Hæstiréttur íslands
Mál nr. 542/2009
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Mánudaginn 28. september 2009. |
|
Nr. 542/2009. |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu(Stefán Eiríksson lögreglustjóri) gegn X (Sveinn Andri Sveinsson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Jón Steinar Gunnlaugsson og Hjördís Hákonardóttir og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 24. september 2009, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 25. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 24. september 2009, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 1. október 2009 klukkan 16 og sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími. Þá krefst hann þess að honum verði ekki gert að sæta einangrun í gæsluvarðhaldinu.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 24. september 2009.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur í dag krafist þess að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði að X, verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, allt til fimmtudagsins 1. október 2009, kl. 16:00. Þess er krafist að X verði látinn vera í einrúmi á meðan á gæsluvarðhaldi stendur.
Kærði mótmælir gæsluvarðhaldskröfunni og krefst þess að henni verið hafnað.
Í greinargerð lögreglustjóra segir að ávana- og fíkniefnadeild lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu hafi nú til rannsóknar mál er varði ætlaðan innflutning á töluverðu magni af amfetamíni. Þann 12. ágúst sl. hafi lögreglan í Árósum í Danmörku lagt hald á pakka er hafi innihaldið rúmlega 4 kg af amfetamíni. Fíkniefnin hafi verið falin í hólki sem var í pakkanum. Pakkann hafi átt að flytja með skipinu Arnarfelli, fraktskipi Samskipa, til Íslands. Lögreglan í Árósum hafi lagt hald á fíkniefnin sem voru í pakkanum og skipt þeim út fyrir lögleg efni. Pakkinn hafi síðan verið sendur undir eftirliti lögreglu hingað til lands, en hann komið með skipinu Arnarfelli, til Reykjavíkur þann 18. ágúst sl. Á pakkann hafi verið skráður móttakandi A, B, kt. [...], M. Samkvæmt upplýsingum sem lögregla hafi aflað sé íbúðin að M orlofsíbúð B, og sé skráður eigandi hennar B. Lögreglu hafi borist ljósmyndir frá dönskum lögregluyfirvöldum, af manni er sést afhenda ofangreindan pakka í Danmörku og hafi rannsókn lögreglu leitt í ljós að maðurinn heiti Y.
Þann 1. september sl. hafi maður komið inn á skrifstofu fyrirtækisins Jónar Transport og spurst fyrir um ofangreindan pakka. Maðurinn hafi sagst heita A og hafi hann óskað eftir því að kennitölu móttakanda pakkans yrði breytt þannig að í stað kennitölu A yrði sett kennitala B. Rannsókn lögreglu hafi leitt í ljós að þessi maður heiti Z. Við rannsókn málsins hafi verið fengnir úrskurðir héraðsdóms varðandi síma þá, sem Y sé með, og bankaviðskipti. Við skoðun þeirra gagna hafi komið í ljós að ákveðin tengsl séu á milli Z og Y, en Z hafi millifært ákveðnar fjárhæðir inn á bankareikning Y og þeir hafi verið í símasambandi.
Þann 4. september hafi Z farið í vöruhús Samskipa og borgað inn á sendingarkostnað pakkans en eitthvað hafi vantað upp á til að hann gæti leyst pakkann út. Þann 7. september hafi Z komið aftur í vöruhús Samskipa og sótt pakkann. Z hafi verið fylgt eftir þar sem hann hafi ekið sem leið lá upp í [...] og skilið pakkann þar eftir í runna við [...]. Þann 9. september hafi Z, ásamt tveimur mönnum, X og Þ komið á bifreið og hafi Z vísað þeim á pakkann. Því næst hafi þeir ekið inn í [...] og hafi Z skilið þar við þá. Þ og X hafi þá farið inn í [...] og sótt tösku og þaðan farið aftur að þeim stað sem pakkinn var geymdur og tekið pakkann með sér. Þeir hafi síðan ekið að [...] en þar hafi X farið með pakkann út úr bílnum. Þ hafi ekið í burtu en X hafi hringt á leigubifreið. Þ hafi verið fylgt eftir af lögreglu eftir að hann hafi farið frá [...], en hann hafi horfið sjónum og enn ekki fundist. Því næst hafi X farið með pakkann í leigubifreiðinni að [...] þar sem hann hafi síðan verið handtekinn þegar hann var að saga í sundur hólkinn sem var í pakkanum.
Við yfirheyrslur hjá lögreglu hafi X upphaflega borið um að Þ hafi beðið hann um að sækja pakkann, opna hann og bíða síðan eftir frekari fyrirmælum. Að sögn X hefði hann átt að fá 100.000 krónur greiddar fyrir. Nú hafi X hins vegar breytt framburði sínum á þá leið að hann og Þ hafi verið saman ásamt tveimur öðrum mönnum og hafi annar þeirra beðið þá um að taka að sér að sækja pakkann. Lögregla telji þann mann vera milligöngumann við flutning pakkans til landsins. Lögregla kveður X hafa sætt gæsluvarðhaldi vegna málsins frá 10. september sl.
Lögreglustjóri kveður rannsókn lögreglu miða áfram en hún snúi að þáttum er varða aðdraganda brotsins, skipulagningu og fjármögnun. Framundan séu frekari yfirheyrslur yfir kærða og öðrum samverkamönnum, frekari gagnaöflun og gagnaúrvinnsla sem skýrt geti frekar meðal annars aðdraganda brotsins og samskipti kærða við aðra samverkamenn sem kunna að tengjast málinu.
Rökstuddur grunur sé um stórfellt fíkniefnabrot X. Nauðsynlegt sé talið að hann sæti gæsluvarðhaldi vegna málsins svo honum sé fyrirmunað að setja sig í samband við ætlaða vitorðsmenn og/eða vitni og/eða að hann geti komið undan gögnum sem sönnunargildi hafa í málinu og hafa ekki verið haldlögð. Þykir þannig nauðsynlegt að vernda rannsóknarhagsmuni málsins með því að X sæti gæsluvarðhaldi og að hann verði látinn vera í einrúmi á meðan á gæsluvarðhaldi stendur.
Til rannsóknar sé ætlað brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 ásamt síðari breytingum, sem getur varðað allt að 12 ára fangelsi. Um heimild til gæsluvarðhalds er vísað til a liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 og til b liðar 1. mgr. 99. gr. sömu laga hvað varðar kröfu um einangrun.
Til rannsóknar er ætlað brot kærða gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 ásamt síðari breytingum, sem getur varðað allt að 12 ára fangelsi. Um heimild til gæsluvarðhalds er vísað til a liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 og til b liðar 1. mgr. 99. gr. sömu laga hvað varðar kröfu um einangrun. Með vísan til alls framanritaðs og framburðar kærða sjálfs er fallist á með lögreglustjóra að kærði sé undir rökstuddum grun um að hafa gerst sekur um háttsemi sem fangelsisrefsing er lögð við. Rannsókn málsins er ekki lokið og fái kærði óskert frelsi þykir einsýnt að hann gæti torveldað rannsóknina og haft áhrif á vitorðsmenn eða hugsanleg vitni. Með vísan til a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og fyrirliggjandi rannsóknargagna er því fallist á kröfu lögreglustjóra eins og hún er fram sett. Þá verður með sömu rökum og rakin eru hér að framan og vísan til b-liðar 1. mgr. 99. gr. sakamálalaga fallist á kröfu lögreglustjóra um að kærði sæti einangrun á meðan hann sætir gæsluvarðhaldinu stendur.
Arnfríður Einarsdóttir héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.
Úrskurðarorð:
Kærði, X, skal sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 1. október 2009, kl. 16:00.
Kærði skal sæta einangrun í gæsluvarðhaldinu.