Hæstiréttur íslands
Mál nr. 766/2015
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
Reifun
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason og Karl Axelsson og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 10. nóvember 2015, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 10. nóvember 2015, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 1. desember 2015 klukkan 16 og einangrun meðan á því stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Fallist verður á það með héraðsdómi að fullnægt sé skilyrðum a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 til að varnaraðila verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi og einangrun meðan á því stendur, sbr. 2. mgr. 98. gr. laganna. Mál þetta er umfangsmikið og hefur þurft við rannsókn þess að leita atbeina erlendra lögregluyfirvalda. Þótt veita verði lögreglu nokkurt svigrúm við rannsóknina er þess að gæta að varnaraðili hefur setið í gæsluvarðhaldi í einangrun frá 29. september 2015. Að því gættu þykir hæfilegt að gæsluvarðhaldinu verði markaður sá tími sem greinir í dómsorði.
Dómsorð:
Varnaraðili, X, sæti gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 24. nóvember 2015 klukkan 16 og einangrun meðan á því stendur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 10. nóvember 2015.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur í dag krafist þess að kærða, X, kt. [...], verði áfram gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 1. desember nk., kl. 16.00. Þá er þess krafist að kærða verði gert að sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.
Kærði mótmæli kröfunni.
Í greinargerð lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu segir að lögreglan hafi til rannsóknar stórfellt fíkniefnalagabrot er varði innflutning á sterkum fíkniefnum til landsins. Hinn 28. september sl. hafi lögreglan lagt hald á rúmlega 19,5 kg af amfetamíni og rúmlega 2,5 kg af kókaíni sem hafi fundist í bifreið sem staðsett hafi verið við gistiheimili að [...] í [...]. Tveir erlendir menn hafi verið handteknir í húsnæðinu grunaðir um aðild að innflutningi fíkniefnanna til landsins. Lögreglan hafi haft eftirlit með bifreiðinni sem innihélt fíkniefnin í nokkra daga. Við það eftirlit hafi lögreglan ítrekað orðið vör við aðra bifreið sem hafi fylgt hinni bifreiðinni eftir. Við frekari skoðun lögreglu hafi komið í ljós að um hafi verið að ræða bílaleigubifreiðir sem kærði X hafi verið skráður leigutaki að. Kærði hafi verið handtekinn skammt frá gistiheimilinu á bifreiðinni FS-X38 og hafi lögregla fundið í bifreiðinni sjónauka, lambhúshettu og rúmlega 15.600 evrur sem svari til rúmlega 2,2 milljóna íslenskra króna í bifreiðinni. Lögregla telji að kærði hafi verið að fylgjast með meðkærðu og bifreiðinni. Við rannsókn lögreglu hafi einnig komið í ljós að kærði hafi verið staðsettur á [...] sama dag og [...] kom til landsins 22. september sl.
Kærði hafi neitað sök við skýrslutöku hjá lögreglu. Framburði kærða beri ekki saman við þau gögn sem lögreglan hafi undir höndum, framburð meðkærða og vitna. Kærði hafi að öðru leyti lítið kosið að tjá sig hjá lögreglu eða kveðst ekki muna eftir atvikum máls. Vísað sé í gögn málsins varðandi nánari framburð kærða, meðkærða og þau gögn sem liggi fyrir hjá lögreglu.
Með heimild Héraðsdóms Reykjaness hafi lögreglan skoðað síma og fjármálagögn kærða. Við þá skoðun hafi margt komið fram sem styrki grun lögreglu. Ljóst sé að kærði hafi nokkuð fjármagn í höndunum og virðist miklir fjármunir fara á milli kærða og meðkærða Y hér á landi og erlendis. Við skoðun á fjármálagögnum kærða og meðkærða Y hafi komið í ljós að á tímabilinu frá 22. júlí til 10. september hafi verið lagðar rúmlega níu milljónir inn á 30 Ikort, en 25 þeirra hafi fundist á heimili X. Þá megi sjá að rúmlega átta milljónir hafi verið teknar út af þessum kortum í hraðbönkum í Evrópu á tímabilinu frá 22. júlí til 17. september. Lögreglan telji að þessir peningar hafi verið notaðir til að greiða fyrir fíkniefnasendinguna. Þá hafi lögreglan undir höndum gögn sem sýni það að kærði hafi á þessu tímabili tekið bifreiðar á leigu. Bifreiðunum hafi verið ekið yfir 2000 km á meðan kærði hafi haft umráð yfir þeim og hafi komið í ljós að þrisvar sinnum á þessu sama tímabili hafi kærði verið staðsettur á [...]. Í framburðum meðkærðu hafi komið fram að erlendir aðilar hafi tekið þátt í skipulagningu innflutningsins og hafi þeir verið í samskiptum eða í samstarfi við aðila hér á landi sem fylgst hafi með ferðum bifreiðarinnar.
Kærði X hafi sætt gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknar málsins frá 29. september sl., nú síðast með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness í máli nr. [...]/2015, sem hafi verið staðfestur með dómi Hæstaréttar Íslands í málinu nr. [...]/2015.
Rannsókn lögreglu er að hluta til unnin í samstarfi við erlend yfirvöld. Rannsókn lögreglu beinist nú helst að því að hafa upp á samverkamönnum kærðu í [...], en einnig hafi verið óskað eftir aðstoð annarra erlendra lögregluyfirvalda. Í framburðum meðkærðu komi fram að tveir [...] aðilar hafi staðið að skipulagningu innflutningsins og telji lögreglan að þeir hafi gert það í samstarfi við íslenska samverkamenn. Óskað hafi verið eftir því við [...] yfirvöld að þessir einstaklingar verði færðir til yfirheyrslu hjá lögreglu og að framkvæmdar verði húsleitir á heimili þeirra til að afla frekari sönnunargagna og leggja hald á muni sem skipt geti máli við rannsókn málsins. Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu vinni nú að þessu í samstarfi við [...] yfirvöld. [...] yfirvöld hafi upplýst íslensku lögregluna um það að farið verði fram á húsleit á heimili annars þeirra nú á næstu dögum og muni hann í kjölfarið vera boðaður í skýrslutöku. Nauðsynlegt sé á þessu stigi máls að kærði sæti áfram gæsluvarðhaldi svo hægt sé að koma í veg fyrir að kærði geti sett sig í samband við meinta samverkamenn eða þeir sett sig í samband við hann. Þá geti kærði einnig komið undan gögnum með sönnunargildi sem lögreglan hafi ekki lagt hald á nú þegar. Þykir þannig brýnt að vernda rannsóknarhagmuni á þessu stigi málsins.
Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 og b. liðar 1. mgr. 99. gr. sömu laga, er þess krafist að krafan nái fram að ganga eins og hún er sett fram.
Með vísan til þess sem fram kemur í greinargerð lögreglu og rannsóknargögnum málsins þykir kominn fram rökstuddur grunur um að kærði eigi aðild að innflutningi á miklu magni af sterkum fíkniefnum til landsins. Án vafa er að fíkniefnin hafi verið ætluð til sölu og dreifingar hér á landi og hefur lögreglan upplýsingar um það að fleiri aðilar tengist málinu. Rannsókn málsins er umfangsmikil og er unnið að henni í samstarfi við [...] yfirvöld. Telur lögreglan brýnt að kærði sæti á þessu stigi áfram gæsluvarðhaldi þar sem ljóst sé að hann geti sett sig í samband við meinta samverkamenn gangi hann laus eða þeir sett sig í samband við hann. Þá gæti kærði einnig komið undan sönnunargögnum sem lögreglan hafi ekki lagt hald á nú þegar og afmáð ummerki eftir brot. Fallist er á þessa ályktun lögreglu. Skilyrðum a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála er því fullnægt.
Kærði hefur sætt einangrun í gæsluvarðhaldinu frá 29. september síðastliðinn. Til verndar rannsóknarhagsmunum þykir brýnt að skýrslur verði teknar af ætluðum samverkamönnum og vitnum í [...] áður en einangrun kærða verður aflétt. Með heimild í 2. mgr. 98. gr. laga nr. 88/2008 er fallist á að kærði sæti enn um sinn einangrun í gæsluvarðhaldinu, en brot það sem kærði er sakaður um getur varðað meira en 10 ára fangelsi.
Með vísan til framangreinds er fallist á kröfu lögreglustjóra um að kærða verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, og einangrun eins og krafist er, sbr. b. lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008, og nánar greinir í úrskurðarorði.
Úrskurð þennan kveður upp Jón Höskuldsson héraðsdómari.
Úrskurðarorð:
Kærði, X, skal sæta gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 1. desember nk., kl. 16:00.
Kærði sæti einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.