Hæstiréttur íslands

Mál nr. 77/2014

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H. B. Snorrason saksóknari)
gegn
X (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)

Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008

Reifun

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og einangrun meðan á því stæði.

Dómur Hæstaréttar

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Eiríkur Tómasson, Helgi I. Jónsson og Þorgeir Örlygsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 31. janúar 2014 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 4. febrúar sama ár. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 31. janúar 2014 þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 21. febrúar 2014 klukkan 16 og einangrun meðan á því stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími, en að því frágengnu að hann verði úrskurðaður í farbann í stað gæsluvarðhalds. Þá krefst varnaraðili að hann verði úrskurðaður til vistunar á heilbrigðisstofnun í stað fangelsis, en til vara að honum verði ekki gert að sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Varnaraðili hefur ekki fært viðhlítandi rök fyrir því að ástæða sé til að mæla fyrir um vistun hans á sjúkrahúsi eða annarri viðeigandi stofnun í stað gæsluvarðhalds, svo sem heimilt er að gera samkvæmt 1. mgr. 100. gr. laga nr. 88/2008. Með þessari athugasemd verður hinn kærði úrskurður staðfestur með vísan til forsendna hans.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 31. janúar 2014.

                Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur í dag krafist þess að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði að X, kt. [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 27. febrúar kl. 16. Þá er þess krafist að kærða verði gert að sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur. 

                Kærði mótmælti kröfunni.

                Í greinargerð með kröfunni kemur fram að við rannsókn lögreglu á tölvugögnum sem haldlögð hafi verið í máli 007-2013-[...] hafi fjöldinn allur af .xml skjölum fundist. Skjöl þessi séu talin hafa að geyma samskiptasögu X, kærða í þessu máli, við 5 drengi sem hafi verið á aldrinum 14 til 19 ára er samskiptin áttu sér stað, líklega á árinu 2011. Samskiptin hafi aðallega átt sér stað í gegnum facebook og msn spjallforritið.

Við nánari skoðun hafi komið í ljós að samskipti kærða við drengina hafi gefið til kynna að kærði hafi brotið kynferðislega gegn þeim. Það sem sé sammerkt með samskiptum kærða við piltana sé sú ímynd sem hann dragi upp af sjálfum sér. Kærði byggi markvisst upp þá ímynd að hann sé vellauðugur og valdamikill þrátt fyrir ungan aldur. Kærði láti sömuleiðis í veðri vaka að hann sé með eindæmum góður [...] og sé m.a. fær um að [...]. Allt bendi til að ætlaðir brotaþolar hafi lagt fullan trúnað á að kærði væru í aðstöðu til þess sem hann hafi gefið fyrirheit um. Á einhverju stigi í samskiptum kærða við hvern og einn drengjanna hafi kærði komist að því hvað þeir ásældust eða hefðu áhuga á. Oftar en ekki hafi peningar, apple tölvur og iPhone símar heillað drengina. Í einhverjum tilfellum hafi einnig komið í ljós [...]. Kærði kvaðst geta [... ]með því að [...] til hagsbóta og eða til skaða.

Þegar ljóst hafi verið hvað drengirnir hafi ásælst eða hefðu áhuga á hafi kærði hafist handa við að finna út hvað þeir væru tilbúnir að gera til að öðlast þessa hluti. Enginn piltanna hafi í upphafi virst vera með það í huga að veita kærða kynferðislegan greiða en þeir lýsi því að hann hafi verið mjög ágengur og þrýst mjög á drengina hvern og einn að láta undan vilja sínum. Drengirnir lýsi því hver með sínum hætti að kærði hafi fljótlega komist í yfirburðastöðu gagnvart þeim þannig að þeir hafi óttast hann. Í bland við loforð um tölvur, peninga, bíla og [...] hafi kærði beitt beinum og óbeinum hótunum. Varðandi nánari lýsingar á brotum hans gagnvart hverjum dreng fyrir sig vísast til gagna málsins.

Í kjölfar þessara upplýsinga hafi verið haft samband við umrædda drengi og þeir boðaðir til skýrslutöku. Við skýrslutöku hjá lögreglu hafi þrír drengjanna lýst því hvernig kærði hafi brotið gegn þeim kynferðislega með þeim hætti sem lýst er að ofan, þ.e. fengið þá til kynlífsathafna gegn loforðum um verðmæti og jafnframt beitt hótunum. Hinir tveir hafi lýst tilraunum kærða til að fá þá til kynlífsathafna með sömu aðferð. Einn drengjanna hafi lýst því að um 20-30 tilvik hefði verið að ræða auk mjög grófrar nauðgunar þar sem kærði hafi beitt vopnum til að yfirbuga hann. Einn drengjanna hefur lýst atvikum sem hafi átt sér stað er hann hafi ekki verið orðinn 15 ára. Í skýrslum ætlaðra brotaþola hafi þeir lýst því að þeim hafi verið kynferðismök og eða kynferðisleg samskipti við kærða á móti skapi og allir taka fram að þeir séu gagnkynhneigðir.

Í gær hafi kærði verið handtekinn í [...] við [...] í Reykjavík og hafi þá komið í ljós að hann hafði tekið þar á leigu lúxusíbúð í nafni [...]fyrirtækis án þess að hafa til þess heimild. Í íbúðinni hafi fundist munir sem grunur sé um að séu þýfi.

Við skýrslutöku hjá lögreglu fyrr í dag hafi kærði kannast við hina ætluðu brotaþola og að hafa umgengist þá. Hann kannast við að hafa átt í kynferðislegum samskiptum við einn þeirra en með vilja hans og að hafa sóst eftir slíku við aðra án þess að af því hafi orðið.

Fram sé kominn rökstuddur grunur um að kærði hafi framið verknaði sem varði allt að 16 ára fangelsisrefsingu. Rannsókn málsins sé á frumstigi en nú þegar bendi allt til að um mjög langvarandi brotastarfsemi sé að ræða. Auk þeirra drengja sem lögregla hafi þegar tekið frumskýrslur af, hafi borist upplýsingar og ábendingar um 3-4 drengi sem gefi tilefni til að taka til rannsóknar fleiri mál.

Í málinu liggi fyrir að framkvæma þurfi húsleitir víða og rannsaka nánar vettvang hinna meintu brota, en sú vinna þurfi m.a. að fara fram á norðurlandi. Jafnframt liggi fyrir að rannsaka þurfi ítarlega tölvu- og símagögn sem lögregla hafi undir höndum, en búast megi við því að umfang slíkra gagna muni aukast í kjölfar húsleita og frekari haldlagninga. Yfirheyra þurfi kærða ítarlega auk fjölda vitna og afla læknisfræðilegra gagna.

Með hliðsjón af framangreindu sé ljóst að rannsóknarhagsmunir krefjist þess að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi. Um sé að ræða mjög viðkvæmt mál þar sem meintir brotaþolar séu ungir og á viðkvæmum aldri og kærði hafi hótað með mjög ófyrirleitnum hætti og þannig náð tökum á meintum brotaþolum. Að mati lögreglu sé ljóst að mikil hætta sé á því að sakborningur muni torvelda rannsókn málsins fari hann frjáls ferða sinna, svo sem með því að setja sig í samband við meinta brotaþola eða önnur vitni svo og eyða eða koma undan öðrum sönnunargögnum. Í því samhengi sé rétt að benda á að lögregla hafi upplýsingar um að kærði hafi í einhverjum tilfellum myndað hin meintu brot og því jafnframt mikilvægt að lögregla geti tryggt að kærði geti ekki haldið áfram að brjóta af sér með slíkt myndefni undir höndunum, sérstaklega m.t.t. til hagsmuna hinna meintu brotaþola.

Ætluð brot teljist varða við 1. mgr. 194. gr., 1. og 3. mgr. 202. gr., 209. gr., 1. mgr. 210. gr. a., 244. gr., 248. gr. og 254. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og a.-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamálamála er þess krafist að krafan nái fram að ganga.

                Samkvæmt rannsóknargögnum málsins er kærði undir rökstuddum grun um brot sem geti varðað allt að 16 ára fangelsi. Rannsókn málsins er enn á frumstigi. Haldi kærði óskertu frelsi sínu gæti hann torveldað rannsókn málanna með því að koma sönnunargögnum undan eða hafa áhrif á hugsanlega samverkamenn sína og vitni.

Með vísan til a-liðar 1. mgr. 95. gr. og 2. mgr. 98.gr. sbr. b-lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála er fallist á kröfu lögreglustjóra, eins og nánar greinir í úrskurðarorði.

Úrskurð þennan kveður upp Bogi Hjálmtýsson héraðsdómari.

Úrskurðarorð:

Kærði, X, skal sæta gæsluvarðhaldi, allt til föstudagsins 21. febrúar nk. kl. 16:00.

Kærði sæti einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.