Hæstiréttur íslands

Mál nr. 322/2007


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Mánudaginn 18

 

Mánudaginn 18. júní 2007.

Nr. 322/2007:

Ákæruvaldið

(Jón H. Snorrason saksóknari)

gegn

X

(Hilmar Ingimundarson hrl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi áfram sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli c. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Hrafn Bragason, Markús Sigurbjörnsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 13. júní 2007, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 15. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 13. júní 2007, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi uns dómur gengi í máli hans, þó ekki lengur en til miðvikudagsins 27. júní 2007 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 13. júní 2007.

             Lögreglustjórinn  á höfuðborgarsvæðinu hefur í dag krafist þess fyrir Héraðsdómi Reykjaness að X, [kt. og heimilisfang],  verði með úrskurði gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í máli hans, þó eigi lengur en til miðvikudagsins 27. júní nk. kl. 16:00.  

Krafan er reist á ákvæðum c-liðar 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991. Fyrir dóminum mótmælti ákærði kröfu lögreglustjórans um áframhaldandi gæsluvarðhald.

Í kröfu lögreglustjórans kemur fram að ákærði hafi sætt gæsluvarðhaldi frá 12. janúar sl. á grunsvelli c. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991, nú síðast með dómi Hæstaréttar Íslands nr. 267/2007, til dagsins í dag kl. 16:00.

Með ákæru lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 31. janúar 2007, hafi verið höfðað opinbert mál á hendur ákærða, þar sem honum sé gefið að sök brot gegn 1. mgr. 259. gr., 244. gr., 244. gr. sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga, auk fíkniefnalagabrots. Með tveimur ákærum lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, dags. 22. febrúar og 22. mars sl., séu ákærða gefin að sök fjölmörg auðgunar- og fjármunabrot, auk fíkniefna- og umferðarlagabrota.  Þá hafi ríkissaksóknari gefið út ákæru á hendur ákærða 29. mars sl. fyrir brot gegn valdstjórninni.  Aðalmeðferð í málum þessum hafi hafist 27. apríl sl. og framhald aðalmeðferðar farið fram 23. maí sl. og hafi málin þá verið dómtekin. Málin séu rekin undir málsnúmerinu S-64/2007. Beðið sé nú dómsuppkvaðningar.

Við rannsókn mála ákærða hafi komið í ljós að ákærði sé í mikilli óreglu og án atvinnu.  Brotaferill hans hafi verið samfelldur, en hann hafi hlotið 9 mánaða fangelsisdóm fyrir rán 6. júní 2006 og hafi hann lokið afplánun dómsins 29. nóvember sl.  Þann 23. febrúar hafi honum með dómi Héraðsdóms Reykjaness verið gert að sæta fangelsi í 15 mánuði fyrir fjölda hegningarlaga- og umferðarlagabrota.  Sá dómur sé ekki fullnustuhæfur, þar sem ákærði hafi áfrýjað honum til Hæstaréttar Íslands.

Með vísan til brotaferils ákærða sé það mat lögreglustjóra að hann muni halda áfram afbrotum verði hann látinn laus.  Fyrir liggi mat Hæstaréttar um nauðsyn þess að ákærði sæti áfram gæsluvarðhaldi og hafi ekkert fram komið sem geti breytt því mati.

Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og c.-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.

Með dómi Hæstaréttar í máli nr. 267/2007 sem upp var kveðinn 15. maí sl. var staðfestur úrksurður Héraðsdóms Reykjaness um að skilyrði væru til að ákærði sætti áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli c. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 þar til dómur gengi í máli hans, þó ekki lengur en til dagsins í dag. Er ekkert það fram komið að leiði til breytts mats á því að skilyrði nefndrar lagagreinar teljist uppfyllt. Ákærumál á hendur ákærða var dómtekið 23. maí sl. og er að vænta dóms í því fljótlega, en málið er umfangsmikið. Verður því fallist á kröfu lögreglustjórans um áframhaldandi gæsluvarðhald og þykja ekki efni til að marka því skemmri tíma en lögreglustjóri krefst.

Halldór Björnsson, settur héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

Úrskurðarorð:

             Ákærði, X, sæti áfram gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í máli hans, þó eigi lengur en til miðvikudagsins 27. júní 2007 kl. 16.