Hæstiréttur íslands
Mál nr. 424/2000
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Mánudaginn 27. nóvember 2000. |
|
Nr. 424/2000. |
Ákæruvaldið (Ragnheiður Harðardóttir saksóknari) gegn X (Kristján Stefánsson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Guðrún Erlendsdóttir, Haraldur Henrysson og Markús Sigurbjörnsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 22. nóvember 2000, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 23. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 22. nóvember 2000, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 28. febrúar 2001 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.
Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 22. nóvember 2000.
Ár 2000, miðvikudaginn 22. nóvember, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur sem háð er í Dómhúsinu við Lækjartorg af Sigríði Ólafsdóttur héraðsdómara, kveðinn upp úrskurður þessi.
Ríkissaksóknari hefur krafist þess að dómfellda, X, verði með vísan til 106. gr. laga nr. 19/1991 gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi á meðan meðferð máls hans fyrir Hæstarétti stendur, þó eigi lengur en til miðvikudagsins 28. febrúar 2001, kl. 16.00, en gert er ráð fyrir að málið komist á dagskrá réttarins eftir áramót.
Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. S-774/2000 sem kveðinn var upp 27. júní sl. var dómfelldi dæmdur skv. 173. gr. a almennra hegningarlaga, sbr. lög nr. 64/1974, til að sæta fangelsi í 5 ár og 6 mánuði og til upptöku á jafnvirði 8.000.000 króna, svo og til greiðslu hluta sakarkostnaðar, en frá refsivistinni skuli draga gæsluvarðhald hans frá 24. september 1999 til 27. júní 2000.
Skv. 106. gr. laga nr. 19/1991 lýkur gæsluvarðhaldi þegar dómur hefur verið kveðinn upp í máli. Eftir kröfu ákæranda getur dómari þó úrskurðað að gæsluvarðhald skuli haldast meðan á fresti skv. 2. mgr. 151. gr. laga nr. 19/1991 stendur svo og á meðan málið er til meðferðar fyrir æðra dómi. Áfrýjunarstefna hefur verið gefin út og eru því skilyrði 106. gr. laganna fyrir hendi. Með hliðsjón af alvarleika þeirra brota sem dómfelldi hefur verið dæmdur fyrir verður að telja almannahagsmuni krefjast þess að honum verði gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi. Krafa ríkissaksóknara er því tekin til greina eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði.
Sigríður Ólafsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Úrskurðarorð:
Dómfelldi, X, sæti gæsluvarðhaldi á meðan á meðferð máls hans fyrir Hæstarétti stendur, þó eigi lengur en til miðvikudagsins 28. febrúar 2001, kl. 16.00.