Hæstiréttur íslands
Mál nr. 494/2005
Lykilorð
- Ómerking héraðsdóms
- Heimvísun
- Málsástæða
|
|
Fimmtudaginn 18. maí 2006. |
|
Nr. 494/2005. |
Bros auglýsingavörur ehf. (Jónas A. Aðalsteinsson hrl.) gegn Van Straaten B.V. (Tómas Jónsson hrl.) |
Ómerking héraðsdóms. Heimvísun. Málsástæður.
V höfðaði mál á hendur B til greiðslu viðskiptareikninga. Í bókun við aðalmeðferð málsins í héraði var þess getið að af hálfu B væri farið fram á að ný málsástæða kæmist að um aðildarskort V. V mótmælti því að B mætti koma að þessari málsástæðu þar sem hún væri of seint fram komin. Í forsendum héraðsdóms var í engu vikið að þessari málsástæðu hvorki að formi, sbr. 5. mgr. 101. gr. laga um meðferð einkamálalaga, né tekin efnisleg afstaða til hennar. Af þeim sökum og með vísan til f. liðar 1. mgr. 114. gr. laga um meðferð einkamála varð ekki hjá því komist að ómerkja hinn áfrýjaða dóm og vísa málinu heim í hérað til munnlegs flutnings og dómsálagningar að nýju.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingibjörg Benediktsdóttir, Hjördís Hákonardóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson.
Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 28. nóvember 2005. Hann krefst aðallega sýknu af kröfu stefnda og málskostnaðar í héraði og fyrir Hæstarétti. Til vara krefst hann lækkunar á kröfu stefnda og að málskostnaður í héraði og fyrir Hæstarétti verði felldur niður.
Stefndi krefst staðfestingar héraðsdóms og málskostnaðar fyrir Hæstarétti.
Fyrirtækið Fjölprent ehf. var sameinað áfrýjanda 1. janúar 2003.
Í greinargerð áfrýjanda í héraði var skorað á stefnda að leggja fram viðskiptareikning Fjölprents ehf. hjá stefnda. Stefndi varð við þessari áskorun á dómþingi 24. maí 2005. Meðal skjala, sem þá voru lögð fram, var viðskiptayfirlit sem sýndi að 31. desember 2003 hafði verið færð ráðstöfun 30 krafna samtals að fjárhæð EUR 30.670,91. Texti hverrar færslu fyrir sig er þannig í þýðingu löggilts skjalaþýðanda: „TIL MINNIS ¼ millifærsla Fjölprent til Guni“, en þar mun vera átt við Gunigroup B.V. Investors. Fjöldi þessara krafna, reikningsnúmer og fjárhæðir eru í samræmi við stefnukröfu og gögn málsins. Að þessum færslum loknum var skuld áfrýjanda við stefnda tiltekin 0,00. Við fyrirtöku málsins í héraði 15. september 2005 var bókað að framkvæmdastjóri stefnda myndi gefa skýrslu við aðalmeðferð málsins, en úr því varð ekki. Þess var getið í bókun við aðalmeðferðina 27. október 2005 að af hálfu áfrýjanda væri farið fram á að ný málsástæða kæmist að um aðildarskort stefnda. Var málsástæðan rökstudd með því að stefndi ætti ekki lengur kröfuna samkvæmt viðskiptayfirlitinu 31. desember 2003. Stefndi mótmælti því að áfrýjandi mætti koma að þessari málsástæðu þar sem hún væri of seint fram komin. Í forsendum héraðsdóms er í engu vikið að þessari málsástæðu, hvorki að formi, sbr. 5. mgr. 101. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, né tekin efnisleg afstaða til hennar. Þetta fer í bága við f. lið 1. mgr. 114. gr. laga nr. 91/1991 og verður því ekki hjá því komist að ómerkja hinn áfrýjaða dóm og vísa málinu heim í hérað til munnlegs flutnings og dómsálagningar að nýju.
Rétt er að hvor aðili beri sinn kostnað af málinu fyrir Hæstarétti.
Dómsorð:
Héraðsdómur er ómerktur og málinu vísað heim í hérað til munnlegs flutnings og dómsálagningar að nýju.
Málskostnaður fyrir Hæstarétti fellur niður.
Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur 10. nóvember 2005.
I
Mál þetta, sem dómtekið var hinn 27. október sl., að loknum munnlegum málflutningi, var höfðað fyrir dómþinginu af Van Straaten BV, Schipolweg 939, 2143 CE Boesinghelied, Hollandi, á hendur Bros, auglýsingavörur ehf., Síðumúla 33, Reykjavík, með stefnu áritaðri um birtingu hinn 25. nóvember 2004.
Dómkröfur stefnanda voru þær, að stefndi yrði dæmdur til þess að greiða 30.670,91 EUR, ásamt dráttarvöxtum samkvæmt III. kafla laga nr. 38/2001, af 410,49 EUR frá 7. desember 2000 til 1. maí 2001, en af 756,27 EUR frá þeim degi til 8. maí 2001, en af 5.187,72 EUR frá þeim degi til 14. maí 2001, en af 6.152,00 EUR frá þeim degi til 21. maí 2001, en af 6.638,45 EUR frá þeim degi til 30. maí 2001, en af 8.044,03 EUR frá þeim degi til 20. júní 2001, en af 8.254,58 EUR frá þeim degi til 27. júní 2001, en af 8.980, 63 EUR frá þeim degi til 2. júlí 2001, en af 11.066,21 EUR frá þeim degi til 5. júlí 2001, en af 15.210,13 EUR frá þeim degi til 20. júlí 2001, en af 15.636,68 EUR frá þeim degi til 24. júlí 2001, en af 21.328,56 EUR frá þeim degi til 26. júlí 2001, en af 21.757,38 EUR frá þeim degi til 31. júlí 2001, en af 23.921,55 EUR frá þeim degi til 2. ágúst 2001, en af 28.070,87 EUR frá þeim degi til 16. ágúst 2001, en af 29.404,98 EUR frá þeim degi til 31. ágúst 2001, en af 30.475,79 EUR frá þeim degi til 4. september 2001, en af 30.571,08 EUR frá þeim degi til 11. september 2001, en af 30.670,91 EUR frá þeim degi til greiðsludags. Þá var krafist vaxtavaxta samkvæmt 12. gr. laga nr. 38/2001, er leggist við höfuðstól á 12 mánaða fresti auk málskostnaðar.
Dómkröfur stefnda voru þær aðallega, að hann yrði sýknaður af öllum kröfum stefnanda og að stefnandi yrði dæmdur til þess að greiða honum málskostnað, en til vara að krafa stefnanda yrði lækkuð verulega og málskostnaður látinn falla niður.
II
Umdeild skuld er samkvæmt 30 framlögðum reikningum stefnanda vegna viðskipta málsaðila með ýmiss konar vörur og þjónustu, aðallega prentuð merki og flögg, á tímabilinu 23. nóvember 2000 til 23. ágúst 2001. Reikningarnir eru útgefnir á fyrirtækið Fjölprent á Íslandi, en það fyrirtæki sameinaðist stefnda í júní árið 2003.
Stefndi kveður málavexti vera þá, að Fjölprent ehf. hafi átt í viðskiptum við stefnanda á árunum 1997 fram til ársins 2001. Samskiptum aðila hafi lokið vegna ýmissa ágreiningsmála. Fjölprent ehf. og stefndi sameinuðust á miðju ári 2003.
Stefndi kveður viðskipti aðila hafa verið svokölluð reikningsviðskipti. Stefndi hafi greitt inn á viðskiptareikning stefnanda, í einstöku tilvikum ákveðna tiltekna reikninga, en í öðrum tilvikum án sérstakrar tilgreiningar. Stefnandi hafi ekki sent stefnda reikningsyfirlit síðan á fyrri helmingi ársins 2001.
Stefndi kveðst hafa skuldað stefnanda fé samkvæmt síðasta reikningsyfirliti, sem honum hafi borist frá stefnanda, en á tímabilinu frá 1. febrúar 2001 til 26. september 2003 hafi stefndi greitt samtals 36.565,43 EUR í peningum til stefnanda auk þess sem stefndi hafi hafnað móttöku á vörum frá stefnanda, vegna galla á vörunum, að verðmæti samtals 9.445,31 EUR, og hafi sú fjárhæð verið skuldfærð á viðskiptareikning stefnda í fullu samkomulagi við framkvæmdastjóra hans. Samtals nemi þessar innborganir 46.010,74 EUR og miðað við það hafi stefndi ofgreitt stefnanda. Stefndi kveðst ítrekað hafa krafið stefnda um reikningsyfirlit, en án árangurs.
Stefndi kveðst hafa innt síðustu greiðslu af hendi til stefnanda að fjárhæð 10.000 EUR inn á reikning eiginkonu framkvæmdastjóra stefnanda, hinn 26. september 2003, en framkvæmdastjóri stefnanda hafi sagt stefndu að greiða inn á þann reikning, eða inn á reikningsnúmerið 253169607. Framkvæmdastjóri stefnda innti þessa greiðslu af hendi, persónulega, vegna þess að hann hafi tekið það að sér persónulega að halda fyrirtækinu skaðlausu af viðskiptum Fjölprents ehf. við stefnanda í framhaldi af samruna Fjölprents ehf. og Bros ehf. í júlí 2003.
III
Stefnandi byggir kröfur sínar á 30 reikningum vegna viðskipta málsaðila á tímabilinu frá 23. nóvember 2000 til 23. ágúst 2001, en á þeim tíma hafi stefndi keypt af stefnanda vörur og þjónustu. Skuldin hafi ekki verið greidd af stefnda.
Um lagarök vísar stefnandi til meginreglna kröfuréttarins um efndir fjárskuldbindinga.
Kröfu um dráttarvexti byggir stefnandi á III. kafla laga nr. 38/2001, um vexti og verðtryggingu.
Kröfu um málskostnað byggir stefnandi á 1. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991, um meðferð einkamála.
IV
Stefndi byggir kröfur sínar á því, að viðskiptin hafi verið reikningsviðskipti og staða þeirra viðskipta komi því einungis rétt fram á viðskiptareikningi. Stefnandi hafi kosið að stefna málinu inn á grundvelli reikninga, án þess að geta innborgana stefnda og því komi raunveruleg staða viðskipta aðila ekki fram í þeim gögnum sem stefnandi byggi kröfu sína á. Þetta komi glögglega fram á þeim greiðsluskjölum sem stefndi leggi fram í málinu, en þar sé ýmist tilgreind númer á reikningum eða ekki. Framlögð greiðsluskjöl stefnda til stefnanda nemi samtals hærri fjárhæð en umkrafðir reikningar.
Innborganir stefnda á tímabilinu 21. febrúar 2001 til 11. júlí 2001 hafi numið samtals 26.565,43 EUR. Verðmæti vara sem hafnað hafi verið af stefnda hafi numið 876.147 krónum, sbr. dskj. nr. 13, dagsett 20. september 2001, og miðað við gengi EUR á þeim degi, nemi sú fjárhæð 9.445,31 EUR. Þeim vörum hafi verið fargað af stefnda eftir beiðni stefnanda, þar sem stefnandi hafi talið þá aðferð betri en að endursenda vörurnar. Samtals hafi stefndi greitt stefnanda hærri fjárhæð en nemi stefnufjárhæð.
Varakröfu sína byggir stefndi á sáttaboði að fjárhæð 6.602,90 EUR, auk vaxta samkvæmt íslenskum vaxtalögum, sem stefndi hafi boðið stefnanda án viðurkenningar á greiðsluskyldu.
Stefndi mótmælir vaxtakröfu stefnanda. Greiðslukrafa stefnanda hafi verið sett fram í bréfi dagsettu 31. ágúst 2005 og eigi dráttarvextir að reiknast frá þeim degi samkvæmt 3. mgr. 5. gr. laga nr. 38/2001. Mótmælir stefndi að gildi hins staðlaða texta sem fram komi á reikningum hafi verið gildandi í viðskiptum aðila.
Um lagarök vísar stefndi til almennra reglna kröfu- og samningaréttar auk ákvæða 28. gr. laga nr. 91/1991, um meðferð einkamála.
V
Óumdeilt er að málsaðilar áttu í viðskiptum og keypti stefndi af stefnanda ýmsar vörur og þjónustu. Samkvæmt framburði fyrrverandi framkvæmdastjóra stefnda við aðalmeðferð málsins þá hafði stefndi keypt þær vörur og þegið þá þjónustu sem krafið er um greiðslu á í málinu samkvæmt framlögðum reikningum.
Stefndi byggir á því að um reikningsviðskipti hafi verið að ræða og hafi allir umkrafðir reikningar verið greiddir, m.a. með því að farga hafi þurft vörusendingu frá stefnanda, sem hafi verið gert með hans samþykki, einnig hafi stefndi greitt 10.000 EUR inn á reikning nr. 253169607.
Í málinu nýtur aðeins við fullyrðinga fyrrverandi framkvæmdastjóra stefnda, sem og starfsmanna stefnda, um að farga hafi þurft vörusendingu frá stefnanda. Gegn neitun stefnanda er því með öllu ósönnuð sú fullyrðing stefnda að þetta hafi verið gert með samþykki stefnanda og andvirði vörusendingar að fjárhæð 9.445,31 EUR eigi að koma til frádráttar stefnufjárhæðinni. Kemur þá til skoðunar hvort greiðsla að fjárhæð 10.000 EUR, sem stefndi innti af hendi inn á reikning nr. 253169607, eigi að koma til lækkunar dómkröfum, eins og stefndi heldur fram. Samkvæmt framlögðum greiðsluseðli var greiðsla þessi innt af hendi inn á reikning í eigu Van Straaten en ekki stefnanda og kemur þar ekkert fram hvað er verið að greiða fyrir. Þar sem ekki liggur fyrir að umrædd innborgun hafi borist stefnanda, er ekki unnt að fallast á, gegn neitun stefnanda, að um greiðslu á skuld stefnda við stefnanda hafi verið að ræða.
Með því að ekkert er fram komið sem sýnir fram að stefndi hafi greitt stefnanda umkrafða skuld verður, samkvæmt framanrituðu, því krafa stefnanda á hendur stefnda tekin til greina eins og hún er fram sett, með dráttarvöxtum eins og krafist er, enda bera framlagðir reikningar með sér að gjalddagi þeirra sé 14 dögum frá útgáfudegi og hefur stefndi ekki sýnt fram á að annað hafi gilt í viðskiptum aðila.
Eftir þessari niðurstöðu ber að dæma stefnda til að greiða stefnanda málskostnað, sem þykir hæfilega ákveðinn 300.000 krónur.
Hervör Þorvaldsdóttir, héraðsdómari, kvað upp dóm þennan.
D Ó M S O R Ð :
Stefndi, Bros, auglýsingavörur ehf., greiði stefnanda, Van Straaten B.V., 30.670,91 EUR, ásamt dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001, af 410,49 EUR frá 7. desember 2000 til 1. maí 2001, en af 756,27 EUR frá þeim degi til 8. maí 2001, en af 5.187,72 EUR frá þeim degi til 14. maí 2001, en af 6.152,00 EUR frá þeim degi til 21. maí 2001, en af 6.638,45 EUR frá þeim degi til 30. maí 2001, en af 8.044,03 EUR frá þeim degi til 20. júní 2001, en af 8.254,58 EUR frá þeim degi til 27. júní 2001, en af 8.980, 63 EUR frá þeim degi til 2. júlí 2001, en af 11.066,21 EUR frá þeim degi til 5. júlí 2001, en af 15.210,13 EUR frá þeim degi til 20. júlí 2001, en af 15.636,68 EUR frá þeim degi til 24. júlí 2001, en af 21.328,56 EUR frá þeim degi til 26. júlí 2001, en af 21.757,38 EUR frá þeim degi til 31. júlí 2001, en af 23.921,55 EUR frá þeim degi til 2. ágúst 2001, en af 28.070,87 EUR frá þeim degi til 16. ágúst 2001, en af 29.404,98 EUR frá þeim degi til 31. ágúst 2001, en af 30.475,79 EUR frá þeim degi til 4. september 2001, en af 30.571,08 EUR frá þeim degi til 11. september 2001, en af 30.670,91 EUR frá þeim degi til greiðsludags.
Stefndi greiði stefnanda 300.000 krónur í málskostnað.