Hæstiréttur íslands
Mál nr. 606/2014
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald
- Útlendingur
|
|
Þriðjudaginn 16. september 2014. |
|
Nr. 606/2014.
|
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Alda Hrönn Jóhannsdóttir fulltrúi) gegn X (Leifur Runólfsson hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. Útlendingar.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 7. mgr. 29. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga og b. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Dómur Hæstaréttar
Mál þetta dæma Benedikt Bogason hæstaréttardómari og Guðrún Erlendsdóttir og Ingveldur Einarsdóttir settir hæstaréttardómarar.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 12. september 2014 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 15. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 12. september 2014 þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 19. september 2014 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Í hinum kærða úrskurði eru rakin þau mál á hendur varnaraðila sem eru til rannsóknar hjá lögreglu. Liggur fyrir að varnaraðili er undir rökstuddum grun um að hafa gerst sekur um háttsemi sem fangelsisrefsing er lögð við, sbr. upphafsákvæði 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Með þessari athugasemd en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 12. september 2014.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur í dag krafist þess að erlendum aðila sem kveðst heita X, fæddur [...], verði með úrskurði dómsins gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 19. september 2014, kl. 16:00.
Varnaraðili mótmælir kröfunni og krefst þess að henni verði hafnað.
Í greinargerð lögreglustjórans segir að 11. september 2014 hafi [...] fangaverðir komið með varnaraðila til landsins í því skyni að afhenda hann íslenskum yfirvöldum á grundvelli Dyflinnarreglurgerðarinnar. Þá hafi íslenskum yfirvöldum borist tilkynning frá yfirvöldum í [...] um frestun á framkvæmd flutnings á ætlaðri eiginkonu varnaraðila og tveimur barnungum drengjum hans þar sem þau finnast ekki.
Upphaf málsins sé að 13. maí 2011 hafi Fjölskyldu- og félagsþjónustan í [...] tekið á móti útlendingi og fjölskyldu hans sem hafi óskað hælis. Í samskiptum Félagsþjónustunnar og varnaraðila hafi fljótlega komið í ljós erfiðleikar sem hafi stigmagnast jafnt og þétt og loks leitt til þess að 29. apríl síðastliðinn hafi varnaraðili verið lagður inn á geðdeild Landspítalans vegna gruns um að hann væri haldin alvarlegum geðsjúkdómi. Þá hafi varnaraðili einnig ítrekað lent upp á kannt við aðra hælisleitendur í [...] og aðra aðila sem hafi komið að málefnum hælisleitenda í [...].
Fyrir liggi að Útlendingastofnun hafi ákvarðað brottvísun varnaraðila af landinu og hafi Innanríkisráðuneytið staðfest þá ákvörðun með úrskurði sínum og hafi jafnframt úrskurðað að beiðni hans um frestun réttaráhrifa væri vísað frá ráðuneytinu þar sem hann hafi yfirgefið Ísland að eigin frumkvæði. Hafi varnaraðili yfirgefið landið [...] síðastliðinn að eigin frumkvæði ásamt fjölskyldu sinni þrátt fyrir að lögreglustjórinn á Suðurnesjum hafi birt fyrir honum ákvörðun þess efnis að hann skyldi halda sig á ákveðnu svæði og sinna tilkynningaskyldu sbr. meðfylgjandi ákvörðun 16. maí 2014 og dóm Hæstaréttar Íslands nr. 327/2014.
Þann 10. maí síðastliðinn hafi lögreglustjórinn á Suðurnesjum farið fram með kröfu þess efnis að varnaraðili skyldi sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 6. júní 2014 kl. 16:00. Hafi lögreglustjóri byggt kröfu sína á því að varnaraðili hafi sýnt af sér hegðun sem gefi til kynna að af honum stafaði hætta og að hann kunni að grípa til frekara ofbeldis eða hótana um ofbeldi gengi hann laus. Fallist var á kröfu lögreglustjóra í héraðsdómi en varnaraðili hafi skotið úrskurðinum til Hæstaréttar Íslands sem hafi fellt hann úr gildi með dómi í málinu númer 327/2014. Hafi rétturinn talið að fullnægt væri skilyrði 7. mgr. 29. gr. laga nr. 96/2002 en hafnað kröfu lögreglustjóra á þeim forsendum að ekki hefði verið lagt fyrir varnaraðila að halda sig á ákveðnu svæði áður en látið yrði reyna á gæsluvarðhald. Hafi krafa lögreglustjórans verið byggð eftirfarandi atvikum:
Varnaraðili hafi stöðu sakbornings í málum sem séu til meðferðar hjá lögreglu og varði meðal annars meint brot hans gegn 2. mgr. 218. gr., 233. gr., 244. gr. og 2. mgr. 257. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Síðdegis 9. maí 2014 hafi varnaraðili verið útskrifaður af geðdeild Landspítalans þar sem starfsmenn Landspítalans hafi talið öryggi starfsmanna og sjúklinga deildarinn í hættu vegna veru hans á deildinni. Þá séu afskipti lögreglu af varnaraðila eftirfarandi frá 11. ágúst 2013:
Lögreglumál nr. 008-2013-[...], brot gegn 217. gr. almennra hegningarlaga:
Í málinu var hafi varnaraðili verið kærður til lögreglu vegna meintrar líkamsárásar gegn hælisleitanda 11. ágúst 2013. Atvik málsins hafi verið þau að varnaraðili hafi lent í átökum við framangreindan aðila á heimili hans. Hafi þeir báðir hlotið nokkra áverka í slagsmálunum. Málið hafi verið fellt niður af ákæruvaldinu á grundvelli 145. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 þar sem sönnunarstaðan í málinu hafi verið talin vera með þeim hætti að ekki væri unnt að fullyrða hvor hefði ráðist á hvorn. Þó hafi verið ljóst samkvæmt framburði varnaraðila, aðilans og gögnum málsins að átök hafi átt sér stað en þeim hafi ekki borið saman um það hvers vegna eða hver hefði átt frumkvæðið af þeim.
Lögreglumál nr. 008-2013-[...], fyrirmælum lögreglu ekki hlýtt:
Þann 12. ágúst 2013, hafi lögreglu borist tilkynning um aðila sem væri með hníf við bensínstöð Olís í [...]. Hafi varnaraðili komið skömmu síðar komið á lögreglustöðina og kveðist hafa lent í útistöðum við menn á þeim stað sem lögreglu hafi skömmu áður borist tilkynning um. Enginn hnífur hafi fundist á varnaraðila við komu hans á lögreglustöðina. Hafi honum í kjölfarið verið bent á að fara til síns heima og halda sig þar. Skömmu síðar hafi lögreglumenn rekist á varnaraðila þar sem hann hafi ekki verið á leið heim til sín heldur á gistiheimili í bænum og ekki viljað fylgja fyrirmælum lögreglu um að halda heim á leið og hafi hann því verið handtekinn og færður á lögreglustöðina þar sem hann hafi verið vistaður í fangaklefa. Hafi varnaraðili ítrekað reynt að skaða sig í fangaklefanum. Þá hafi hann kvartað undan því að fá ekki að taka líf sitt. Hafi verið kallað eftir lækni á lögreglustöðina sem hafi tekið þá ákvörðun að svipta varnaraðila sjálfræði og hafi hann í kjölfarið verið fluttur á geðdeild Landspítalans en útskrifaður daginn eftir.
Lögreglumál nr. 007-2013-[...], 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga:
Þann 1. nóvember 2013 hafi lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu borist tilkynning um yfirstandandi slagsmál í Kringlunni þar sem hnífum hafi verið beitt. Í málinu hafi varnaraðili verið handtekinn ásamt öðrum manni vegna slagsmála sem hafi brotist út á milli varnaraðila, félaga hans og tveggja annarra manna. Hafi annar árásarþolanna verið stunginn í tvígang með hníf af samverkamanni varnaraðila.
Lögreglumál nr. 007-2013-[...], 244. gr. almennra hegningarlaga:
Þann 6. desember 2013 hafi lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu borist tilkynning vegna tveggja manna sem hafi verið staðnir að þjófnaði í verslun Hagkaupa í Kringlunni. Hafi verið um varnaraðila að ræða og annan mann. Hafi þeir haft íþróttatöskur meðferðis sem hafi verið fullar af meintu þýfi. Þá hafi jafnframt fundist hnífar á þeim. Hafi samverkamaður varnaraðila kveðist hafa hnífinn meðferðis til að verja sig en varnaraðili til að gera að fiski.
Lögreglumál nr. 008-2014-[...], 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga:
Þann 30. janúar 2014 hafi lögreglu verið tilkynnt um líkamsárás þar sem varnaraðili hafi verið grunaður um að hafa ráðist á hælisleitanda í [...]. Samkvæmt lýsingum vitna hafi verið um að ræða varnaraðila og hafi hann gengið harkalega í skrokk á brotaþola og meðal annars sparkað í höfuð hans. Hafi svo virst sem árásin hafi verið algerlega tilefnislaus.
Lögreglumál nr. 008-2014-[...], fyrirmælum lögreglu ekki hlýtt og 233. g. almennra hegningarlaga:
Þann 24. mars 2014 hafi lögreglu borist beiðni um aðstoð frá Félagsþjónustu [...] vegna varnaraðila og fjölskyldu hans. Ekkert hafi heyrst frá varnaraðila í nokkrar vikur og hann ekki sinnt fyrirspurnum félagsþjónustunnar. Þá hafi börn varnaraðila ekki farið í leikskóla í nokkurn tíma. Hafi lögregla knúið dyra en ekki fengið svar þó augljóst væri að einhver væri á heimilinu. Hafi lögregla þá kallað til lásasmið sem hafi opnað fyrir lögreglu. Hafi þá komið til átaka við varnaraðila. Hafi varnaraðili verið handtekinn og færður á lögreglustöð. Við afskiptin hafi varnaraðili hótað starfsmanni félagsþjónustunnar líkamsmeiðingum sem hafi lagt fram kæru á hendur honum.
Lögreglumál nr. 008-2014-[...], 1. mgr. 257. gr. almennra hegningarlaga:
Þann 11. apríl 2014 hafi lögreglu borist ósk um aðstoð frá Félagsþjónustunni í [...] vegna varnaraðila. Við könnun stafsmanna Félagsþjónustunnar á högum hans og fjölskyldu hans hafi komið í ljós að varnaraðili hafi verið í [...]. Við skoðun á húsnæði fjölskyldunnar hafi komið í ljós að töluverð eignaspjöll hafi verið unnin á íbúðinni. Sófa hafi verið hent út, skemmdir unnar á útidyrahurð, eldhúsinnréttingu, baðinnréttingu, útveggja klæðningu o.fl. Áætlað tjón vegna eignaspjallanna sé 1.423.779 krónur. Hafi eigandi húsnæðisins lagt fram kæru hjá lögreglu vegna eignaspjallanna.
Lögreglumál nr. 008-2014-[...], eftirlit lögreglu með heimilisaðstæðum hjá varnaraðila:
Vegna þeirra atvika sem á undan hafi gengið, einkum yfirlýsingar varnaraðila um [...] hafi lögregla hafið daglegt eftirlit með varnaraðila og fjölskyldu hans. Hafi sú ákvörðun verið tekin af lögreglu í samráði við félagsmálayfirvöld og Útlendingastofnun. Hafi eftirlitið hafist 16. apríl 2014 og staðið til 29. apríl sama ár er varnaraðili hafi verið lagður inn á geðdeild. Eftirlitið hafi í upphafi farið vel fram og hafi varnaraðili verið samvinnufús. Eftir því sem liðið hafi á eftirlitið hafi breyting orðið á þeirri samvinnu. Þann 29. apríl síðastliðinn hafi lögreglu borist ósk um aðstoð frá félagsmálayfirvöldum í [...] þar sem til hafi staðið að fara inn í íbúðina til að laga leka í eldhúsi. Við skoðun á íbúðinni hafi mátt sjá að búið hafi verið að vinna miklar skemmdir á íbúðinni til viðbótar við þær skemmdir sem kærðar hafi verið í lögreglumáli nr. 008-2014-[...]. Þá hafi starfsmaður Félagsþjónustunnar einnig komið að logandi sprittkerti á blaðabunka.
Lögreglumál nr. 008-2014-[...], 1. mgr. 257. gr. almennra hegningarlaga:
Í þágu ofangreinds máls, vegna tilkynningar starfsmanns Félagsþjónustunnar um meint eignaspjöll og hugsanlega tilraun til íkveikju hafi varnaraðili verið handtekinn og vistaður í fangaklefa. Er lögregla hafi komið að varnaraðila skömmu síðar í fangaklefanum hafi hann reynt að bíta sig í úlnliðinn við púls þannig að úr blæddi. Skömmu síðar hafi svo verið komið að varnaraðila þar sem hann hafi vafið teppi utan um hálsinn á sér og hert að. Hafi hann svo hafið að skalla höfði sínu í veggi fangaklefans. Hafi varnaraðili verið færður á geðdeild. Í fyrstu hafi verið grunur um alvarlegt geðrof hjá varnaraðila. Eftir því sem liðið hafi á dvöl hans hafi læknar talið að varnaraðili væri ekki geðveikur í þeim skilningi að nauðsynlegt væri að nauðungarvista hann lengur en til 12. maí 2014. Eftir nokkra daga á geðdeild hafi varnaraðili verið farinn að sýna af sér ógnandi hegðun í garð starfsfólks og sjúklinga. Af þeim sökum hafi lögregla verið kölluð til 9. maí 2014. Hafi varnaraðili ekki viljað sætta sig ekki við þann kvöldmat sem honum hafi staðið til boða og gripið gítar sem hann hafi sveiflað í kringum sig uns hann hafi kastað honum í áttina að stafsmanni deildarinnar. Hafi gítarinn lent á vegg skammt frá starfsmanninum og brotnað. Hafi atvikið verið litið alvarlegum augum og starfsmenn deildarinnar ekki treyst sér til að vista varnaraðila lengur.
Samkvæmt upplýsingum frá Interpol í [...] sé varnaraðili þekktur af þarlendum lögregluyfirvöldum vegna ofbeldismála. Hafi varnaraðili verið þekktur af þarlendum yfirvöldum undir öðru nafni og öðrum fæðingardegi. Samkvæmt upplýsingum frá dönsku lögreglunni sé varnaraðili þekktur þar í landi undir nafninu Y, fæddur [...]. Hafi samanburður á fingraförum leitt í ljós að um sama aðilann hafi verið að ræða þrátt fyrir mismunandi nöfn og fæðingardag. Fyrir skömmu hafi íslensk yfirvöld fengið staðfestingu frá Interpol í [...] um að X héti raunverulega Z, fæddur [...], ríkisborgari [...]. Hann hafi breytt nafni sínu [...] 2004 en hafi áður heitið Y og hafi haft sömu kennitölu. Þá hafi jafnframt komið fram í þeim upplýsingum að hann hefði kvænst A, fæddri [...] sem hefði fengið við það tilefni nafnið B. Talið sé að hún gangi undir nafninu C, fædd [...] í [...]. Þá hafi komið fram í upplýsingunum að [...] hafi hann lagt fram fæðingavottorð fyrir son sinn, D, fæddan [...] en talið sé að barnið gangi undir nafninu E, fæddur [...] í [...]. Varnaraðili og ætluð eiginkona hans muni hafa eignast annað barn sitt [...], að nafni F.
Málsástæður og lagarök:
Lögreglustjóri kveðst byggja kröfu þessa á 7. mgr. gr. 29. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga og b. lið 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Af framansögðu og með vísan til gagna málsins telji lögregla rökstuddan grun til að ætla að varnaraðili gefi rangar upplýsingar um hver hann sé og hafi hann sýnt af sér hegðun sem gefi til kynna að af honum stafi hætta og kunni hann að grípa til frekari ofbeldis eða hótana um ofbeldi gangi hann laus. Þá sé jafnframt vísað til meðfylgjandi hættumats greiningardeildar Ríkislögreglustjóra. Sé það jafnframt mat lögreglustjóra að ætla megi að varnaraðili muni reyna að komast úr landi eða leynast ellegar koma sér með öðrum hætti undan málsókn eða fullnustu refsingar, enda hafi hann sýnt það að hann virði ekki tilkynningaskyldu. Þá hafi varnaraðili borið um það í framburðarskýrslu að vilja yfirgefa landið.
Með vísan til alls framangreinds, gagna málsins, 7. mgr. 29. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga, sbr. lög nr. 86/2008 og b. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála telji lögreglustjóri nauðsynlegt að varnaraðila verði gert að sæta gæsluvarðhaldi til föstudagsins 19. september 2014, kl. 16:00.
Í 7. mgr. 29. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga segir að neiti útlendingur að gefa upp hver hann er, rökstuddur grunur sé um að hann gefi rangar upplýsingar um hver hann er eða hann sýni af sér hegðun sem gefur til kynna að af honum stafi hætta, sé heimilt að handtaka útlendinginn og úrskurða í gæsluvarðhald. Ekki verður útilokað að varnaraðili gefi rangar upplýsingar um það hver hann er. Þá liggur fyrir samkvæmt gögnum málsins að lögregla hefur ítrekað haft afskipt af varnaraðila vegna ofbeldisbrota og hótana um ofbeldi. Einnig liggur fyrir að varnaraðila var með ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum 16. maí 2014 gert að halda sig á tilteknu afmörkuðu svæði í [...] og tilkynna sig á lögreglustöð þar í bæ með tilteknum tilgreindum hætti. Rof varð á því af hendi varnaraðila fjórum dögum síðar, en þá munvarnaraðili hafa verið farinn af landi brott. Loks liggur fyrir samkvæmt hættumati Ríkislögreglustjóra að mikil hætta stafi af varnaraðila.
Eins og atvikum er háttað þykir vera grundvöllur til að úrskurða varnaraðila í gæsluvarðhald samkvæmt 7. mgr. 29. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga og b. lið 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Verður því fallist á kröfu Lögreglustjórans á Suðurnesjum eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði.
Jón Höskuldsson héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.
Úrskurðarorð:
Varnaraðila, útlendingi sem kveðst heita X, er gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 19. september 2014, kl. 16:00.