Hæstiréttur íslands

Mál nr. 196/2012


Lykilorð

  • Kærumál
  • Tilhögun gæsluvarðhalds


                                                                                              

Föstudaginn 23. mars 2012.

Nr. 196/2012.

Ákæruvaldið

(Sigríður Friðjónsdóttir saksóknari)

gegn

X

(Inga Lillý Brynjólfsdóttir hdl.)

Kærumál. Tilhögun gæsluvarðhalds.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stæði, á grundvelli b. liðar 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Árni Kolbeinsson, Greta Baldursdóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 21. mars 2012 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 21. mars 2012, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 18. apríl 2012 klukkan 16 og einangrun meðan á því stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi að því er varðar tilhögun gæsluvarðhalds, þannig að kröfu sóknaraðila um einangrun verði hafnað, en til vara að einangrun varnaraðila í gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 21. mars 2012.

Ríkissaksóknari hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að kærða, X, fd. [...], pólskum ríkisborgara, verði gert að sæta gæsluvarðhaldi á meðan mál hans er til rannsóknar hjá lögreglu, þó eigi lengur en til miðvikudagsins 18. apríl 2012, kl. 16:00. Þá er þess krafist að honum verði gert að sæta einangrun á meðan gæsluvarðhaldinu stendur.

Í greinargerð ákæruvalds kemur fram að kærði sé grunaður um aðild að skipulagningu og framkvæmd ráns, sem framið hafi verið þann 17. október 2011 í úra- og skartgripaverslun Michelsen, Laugavegi 15 í Reykjavík, ásamt þremur samverkamönnum, samlöndum kærða. Eru þeir taldir hafa komið hingað til lands í þeim eina tilgangi að fremja ránið. Kærði sé grunaður, ásamt tveimur samverkamönnum, um að hafa ráðist inn í verslunina, með andlit sín hulin, og hótað og ógnað starfsfólki verslunarinnar með því að beina að þeim eftirlíkingum af skotvopnum og með því að skipa því að leggjast á gólfið, og að hafa haft á brott með sér 49 armbandsúr, samtals að verðmæti yfir 50.000.000 króna. Þeir séu taldir hafa farið af vettvangi á flóttabifreiðum, sem þeir séu grunaðir um að hafa stolið. Ránsfengurinn hafi fundist vandlega falinn í bifreið samverkamanns kærða, X, sem hugðist koma honum þannig földum af landi brott með Norrænu.

Kærði hafi komist af landi brott með flugi til Kaupmannahafnar daginn eftir ránið, þann 18. október 2011, ásamt tveimur samverkamönnum sínum. Við rannsókn lögreglu á málinu hafi fallið grunur á kærða og samverkamenn hans. Héraðsdómur Reykjavíkur hafi gefið út handtökuskipun á hendur kærða, að kröfu lögreglustjóra, þann 25. október 2011. Í kjölfarið hafi hann verið eftirlýstur í gagnagrunni Schengen-upplýsingakerfisins (SIS). Lögreglan í Póllandi hafði afskipti af kærða í nóvember sl. en eftirlýsingunni og handtökuskipuninni hafi ekki verið framfylgt frekar af hálfu pólskra yfirvalda þar sem fyrir hafi legið að kærði yrði ekki framseldur hingað til lands á grundvelli Evrópuráðssamningsins um framsal frá 1957.

Þann 26. febrúar sl. hafi Alþjóðadeild Ríkislögreglustjóra borist skeyti frá yfirvöldum í Sviss þess efnis að kærði væri þar í haldi á grundvelli eftirlýsingarinnar í SIS. Nokkrum dögum síðar hafi Alþjóðadeildinni borist skeyti þess efnis að kærði samþykkti framsal til Íslands. Framsalið hafi farið fram þann 13. mars sl. og við komuna til landsins hafi kærði verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til dagsins í dag, sbr. úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur máli nr. R-135/2012.

Samverkamaður ákærða, Y, hafi þann 8. mars sl. með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. 66/2012 verið sakfelldur samkvæmt ákæru ríkissaksóknara og dæmdur í 5 ára fangelsi fyrir aðild sína að ráninu.

Kærði hafi játað aðild sína að ráninu við yfirheyrslur lögreglu. Framburður hans um skipulagningu, fjármögnun og aðdraganda ránsins sé hins vegar á töluvert annan veg en dómfellda Y. Kærði segir dómfellda hafa verið aðalmann í verkinu að nánast öllu leyti en dómfelldi hafi borið fyrir dómi að hafa verið fenginn til verksins af kærða og samverkamanninum Z og ekki hafa vitað mikið um fyrirhugaðan verknað.

Fyrir liggi að annar samverkamaður kærða, Z, sé í haldi lögreglu í Sviss vegna sakamálarannsóknar og ekki verði unnt að yfirheyra hann fyrr en hann verði framseldur eftir u.þ.b. mánuð. Hinn fjórði samverkamaður kærða, Þ, sé talinn vera í Póllandi. Með vísan til framburðar kærða sé nú unnið að því að tekin verið skýrsla af honum í Póllandi og fyrir milligöngu Alþjóðadeildar Ríkislögreglustjóra sé nú reynt að staðsetja hann þar.

Að mati ríkissaksóknara sé kærði undir rökstuddum grun um að hafa framið ofangreint brot. Hið meinta brot sé talið varða við 252. gr. almennra hegningarlaga.

Talin sé hætta á að gangi kærði frjáls ferða sinna kunni hann að torvelda rannsókn málsins, svo sem með því að hafa áhrif á aðra samseka. Með vísan til þessa sé einnig talið nauðsynlegt að kærði sæti einangrun á meðan gæsluvarðahaldi stendur. 

Þá sé talin hætta á að hann muni reyna að komast úr landi eða koma sér með öðrum hætti undan málsókn sem bíði hans, en kærði sé pólskur ríkisborgari og hafi engin tengsl við landið, og sé grunaður um að hafa komið hingað til lands í þeim eina tilgangi að fremja brot það sem um ræðir.

Er það mat ríkissaksóknara að lagaskilyrðum rannsóknargæslu sé fullnægt í máli þessu. Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og a. og b. liða 95. gr. og b. liðar 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008 er þess beiðst að krafan nái fram að ganga.

Kærði hefur sætt gæsluvarðhaldi frá 13. mars sl. þegar hann var fluttur hingað til lands frá Sviss. Kærði hefur við yfirheyrslu hjá lögreglu játað aðild sína að ráni sem framið var 17. október 2011 í úra- og skartgripaverslun Michelsen, Laugavegi 15 í Reykjavík, og getur það brot hans varðað fangelsisrefsingu sbr. 252. gr. almennra hegningarlaga. Framburður kærða hjá lögreglu um skipulagningu, fjármögnun og aðdraganda ránsins er töluvert á annan veg en hjá samverkamanni kærða, Y en sá var með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í málinu nr. S-66/2012 dæmdur í 5 ára fangelsi fyrir aðild sína að ráninu. Fyrir liggur að einn meintra samverkamanna kærða við ránið gengur nú laus en annar er í haldi lögreglunnar í Sviss. Kærði er erlendur ríkisborgari með engin tengsl við landið.

Kærði samþykkir kröfu um gæsluvarðhald en mótmælir kröfu um einangrun á meðan á varðhaldinu stendur. Í ljósi rannsóknarhagsmuna og þess brots sem kærði hefur játað aðild að í félagi við aðra, sem og þess að hann kunni að hafa áhrif á samseka, er fallist á að hann sæti einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur, sbr. b lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008. Með sömu rökum þykir ekki tilefni til að marka einangruninni skemmri tíma en gæsluvarðhaldi.

Ingimundur Einarsson héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð:

Kærði, X, fd. 20. desember 1976, skal sæta gæsluvarðhaldi á meðan mál hans er til rannsóknar hjá lögreglu, þó eigi lengur en til miðvikudagsins 18. apríl 2012, kl. 16:00. Kærði skal sæta einangrun á meðan gæsluvarðhaldinu stendur.