Hæstiréttur íslands
Mál nr. 118/2017
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
Reifun
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Helgi I. Jónsson og Benedikt Bogason og Davíð Þór Björgvinsson settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 16. febrúar 2017 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 16. febrúar 2017 þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 2. mars sama ár klukkan 16 og einangrun meðan á því stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími og verði „án takmarkana“, en að því frágengnu að óheimilt verði „að skerða áskilin réttindi í c-e. liðum 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008“.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Varnaraðili er undir rökstuddum grun um að hafa annars vegar ráðið ungri konu bana og hins vegar stórfellt fíkniefnalagabrot, sbr. 211. gr. og 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Rannsókn málsins er mjög umfangsmikil og beðið er eftir niðurstöðum frá erlendum vísindastofnunum vegna rannsókna á lífsýnum sem geta haft mikla þýðingu fyrir rannsókn málsins. Þá hafa ekki verið teknar skýrslur af öllu því fólki sem varnaraðili átti samskipti við eftir að konan andaðist að morgni 14. janúar 2017 þar til hann var handtekinn 18. sama mánaðar, en þetta fólk mun vera statt á [...]. Loks er hætta á því að varnaraðili geti torveldað rannsókn á ætluðu fíkniefnalagabroti, ef hann fær að vera frjáls ferða sinna, með því að hafa áhrif á samseka eða vitni. Að öllu þessu virtu verður fallist á það með héraðsdómi að enn séu nægjanlegir rannsóknarhagsmunir í húfi til að varnaraðila verði gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Jafnframt eru ekki efni til með hliðsjón af umfangi málsins að marka varðhaldinu skemmri tíma en gert var með hinum kærða úrskurði.
Varnaraðili hefur setið í gæsluvarðhaldi og sætt einangrun frá 19. janúar 2017. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga nr. 88/2008 má einangrun í gæsluvarðhaldi ekki standa samfleytt lengur en í fjórar vikur nema sá sem henni sætir sé sakaður um brot sem varðað getur að lögum 10 ára fangelsi. Brot þau sem varnaraðili er grunaður um fullnægja þessu skilyrði. Þá er enn nauðsynlegt vegna rannsóknarhagsmuna að varnaraðili sæti einangrun. Verður sú niðurstaða hins kærða úrskurðar því staðfest.
Eftir uppkvaðningu hins kærða úrskurðar var bókað í þingbók að sækjandi kynnti varnaraðila tilhögun gæsluvarðhaldsins og að dómari hefði bent honum á að hann gæti borið undir dóminn þau atriði sem það varða, sbr. 5. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008. Krafa þar um hefur ekki verið borin undir héraðsdóm og verður henni því vísað frá Hæstarétti.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 16. febrúar 2017.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að kærða, X, kt. [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 2. mars nk. kl 16:00. Þá er þess krafist að kærða verði gert að sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.
Kærði mótmælir kröfu lögreglustjóra. Hann krefst þess aðallega að gæsluvarðhaldskröfunni verði hafnað, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími en krafist er og að það verði án takmarkana.
Í greinargerð lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að lögregla hafi nú til rannsóknar hvarf A, sem horfið hafi á Laugavegi í Reykjavík um klukkan 05.30 að morgni laugardagsins 14. janúar sl. Lík hennar hafi fundist sunnudaginn 22. janúar í fjöruborðinu við Selvogsvita í Ölfusi. Eftir skoðun réttarmeinafræðings sé það niðurstaða hans í bráðabirgðavottorði að henni hafi verið ráðinn bani. Samkvæmt rannsókn lögreglu þyki vafalaust að hún hafi farið í [...]-bifreið frá Laugavegi á móts við Vatnsstíg þar sem hún hafi sést síðast á gangi á leið austur Laugaveg. Með rannsókn á fjarskiptagögnum og myndefni megi rekja ferðir bifreiðarinnar um Reykjavík, um Sæbraut og Reykjanesbraut, Kópavog, Garðabæ og til Hafnarfjarðar. Símsendar hafi hætt að nema síma A um klukkan 05:50 á móts við Sléttahraun í Hafnarfirði. [...] sé talin vera bifreið sem kærði X hafi verið með á leigu frá bílaleigu frá því síðdegis föstudaginn 13. janúar sl. til miðs dags daginn eftir eða laugardaginn 14. janúar. Bifreiðin hafi borið skráninganúmerið [...] og sé [...] að lit. Á myndefni úr eftirlitsmyndavélum við hafnarkant á suðurbakka í Hafnarfirði megi sjá að bifreiðinni var ekið að togaranum B sem þar lá við viðlegukant. Á myndskeiðum sjáist ökumaður stíga út úr bifreiðinni, en kærði X hafi kannast við að hafa verið ökumaður bifreiðarinnar. Út úr bifreiðinni farþegamegin að framan sjáist stíga skipsfélagi kærða, Y. Samkvæmt frásögn kærða X hafi hann verið á veitingastöðum í miðbæ Reykjavíkur um nóttina með skipsfélaga sínum Y. Þeim beri saman um að frá miðbæ Reykjavíkur hafi þeir ekið til skips síns sem legið hafi í Hafnarfjarðarhöfn. Þetta hafi fengist staðfest með því að bifreið þeirra sjáist í eftirlitsmyndavélum í miðborginni og nágrenni undir morgun laugardaginn 14. janúar. Kærði X hafi greint frá því að áður en þeir hafi ekið til Hafnarfjarðar hafi tvær stúlkur komið inn í bifreiðina og farið með þeim til Hafnarfjarðar. Skipsfélagi hans Y hafi borið um að hann hafi aðeins séð eina stúlku í bifreiðinni. Þá hafi Y greint frá því að hafa séð stúlkuna liggja í aftursæti bifreiðarinnar þegar hann fór úr bifreiðinni í Hafnafjarðarhöfn þar sem hann hafi farið um borð í togarann B. Y hafi borið um það í fyrstu yfirheyrslum að tvær stúlkur hafi komið inn í bifreiðina. Að hans sögn skýrist það af því að X hafi haldið þessu fram við hann. Y kveðst nú muna eftir að aðeins ein stúlka hafi komið í bifreiðina. Hann hafi verið mjög ölvaður og muni ekki eftir því að hafa rætt við stúlkuna.
Kærði X hafi kannast við það að hafa fengið upp í bifreiðina [...] af gerðinni [...], sem hann hafi haft á leigu laugardaginn 14 janúar 2017, stúlku sem hann hafi þekkt af mynd sem A. Hann hafi haldið því fram að önnur kona hafi einnig komið inn í bifreiðina og verið farþegi í henni til Hafnarfjarðar undir morgun þennan dag. Kærði hafi ekkert viljað tjá sig um þetta mál í síðustu yfirheyrslum, en hann hafi setið í gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknar málsins frá því fimmtudaginn 19. janúar sl. Í fyrstu yfirheyrslum hafi kærði borið um að stúlkurnar hafi komið inn í bílinn í eða við miðborg Reykjavíkur og síðan hafi verið ekið að togaranum sem legið hafi í Hafnarfjarðarhöfn. Þar hafi Y farið út úr bifreiðinni, en hann hafi ekið með stúlkurnar á annan stað í höfninni þar sem hann hafi stöðvað bifreiðina og farið aftur í farþegasætið til stúlknanna. Hann hafi m.a. kysst A. Á eftirlitsmyndavél sjáist X stöðva bifreiðina og fara aftur í farþegasætið. Þar hafi bifreiðin staðið í u.þ.b. 50 mínútur eða þar til X sjáist koma úr farþegasætinu aftur í og setjast fram í og aka burt. X hafi borið um að hafa ekið að hringtorgi, líklega Ástorgi norðan Reykjanesbrautar. Það hafi hann gert að ósk stúlknanna, en þar hafi þær farið út úr bifreiðinni og hann ekki séð þær meir. Kærði sjáist síðar um morguninn eða klukkan 11:00 aka að togaranum við bryggjukantinn og stíga út úr bifreiðinni og þá sé hann einn. Kærði X hafi skilað bifreiðinni aftur á bílaleiguna skömmu síðar aftur á bílaleiguna.
Lögregla hafi lagt hald á bifreiðina í þágu rannsóknar málsins. Rannsókn tæknideildar hafi sýnt að mikið blóð hafi verið í aftursæti og undir sætinu, blóðslettur víða í bifreiðinni og blóð á stýri hennar. Niðurstaða rannsókna á því blóði hafi sýnt að um sé að ræða blóð A. Við skoðun á fatnaði kærða hafi komið svörun um blóð. Við leit í Togaranum B þegar hann kom í Hafnarfjarðarhöfn um miðnætti miðvikudaginn 18. janúar sl. hafi fundist í svörtum ruslapoka á dekki ökuskírteini A. Þar hafi verið lagt hald á ýmislegt fleira sem talið sé að kunni að tengjast málinu svo sem einnota gúmmíhanskar en á þeim sé blóð sem sé nú til rannsóknar. Niðurstaða liggi fyrir um rannsókn fingrafara af ökuskírteini A sem hafi fundist um borð í B eftir atburðinn. Fingrafarið reyndist eftir kærða X. Svo sem að framan greinir hafi lík A fundist í fjörunni við Selvogsvita í Ölfusi sunnudaginn 23. janúar sl. Rannsókn réttarmeinafræðings hafi leitt í ljós að henni höfðu verið veittir áverkar í andliti og höfði, að hún hafi verið kyrkt. Þá hafi rannsókn leitt í ljós að hún hafi drukknað. Lík A hafi verið án fata þegar það fannst.
Rannsókn máls hafi miðað áfram með yfirheyrslum en aðallega öflun sönnunargagna og upplýsinga um fjarskipti og myndefnis af eftirlitsmyndavélum og úrvinnslu þess. Umfangsmikil rannsókn sé í gangi, bæði hjá tæknideild LRH, en einnig með rannsóknum erlendra lögregluliða og vísindastofnana á miklum fjölda sýna og annars sem aflað hafi verið við rannsókn máls og talið sé geta veitt þýðingarmiklar upplýsingar um málið. Niðurstaðna rannsókna frá sænskum rannsóknarstofum sé að vænta á næstu tveim vikum.
Rannsókn þyki hafa upplýst að A hafi verið ráðinn bani laugardaginn 14. janúar sl. Þá þyki í ljós leitt að henni hafi verið ráðinn bani eftir að Y skipsfélagi X hafi yfirgefið bifreiðina [...] við togarann B. Það þyki vafalaust að A hafi verið veittir áverkar í bifreiðinni eftir að Y hafi farið út úr henni. Þá þyki ljóst að A hafi verið varpað í sjó á stað skammt frá Selvogsvita þar sem hún hafi drukknað. Grunur lögreglu sem byggi á rannsókn málsins fram til þessa þyki sterkur um það að X einn beri ábyrgð á hvarfi A og dauða hennar.
Rannsókn á hvarfi A og því hvernig henni hafi verið ráðinn bani sé enn á frumstigi þótt rannsókn hafi miðað áfram. Tugi sýna af ýmsu tagi hafi verið tekin í bifreiðinni strax í upphafi og úr fötum og hlutum sem ástæða þótti til að rannsaka og talið að varpi ljós á atvik og aðstæður máls. Enn liggi ekki fyrir niðurstöður vegna rannsókna á sýnum og öðru sem þýðingu hafi fyrir rannsóknina. Fyrir liggi að yfirheyra þarf fjölda vitna, bæði þau sem yfirheyrð hafa verið og önnur sem ekki hafa verið yfirheyrð áður. Til dæmis að nefna liggi fyrir að yfirheyra fólk á [...] og kanna með síma og fjarskiptasamband kærða við það fólk að morgni 14. janúar og næstu daga eftir það eða þar til hann var handtekinn um miðjan dag miðvikudaginn 18. janúar sl.
Þegar kærði X hafi verið handtekinn af íslenskum lögreglumönnum í B þar sem togarinn var úti á rúmsjó miðvikudaginn 18. janúar s.l. hafi fundist í skipsklefa kærða X u.þ.b. 23,4 kg af hassi. Kærði hafi gengist við því að eiga fíkniefnin. Kærði X hafi skýrt tilvist efnisins í klefanum þannig að hann hafi fengið þau af ónafngreindum manni í [...] og átt að smygla þeim til [...]. Kærði segist ekki eiga efnin sjálfur og hafi ekki ætlað að dreifa þeim á [...] heldur hafi hann verið að flytja efnin fyrir aðra. Kærði hafi ekki skýrt það frekar. Rannsókn á kaupum fíkniefnanna, meðferð í [...] og fyrirhuguð sala þeirra á [...] sé til rannsóknar í samstarfi við[...] og [...] lögregluyfirvöld.
Kærði X sé undir sterkum grun um brot gegn 211. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að bera ábyrgð á hvarfi A og dauða. Þá sé einnig til rannsóknar stórfellt brot kærða gegn 173. gr. a., almennra hegningarlaga. Veruleg hætta þyki á því að kærði geti sett sig í samband við vitni og meðseka einstaklinga sem fengið hafa kærða til þess að smygla fíkniefnunum sem hann hafði í vörslu og haft áhrif á framburð þeirra, komið undan gögnum, sem lögreglan leiti, ef hann fær að vera frjáls ferða sinna og ekki í einangrun. Þykir brýnt að vernda rannsóknarhagsmuni málanna á þessu stigi. Með vísan til þessa, til þess sem að framan sé rakið og framlagðra gagna og a-liðar 1. mgr. 95. gr. um meðferð sakamála nr. 88/2008 og til að sæta einangrun samkvæmt b. lið 1. mgr. 99. gr. sömu laga, sé þess krafist að krafan nái fram að ganga eins og hún er fram sett.
Samkvæmt því sem að framan greinir og með hliðsjón af gögnum málsins er kærði undir rökstuddum grun um brot gegn 211. gr. almennra hegningarlaga, sem varðað getur allt að ævilöngu fangelsi. Kærði neitar sök. Rannsókn málsins, sem er umfangsmikil, stendur enn yfir og er beðið niðurstaðna rannsóknar á sýnum, þ.á.m. lífsýnum, sem aflað hefur verið og talið er að veitt geti þýðingarmiklar upplýsingar um málið. Þá liggur fyrir að frekari vitnayfirheyrslur þurfa að fara fram vegna málsins. Gangi kærði laus þykir hætta á því að hann muni torvelda rannsókn málsins, svo sem með því að afmá merki eftir brot, skjóta undan munum ellegar hafa áhrif á samseka eða vitni. Samkvæmt þessu telst skilyrðum a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála fullnægt til þess að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi. Með vísan til framangreinds er jafnframt fallist á kröfu lögreglustjóra um að kærða verði gert að sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldsvist hans stendur, sbr. b-lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008.
Úrskurð þennan kveður upp Gunnar Aðalsteinsson héraðsdómari.
Ú r s k u r ð a r o r ð:
Kærði, X, fæddur [...], sæti gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 2. mars nk. kl 16:00.
Kærði sæti einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.