Hæstiréttur íslands

Mál nr. 387/1999


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gagn
  • Verjandi


                                                                                                                 

Fimmtudaginn 30. september 1999.

Nr. 387/1999.

Lögreglustjórinn í Reykjavík

(Egill Stephensen saksóknari)

gegn

X

(Helgi Jóhannesson hrl.)

Kærumál. Gögn. Verjandi.

Kærður var úrskurður héraðsdómara þar sem fallist var á kröfu lögreglustjóra um skýrslutöku yfir X fyrir dómi og framlengingu frests, til að synja verjanda X um aðgang að gögnum varðandi rannsókn opinbers máls, í þrjár vikur, á grundvelli b. liðar 1. mgr. 74. gr. a. laga nr. 19/1991. Var niðurstaða héraðsdóms staðfest með vísan til forsendna úrskurðarins.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Pétur Kr. Hafstein, Gunnlaugur Claessen og Markús Sigurbjörnsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 27. september 1999, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 28. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 27. september 1999, þar sem fallist var á kröfu sóknaraðila um skýrslutöku fyrir dómi af varnaraðila. Þá var jafnframt með nánar tilgreindum undantekningum fallist á kröfu sóknaraðila um að framlengdur yrði í þrjár vikur frestur til að synja verjanda varnaraðila um aðgang að gögnum varðandi rannsókn opinbers máls, sem beinist að varnaraðila. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess að kröfu lögreglustjóra um skýrslutöku af varnaraðila fyrir dómi og framlengingu frests til afhendingar gagna verði hafnað.

Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 27. september 1999.

Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur krafist þess að héraðsdómur taki skýrslu af X, [...], og jafnframt að framlengt verði í þrjár vikur frest sem lögregla hefur til að synja verjanda kærða um aðgang að gögnum er varða rannsókn máls nr. 10-1999-21479. Krafan kom fram í dag.

[...]

Kærða var með úrskurði dómsins þann 11. september sl. gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 10. nóvember 1999 kl. 16. Úrskurðurinn er studdur þeim rökum að verið sé að rannsaka meint brot gegn fíkniefnalöggjöfinni en háttsemi kærða, ef sönnuð væri, varðaði við 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þar sem hámarksrefsing sé 10 ára fangelsi. Rökstuddur grunur væri fram kominn um aðild kærða að málinu. Rannsókn málsins væri á frumstigi og ráða mætti af rannsóknargögnum að rannsóknin verði bæði flókin og tímafrek og teygi anga sína út fyrir landsteinana. Enn ætti eftir að yfirheyra fjölmarga grunaða og vitni og því nauðsynlegt í þágu rannsóknar málsins, sbr. a lið 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991, að kærði sæti gæsluvarðhaldi eins og að ofan greinir. Úrskurðurinn var staðfestur með dómi Hæstaréttar þann 20. september sl. með vísan til forsendna hans.

Samkvæmt síðari málslið 1. mgr. b-liðar 74. gr. a laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991, sbr. 23. gr. laga nr. 36/1999, ber dómara að verða veið beiðni lögreglu um skýrslutöku fyrir dómi af sakborningi til þess að upplýsa mál, áður en verjandi fær aðgang að einstökum skjölum eða öðrum gögnum þess, telji lögregla bera nauðsyn til þess. Með vísan til þessa er fallist á að skýrslutaka fari fram fyrir dómi yfir kærða, X.

 Samkvæmt sama lagaákvæði getur dómari framlengt frest sem lögregla hefur til að veita verjanda sakbornings aðgang að gögnum samkvæmt 1. mgr. 43. gr. laganna í allt að þrjár vikur ef þörf er á til að unnt sé að ljúka skýrslutökum. Meðal rannsóknargagna málsins er skýrsla rannsóknarlögreglu um handtöku og vistun kærða í fangageymslu, dagsett 10. september sl., skýrsla um afhendingu bifreiðar, dagsett 13. sama mánaðar, handtökuskýrsla, dagsett 10. s.m., tvær skýrslur um húsleit, dagsettar sama dag, skýrsla um haldlagningu, dagsett sama dag, skýrsla um húsleit, dagsett 11. september sl., skýrsla um haldlagningu, dagsett sama dag, rannsóknarbeiðni til tæknideildar, dagsett sama dag, upplýsingaskýrsla og skýrsla um haldlagningu, dagsettar 13. september sl., kæra til Hæstaréttar, krafa um gæsluvarðhald og gæsluvarðhaldsúrskurður. Ekki er gerð krafa um að kærða verði meinaður aðgangur að þessum gögnum.

Ljóst er með vísan til þess sem fyrir liggur í málinu að þörf er á því að frestur samkvæmt lagagreininni verði framlengdur hvað varðar önnur rannsóknargögn í málinu í allt að þrjár vikur til að unnt verði að ljúka skýrslutöku. Er því fallist á kröfu lögreglustjórans að þessu leyti um frest samkvæmt síðari málslið b-liðar 1. mgr. 74. gr. a sömu laga. 

Sigríður Ólafsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

Úrskurðarorð:

Fallist er á kröfu lögreglustjórans í Reykjavík um skýrslutöku yfir sakborningi, X, fyrir dómi. Jafnframt er framlengdur í þrjár vikur frestur sem lögregla hefur til að synja verjanda X, um aðgang að öllum öðrum rannsóknargögnum máls nr. 10-1999-21479 en að skýrslu rannsóknarlögreglu um handtöku og vistun kærða í fangageymslu, dagsettri 10. september sl., skýrslu um afhendingu bifreiðar, dagsettri 13. sama mánaðar, handtökuskýrslu, dagsettri 10. s.m., skýrslum um húsleit, dagsettum sama dag, skýrslu um haldlagningu, dagsettri sama dag, skýrslu um húsleit, dagsettri 11. september sl., skýrslu um haldlagningu, dagsettri sama dag, rannsóknarbeiðni til tæknideildar, dagsettri sama dag, upplýsingaskýrslu og skýrslu um haldlagningu, dagsettum 13. september sl., kæru til Hæstaréttar, kröfu um gæsluvarðhald og gæsluvarðhaldsúrskurði.