Hæstiréttur íslands

Mál nr. 494/2002


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Miðvikudaginn 6

 

Miðvikudaginn 6. nóvember 2002.

Nr. 494/2002.

Lögreglustjórinn í Reykjavík

(Egill Stephensen saksóknari)

gegn

X

(enginn)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. A liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Hæstiréttur staðfesti úrskurð héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Garðar Gíslason, Árni Kolbeinsson og Ingibjörg Benediktsdóttir.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 4. nóvember 2002. Kærumálsgögn bárust réttinum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 4. nóvember 2002, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 13. nóvember nk. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Verður að ætla að varnaraðili kæri til að fá  úrskurð héraðsdómara felldan úr gildi.

Sóknaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði staðfestur.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 4. nóvember 2002.

   Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur krafist þess X verði á grundvelli a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála, nr. 19/1991 gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 13. nóvember 2002, kl. 16:00.

   Í greinargerð lögreglustjóra kemur fram að í gær um kl. 14.43 hafi lögreglu verið  tilkynnt um yfirstandandi innbrot í fyrirtækið [...] í Reykjavík. Þar hafði verið brotist inn og stolið tölvubúnaði og hugbúnaði að verðmæti alls um kr. 13.000.000-15.000.000. Hafi vitni komið að einum aðila á vettvangi og hafi maður flúið af vettvangi sest inn í bifreiðina [...]. Skömmu síðar hafi lögreglu verið tilkynnt um að tveir drengir væru að bera ýmsa muni úr ofangreindri bifreið og í gám við [...]. Þegar lögregla kom á vettvang sá hún framangreindan X og passaði lýsing vitnis á klæðaburði og útliti eins mannanna á innbrotsstað við klæðaburð og útlit kærða.  Þegar hann varð lögreglu var hljóp hann í burtu en náðist skömmu síðar.

   Rannsókn málsins sé á frumstigi, m.a. er allt þýfið ófundið og þá hafi lögregla rökstuddan grun um að fleiri en kærði séu viðriðnir brotið. Vegna rannsóknarhagsmuna þykir nauðsynlegt að [X] sæti gæsluvarðhaldi, svo hann fái ekki tækifæri til að spilla sakargögnum eða hafa samband við aðra þá sem tengst geta málinu eða komist undan.

   Að mati lögreglunnar séu því miklir hagsmunir af því að orðið verði við kröfu hennar svo ofangreint mál verði upplýst.

   Kærði er grunaður um brot gegn 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sem varðað getur fangelsisrefsingu. Kærði hefur neitað sakargiftum. Rann­sóknar­­gögn, sem fyrir liggja, leiða hins vegar til þess að rökstuddur grunur verður talinn fram kominn um aðild kærða að brotinu.  Með hliðsjón af því að rannsókn málsins er á byrjunarstigi og hætta sé á því að kærði geti torveldað rannsókn málsins fari hann frjáls ferða sinna með því meðal annars að hafa samband við aðra sem kunna að tengjast ætluðu broti  þykja skilyrði a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála vera fyrir hendi og ber að taka til greina kröfu lögreglustjórans í Reykjavík um að kærði sæti gæsluvarðhaldi eins og hún er fram sett.

Sigurður H. Stefánsson héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

   Kærði, X, skal sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 13. nóvember 2002, kl. 16:00.