipulagning á því fyrirkomulagi að skattayfirvöld greiddu út fjármuni og að hann hafi meðal annars tekið við fjármunum sem greiddir voru út, sjá nánar meðfylgjandi upplýsingaskýrslu lögreglu. Samkvæmt upplýsingum lögreglu sé sakborningur oft kallaður X.

Sakborningur hafi upphaflega verið boðaður til yfirheyrslu sem vitni þann 1. október s.l. en hafi verið handtekinn í gær og í kjölfarið yfirheyrður sem sakborningur í málinu. Sakborningur kveðst enga aðkomu hafa að málinu. Hans einu tengsl við þetta mál séu að frændi hans og góðvinur Z sitji í gæsluvarðhaldi vegna málsins og að hann kannist við Y sem hafi verið handtekinn í [...]. Sakborningur hafni því að hafa verið í nokkrum símasamskiptum við Y s.l. tvö ár  jafnvel þó honum hafi verið kynnt að lögregla hafi undir höndum gögn sem sýna að á milli þeirra hafa gengið þó nokkur símtöl og smáskilaboð (sms) á árinu. Þá segist sakborningur aldrei hafa tekið á móti reiðufé á veitingastað í Kópavogi.

Með vísan til framangreinds og til gagna málsins telji lögregla sig hafa rökstuddan grun um að sakborningur hafi átt þátt í stórfelldum skattalagabrotum og hafi gerst sekur um peningaþvætti.

Í morgun hafi farið fram leit á heimili sakbornings og liggi nú fyrir að fara yfir þau gögn sem þar fundust. Afla þurfi upplýsinga um bankareikninga og/eða bankahólf í eigu sakbornings og meðal annars að kanna bankareikning sakbornings á Spáni sem hann hefur upplýst lögreglu um. Þá þurfi að yfirheyra aðra sakborninga í málinu og vitni með tilliti til þeirra upplýsinga sem nú liggja fyrir. Y, hafi verið handtekinn í [...] þann 27. september s.l. Samkvæmt upplýsingum frá yfirvöldum í [...] muni Y verða vísað brott af landinu á allra næstu dögum og fluttur í lögreglufylgd til Íslands. Y sé í haldi ytra en sé ekki í einangrun og hefur samkvæmt upplýsingum lögreglu afnot af síma. Að mati lögreglu sé mikilvægt að tryggja að Y verði yfirheyrður áður en hann á þess kost að komast í samband við sakborning.

Til rannsóknar sé umfangsmikil svikastarfsemi þar sem yfir 277 milljónir króna voru blekktar úr ríkissjóði. Megi ætla að ef sakborningur verði látinn laus muni hann eiga þess kost að torvelda rannsókn málsins, svo sem með því hafa samband við samverkamenn eða með því að koma undan gögnum og/eða fjármunum. Lögregla telji það brýnt fyrir framgang málsins að fallist verði á kröfu um gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna svo unnt sé að ljúka nauðsynlegri rannsókn án þess að sakborningur geti spillt rannsókninni. Af framangreindum ástæðum er einnig farið fram á að sakborningur sæti einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.

Meint sakarefni eru stórfelld skattalagabrot og peningaþvætti en brotin eru talin geta varðað við almenn hegningarlög nr. 19/1940 og lög um virðisaukaskatt nr. 50/1988 en brot þessi geta varðað allt að 6 ára fangelsisrefsingu. Um heimild til gæsluvarðhalds er vísað til a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. Um heimild til einangrunar á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur er vísað til b-liðar 1. mgr. 99. gr. sömu laga.

Kærði var handtekinn í gær. Fyrir liggur að einn sakborninga í málinu hefur borið kennsl á kærða og sagst hafa afhent honum háar fjárhæðir að beiðni Y, sem talinn er höfuðpaur í málinu. Peningarnir hafi verið teknir út af þeim reikningum, sem taldir eru hafa verið notaðir við umrædda brotastarfsemi. Að þessu virtu og rannsóknargögnum þykir kominn fram rökstuddur grunur um að kærði hafi átt aðild að umræddum brotum, sem fangelsisrefsing er lögð við. Rannsókn málsins er á frumstigi en enn á eftir að kanna ýmis gögn, sem fundust við húsleit hjá kærða, auk þess sem enn á eftir að taka skýrslu af framangreindum Y, sem væntanlegur er til landsins í lögreglufylgd á næstu dögum. Í ljósi þessa þykir hætta á að kærði muni torvelda rannsókn málsins, svo sem með því að afmá merki eftir brot, skjóta undan munum ellegar hafa áhrif á vitni og samseka, fari hann frjáls ferða sinna. Með vísan til þess sem að framan greinir svo og til rannsóknargagna málsins er fallist á að fullnægt sé skilyrðum a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi. Kærði skal sæta einangrun á meðan gæsluvarðhaldinu stendur. Hins vegar þykir rétt að marka gæsluvarðhaldinu skemmri tíma, eða til föstudagsins 15. október nk. kl. 16:00.

Arnfríður Einarsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kærði, X, kt. [...], skal sæta gæsluvarðhaldi, allt til föstudagsins 15. október n.k. kl. 16:00.

 Kærði skal sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.