Hæstiréttur íslands

Mál nr. 393/2000


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Þriðjudaginn 24

 

Þriðjudaginn 24. október 2000.

Nr. 393/2000.

 

Lögreglustjórinn í Reykjavík

(Sigurður Gísli Gíslason fulltrúi)

gegn

X

(Karl Sigurbjörnsson hdl.)

                                                        

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

 

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Garðar Gíslason, Gunnlaugur Claessen og Markús Sigurbjörnsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 19. október 2000, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 20. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 19. október 2000, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 9. nóvember nk. kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 19. október 2000.

Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur krafist þess að X, [...], verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 9. nóvember 2000, kl. 16.00.

[...]

Verið er að rannsaka ætluð brot kærða gegn fíkniefnalöggjöfinni sem gætu varðað hann fangelsisrefsingu skv. 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19,1940 ef þau sönnuðust.  Rannsóknargögn gefa ástæðu til að ætla að kærði tengist fíkni­efnainnflutningi þannig að refsivert sé.   Nú í nótt og morgun voru aðilar sem kunna að tengjast brotum þeim sem kærði er grunaður um handteknir og er ljóst af rannsóknargögnum að brýnir rannsóknarhagsmunir eru í því fólgnir að kærði sæti gæsluvarðhaldi áfram eins og rannsókn málsins er nú komið.  Þykir því rétt sbr. a- lið 103. gr. laga nr. 19,1991 að verða við kröfu lögreglustjórans í Reykjavík um áframhaldandi gæsluvarðhald kærða og þegar litið er til hinna brýnu rannsóknar­hagsmuna, sem áður er vísað til, þykir mega fallast á kröfu um lengd gæsluvarðhaldstímans.

Allan Vagn Magnússon héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

Úrskurðarorð:

Kærði, X, sæti áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 9. nóvember 2000, kl. 16.00.