Hæstiréttur íslands

Mál nr. 323/2017

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H. B. Snorrason saksóknari)
gegn
X (Þorgils Þorgilsson hdl.)

Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008

Reifun

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma Helgi I. Jónsson hæstaréttardómari og Ingibjörg Benediktsdóttir og Ingveldur Einarsdóttir settir hæstaréttardómarar.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 22. maí 2017, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 19. maí 2017, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 16. júní 2017 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, til vara að farbanni verði beitt í stað gæsluvarðhalds, en að því frágengnu að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Varnaraðili er undir sterkum grun um brot gegn 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sem varðað getur fangelsi allt að 12 árum. Með þessari athugasemd en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

                                             Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 19. maí 2017.

                Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur í dag krafist þess að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði að X, fæddur [...], verði áfram gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 16. júní 2017, kl. 16. 

                Í greinargerð lögreglustjóra segir að hann hafi nú til rannsóknar mál er varðar innflutning fíkniefna hingað til lands. Lögreglu hafi borist upplýsingar þess efnis að til stæði að flytja inn mikið magn af sterkum fíkniefnum hingað til lands með ferjunni Norrænu. Lögreglan hafi því verið með eftirlit á tollsvæðinu á Seyðisfirði þegar ferjan kom hingað til lands 25. apríl sl. 

Bifreiðin [...] hafi vakið athygli lögreglu og tollvarða og verið tekin til frekari skoðunar. Ökumaður bifreiðarinnar hafi verið A og hafi afskipti lögreglu og tollvarða af honum og bifreiðinni orðið til þess að grunsemdir vöknuðu um að í bifreiðinni væru falin fíkniefni. Lögreglan hafi í framhaldinu fengið heimild Héraðsdóms Reykjaness til að koma fyrir eftirfararbúnaði og hljóðupptöku í bifreiðinni sem og í farsíma A. 

Bifreiðinni hafi verið fylgt eftir til Reykjavíkur og hafi A ekið sem leið lá til Keflavíkur þar sem hann hafi sótti kærða á flugvöllinn. Þeir hafi ekið að gistiheimilinu [...] þar sem þeir hafi átt pantað herbergi.

Þann 27. apríl sl. hafi A og kærði farið í verslunina [...] og keypt þar topplyklasett, sexkanta, nælonhanska, skrúfjárn og vigt. Það hafi þá verið ætlun lögreglu að þessi verkfæri yrðu notuð til að ná fíkniefnum úr bifreiðinni. A og kærði hafi verið handteknir síðdegis 27. apríl sl. á gistiheimilinu [...] með rúmlega 1 kg af MDMA. Þegar þeir hafi verið handteknir hafi kærði verið búinn að setja um helming efnanna inn á vasa á yfirhöfn sinni. Við leit í bifreiðinni [...] hafi fundist um 2 kg af MDMA, en þau fíkniefni hafi verið í eins pakkningum og fíkniefnin sem áður höfðu fundist í herberginu á gistiheimilinu. Það sé ætlun lögreglu að þeir hafi ætlað að afhenda efnin einhverjum óþekktum aðila.

Samkvæmt niðurstöðu Rannsóknarstofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði sé um mjög sterk efni að ræða, en styrkur MDMA í sýninu hafi verið 80-81%, sem samsvari 95-96% af MDMA klóríði.

Við skýrslutöku hjá lögreglu hafi A verið spurður hvort hann þekkti einhvern á Íslandi. Hann kvaðst vera að heimsækja B vin sinn, en þar eigi hann við kærða. Hann hafi kynnst kærða í gegnum netið, í gegnum auglýsingu um vinnu. Kvaðst hann hafa keyrt frá Póllandi til Hollands. Bremsurnar á bílnum hafi bilað og hafi hann hringt í kærða. Þeir hafi ákveðið að hittast í Hollandi. Hann hafi stoppað á Hótel [...], rétt fyrir utan Haag. Kærði hafi farið með bílinn og verið nokkra klukkutíma í burtu. Samkvæmt sms samskiptum sem A átti við kærða hafi A vitað af fíkniefnunum í bílnum. Í farsíma hans hafi fundist sms samskipti milli hans og kærða frá 23. apríl þar sem A hafi spurt kærða hvað hann eigi að búast við ef þeir myndu taka hann til hliðar þegar hann færi úr ferjunni. Hann hafi síðan fengið svar til baka frá kærða um að hann ætti að vera slakur og rólegur því að hundur og röntgen ættu ekki séns í þetta, að hundur finni þetta ekki. A kvaðst hafa hringt í kærða þegar hann hafi komið til Íslands og þá hafi kærði sagt honum að hann væri að koma með flugvél og að A ætti að sækja hann. Þegar kærði hafi lent hafi kærði hringt í hann, sagt honum að hann væri kominn í gegn og að A ætti að koma að sækja hann.

A hafi verið kynnt að lögregla hafi verið með herbergishlustun á hótelherbergi hans og kærða í herbergi nr. [...] að [...]. Í þeirri hlustun heyrist A spyrja kærða hvort kærði hafi sett þetta í sokka svo það kæmu engin fingraför. A kvaðst ekki getað svara þessu. A kveðst vera alveg saklaus. Hann hafi ekki vitað um þetta, en það gæti verið að einhver hafi sett efnin í bílinn í Hollandi.

Kærði hafi að mestu neitað að tjá sig við skýrslutöku hjá lögreglu. Kvaðst hann hafa komið hingað til lands vegna byggingarmála. Við skoðun á síma hans megi sjá að hann hafi leitað að Opel bíl í janúar. Þá hafi hann einnig leitað að því hvernig eigi að fjarlægja mælaborð úr Opel bifreiðum og leitað að upplýsingum um efnið MDMA. Fram hafi komið í eftirliti lögreglu að kærði hafi hitt mann sem lögregla þekki vegna fíkniefnamála og rætt við hann í dágóða stund. Kærði hafi ekki viljað tjá sig um það.

Rannsókn lögreglu gangi vel en óskað hafi verið eftir aðstoð erlendra yfirvalda við að afla frekari gagna til að fá betri mynd af ferðalagi þeirra A og kærða hingað til lands, en rannsókn málsins beinist m.a. að því að skoða hvenær og hvar fíkninefnunum hafi verið komið fyrir í bílnum og hvort fleiri aðilar tengist málinu. Kærði hafi sætt gæsluvarðhaldi á grundvelli rannsóknarhagsmuna frá 28. apríl sl. og hafi úrskurður héraðsdóms verið staðfestur í Hæstarétti, sbr. dóm í máli nr. 291/2017.

Í ljósi ofangreinds og þeirra gagna sem lögreglan hafi aflað sé það mat lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu að kærði sé undir sterkum grun um aðild að innflutningi á miklu magni af sterkum fíkniefnum hingað til lands. Ljóst sé að fíkniefnin hafi verið ætluð til sölu og dreifingar hér á landi. Með hliðsjón af alvarleika sakarefnis og þess að ríkir almannahagsmunir standi til þess að menn gangi ekki lausir þegar svo stendur á sé þess krafist að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi meðan mál hans er til meðferðar.

Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og 2. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008  er þess krafist að krafan nái fram að ganga eins og hún er sett fram.

                Eins og rakið hefur verið hefur kærði sætt gæsluvarðhaldi frá 28. apríl sl. á grundvelli rannsóknarhagsmuna, sbr. dómur Hæstaréttar í máli nr. 291/2017. Rannsókn málsins er ekki lokið. Samkvæmt rannsóknargögnum er kærði undir sterkum grun um aðild að innflutningi á miklu magni af hættulegum fíkniefnum með miklum styrkleika. Er fallist á með lögreglustjóra að nauðsynlegt sé með tilliti til almannahagsmuna að kærði sæti áfram gæsluvarðhaldi, sbr. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, eins og nánar greinir í úrskurðarorði.

Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari kveður upp þennan úrskurð.

Ú r s k u r ð a r o r ð:

                Kærði, X, sæti áframhaldandi gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 16. júní 2017, klukkan 16:00.