Hæstiréttur íslands

Mál nr. 706/2017

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Alda Hrönn Jóhannsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
X (Erlendur Þór Gunnarsson hrl.)

Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008

Reifun

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Þorgeir Örlygsson, Karl Axelsson og Viðar Már Matthíasson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 8. nóvember 2017, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 8. nóvember 2017, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 15. nóvember 2017 klukkan 16 og einangrun meðan á því stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

                                                                 

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness miðvikudaginn 8. nóvember 2017

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur í dag krafist þess að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði að X, kt. [...], verði með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 15. nóvember 2017, kl. 16:00, og að honum verði gert að sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldsvistinni stendur.

Kærði mótmælir kröfu lögreglustjóra.

I

Í greinargerð með kröfu lögreglustjóra segir að embættinu hafi borist tilkynning frá tollgæslu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar 31. október sl. þess efnis að kærði hefði verið stöðvaður á tollhliði við komu til landsins frá [...], með flugi númer [...], vegna gruns um að hann hefði fíkniefni í vörslum sínum. Í viðræðum við tollverði, og síðar einnig er hann ræddi við lögreglu, hafi kærði viðurkennt að vera með fíkniefni innvortis. Hann hafi í kjölfarið verið færður á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þar sem hann hafi gengist undir sneiðmyndatöku. Niðurstaða þeirrar rannsóknar hafi verið að kærði væri með aðskotahluti í maga og endaþarmi. Í framhaldinu hafi kærði gengist undir aðgerð á Landspítala-háskólasjúkrahúsi þar sem hin meintu fíkniefni hafi verið fjarlægð.

                Lögreglustjóri segir rannsókn málsins vera í fullum gangi. Samkvæmt niðurstöðum tæknideildar lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu hafi kærði verið með 299,94 grömm af kókaíni og 61,21 gramm af ecstasy í líkama sínum við komuna til landsins. Í framhaldi af rannsókn tæknideildar hafi sýni úr hinum haldlögðu fíkniefnum verið send til rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði við Háskóla Íslands til frekari rannsókna og sé beðið niðurstöðu þeirrar rannsóknar.

Til þess er vísað af hálfu lögreglustjóra að rannsaka þurfi aðdraganda utanferðar kærða. Einnig þurfi að rannsaka tengsl kærða við hugsanlega vitorðsmenn á Íslandi eða eftir atvikum erlendis, auk annarra atriða, en kærði hafi um það borið fyrir lögreglu að efnin hefði hann flutt hingað til lands fyrir annan aðila, sem kærði hafi ekki viljað nafngreina. Það sem fram sé komið við rannsókn málsins bendi eindregið til þess að fíkniefnin hafi verið ætluð til sölu og dreifingar og að háttsemi kærða kunni að varða við ákvæði 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, auk ákvæða laga nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni. Lögregla telji að ætla megi að kærði kunni að torvelda rannsókn málsins og hafa áhrif á samseka gangi hann laus. Í ljósi rannsóknarhagsmuna krefjist lögreglustjóri þess að kærða verði gert að sæta einangrun í gæsluvarðhaldinu, sbr. b-lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

                Kröfum sínum til stuðnings vísar lögreglustjóri til a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og laga nr. 65/1974.

II

Með vísan til alls framangreinds, svo og gagna málsins, er fallist á það með lögreglustjóra að kærði sé undir rökstuddum grun um að hafa framið brot sem fangelsisrefsing liggur við.

Mál þetta kom upp fyrir rétt rúmri viku síðan. Rannsókn þess er ekki lokið. Ætla verður lögreglu frekara ráðrúm til þess að rannsaka aðdragandann að ferð kærða og eftir atvikum möguleg tengsl hans við vitorðsmenn. Þó svo fyrir liggi að kærði hafi sýnt af sér ákveðna samvinnu við lögreglu er ljóst að hann hefur við skýrslutökur ekki upplýst hver það var sem fékk hann til þess að flytja fíkniefnin hingað til lands. Samkvæmt því og að öðru framangreindu virtu er það mat dómsins að ætla megi, gangi kærði laus, að kærði muni torvelda rannsókn málsins með því að afmá merki eftir brot, skjóta undan munum ellegar hafa áhrif á samseka eða vitni. Samkvæmt þessu telst skilyrðum a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála fullnægt til þess að kærða verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi.

Með vísan til framangreinds er jafnframt fallist á kröfu lögreglustjóra um að kærða verði gert að sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldsvist hans stendur, sbr. b-lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008. Samkvæmt því og öðru framangreindu verður krafa lögreglustjóra því tekin til greina með þeim hætti sem hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði.

Úrskurð þennan kveður upp Kristinn Halldórsson héraðsdómari.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð:

Kærði, X, sæti áfram gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 15. nóvember 2017, kl. 16:00.

Kærði skal sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldsvistinni stendur.