Hæstiréttur íslands
Mál nr. 168/2000
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Þriðjudaginn 2. maí 2000. |
|
Nr. 168/2000. |
Ákæruvaldið (Kolbrún Sævarsdóttir settur saksóknari) gegn Sverri Þór Gunnarssyni (Helgi Jóhannesson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
Úrskurður héraðsdóms um að S skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Haraldur Henrysson, Arnljótur Björnsson og Markús Sigurbjörnsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 26. apríl 2000, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 26. apríl 2000, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 28. júní nk. kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að í stað gæsluvarðhalds verði sér bönnuð för úr landi.
Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 26. apríl 2000:
Ríkissaksóknari hefur krafist þess, að Sverri Þór Gunnarssyni, kt. 220572-4719, Sporðagrunn 4, Reykjavík, verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur fellur í máli hans, en þó eigi lengur en til miðvikudagsins 28. júní nk. kl. 16.00.
Með ákærum ríkissaksóknara 17. og 18. þ.m. voru höfðuð opinber mál á hendur kærða o.fl., þar sem honum er gefinn að sök stórfelldur innflutningur fíkniefna. Í ákæru, dagsettri 17. þ.m., er ákærða m.a. gefið að sök að hafa frá ársbyrjun 1998 og til september 1999 í um 15 skipti, með milligöngu meðákærðu Andrésar Ingibergssonar og Guðmundar Ragnarssonar, móttekið frá meðákærðu Gunnlaugi Ingibergssyni og Herbirni Sigmarssyni samtals um 105 kg af kannabis og selt hérlendis, en fíkniefni þessi hafi verið send til landsins frá Danmörku. Í ákæru, dagsettri 18. apríl sl., er ákærða m.a. gefið að sök ásamt meðákærðu Júlíusi Kristófer Eggertssyni og Rúnari Ben Maitsland staðið að kaupum á samtals 43 kg af hassi, 17 kg af marihuana og 2 kg af kókaíni í Amsterdam, sem þeir ætluðu til söludreifingar hérlendis. Í sömu ákæru er ákærða gefið að sök að hafa selt tveimur nafngreindum mönnum hérlendis fíkniefni. Brot ákærða eru talin varða við 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Fyrir liggur sterkur grunur um, að ákærði hafi framið brot, sem varðað getur hann allt að 10 ára fangelsi. Um er að ræða stórfellt fíkniefnamisferli, en umræddur innflutningur frá Danmörku er í ákæru talinn hafa átt sér stað með skipulögðum hætti hátt á annað ár. Brot það, sem kærða er gefið að sök, er þess eðlis að telja má gæsluvarðhald nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna. Með vísan til framanskráðs, framlagðra gagna, hæstaréttardóma í málum ákærða frá 15. nóvember og 20. mars sl. og 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19, 1991 um meðferð opinberra mála, er fallist á kröfu ríkissaksóknara, eins og hún er fram sett.
Helgi I. Jónsson héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Úrskurðarorð:
Ákærði, Sverrir Þór Gunnarsson, sæti áframhaldandi gæsluvarðhaldi þar til dómur fellur í máli hans, en þó eigi lengur en til miðvikudagsins 28. júní nk. kl. 16.00.