Hæstiréttur íslands

Mál nr. 47/2011


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


Fimmtudaginn 20. janúar 2011.

Nr. 47/2011.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Jón H.B. Snorrason saksóknari)

gegn

X

(Hilmar Baldursson hdl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Jón Steinar Gunnlaugsson, Páll Hreinsson og Viðar Már Matthíasson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 18. janúar 2011, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 19. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 18. janúar 2011, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 21. janúar 2011, klukkan 16 og einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.  

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

 Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

                                                        

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 18. janúar 2011.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, kt. [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi, allt til föstudagsins 21. janúar 2011 kl. 16:00. Þá er gerð krafa um að kærði sæti einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur. 

Í greinargerð ákæruvalds kemur fram að  um klukkan 20.24 á föstudagskvöld, 15. janúar 2011,  hafi lögreglu  borist tilkynning um yfirstandandi innbrot að [...] í [...]. Skömmu síðar  hafi borist upplýsingar um að bifreið með skráningarnúmerið [...] væri tengd innbrotinu og væri á leið frá vettvangi. Lög­reglubifreiðar hafi þegar verið sendar á vettvang og á eftir umræddri bifreið. För bifreiðarinnar hafi verið  stöðvuð á Vesturlandsvegi skammt norðan við Þing­valla­veg. Bifreiðinni hafi Y, kt. [...] ekið og verið einn í henni. Í bifreiðinni hafi reynst vera  þýfi í tveimur töskum sem tilheyrt hafi  íbúum [...], þar á meðal Playstation 3 leikjatölva, Canon stafræn myndavél, tvær fartölvur og skartgripir. Y hafi  í kjölfarið verið handtekinn og fluttur á lögreglustöð. Í bifreiðinni hafi, ásamt þýfinu, fundist  debetkort í eigu Z, kt. [...]. Í kjölfarið hafi  kærði Y og Z verið handteknir og voru þeir  Y og Z úrskurðaðir í gæsluvarðhald til föstudagsins nk. 21. janúar.

Tekin hafi verið skýrsla af kærða Y á laugardaginn, sem hafi ekið bifreiðinni frá vettvangi og  hafi hann í fyrstu neitað að hafa ekið nokkrum að [...] en síðan breytt framburði sínum og kveðist hafa ekið kærða X og Z að [...].  Fyrirliggjandi sé í málinu framburður vitnis sem hafi orðið var við mannaferðir á 2. hæð í húsinu við [...] í [...]. Vitnið hafi jafnframt séð hvar bifreiðinni [...] hafi verið ekið að húsinu og út úr því hafi komið aðili í grárri hettupeysu og  hafi vitninu fundist að hann væri [...] í útliti, sbr. kærði Z. Umræddur aðili muni hafa afhent ökumanni bifreiðarinnar [...] tvær töskur og hafi bifreiðinni í kjölfarið verið ekið í burtu. Vitnið hafi sagst vera nokkuð visst um að tveir menn gætu hafa verið í húsinu þó hann hafi einungis séð einn koma út úr því.

Í kjölfarið hafi kærði X verið handtekinn að heimili sínu [...] í gærmorgun kl. 10.45. Tekin hafi verið skýrsla af kærða X í gær og hafi hann alfarið aðild sinni að þessu máli en hann hafi ekki gefið neina skýringu á þessum framburði kærða Y um hann hafi keyrt hann að [...]. 

Að mati lögreglu sé nauðsynlegt  að taka frekari skýrslu af kærða og öðrum kærðu,  en vitni hafi borið hafa borið því  við að fleiri aðilar hafi verið að verki. Jafnframt eigi eftir að taka skýrslu af vitni eða vitnum og frekari skýrslutöku af kærða.  Kærði neiti sök og kannist ekki við að hafa verið í [...] eða tengjast málinu að öðru leyti. Þyki því brýnt með hliðsjón af gögnum málsins og sterkum grunsemdum lögreglu að vernda rannsóknarhagsmuni á þessu stigi málsins með því að varna því að kærði gangi laus en veruleg hætta sé talin á að hann torveldi rannsókn málsins með því að hafa áhrif á aðra samseka og vitni  ef hann fái að fara frjáls ferða sinna. Kærði, X sé á átjánda aldursári og hafi því barnaverndaryfirvöld verið upplýst um málið sem og móðir hans. Það sé mat lögreglu að önnur úrræði geti ekki komið í stað gæsluvarðhalds eins og málum og rannsóknarhagsmunum er háttað, sbr. 5. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála, sbr. 1. mgr. 100. gr. sömu laga.

Til rannsóknar í máli þessu sé ætlað brot gegn 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940 eða eftir atvikum 254. gr. sömu laga. Brotist hafi verið inn á heimili að [...] í [...] og mörgum verðmætum munum stolið. Kærði sé sterklega grunaður um aðild að málinu samkvæmt gögnum og vitnisburði. Kærði X  hafi áður komið við sögu lögreglu í tengslum við innbrot og þjófnað þrátt fyrir ungan aldur og ekki útilokað að hann og félagar hans tengist fleiri innbrotum í heimahús á höfuðborgarsvæðinu á undanförnum vikum og mánuðum. Það sé því brýnt og nauðsynlegt með vísan til alls framanritaðs og gagna málsins að öðru leyti að kærða verði með vísan til a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88, 2008 gert að sæta gæsluvarðhaldi til föstudagsins 21. janúar 2011 kl. 16.00 og til að sæta einangrun samkvæmt b. lið 1. mgr. 99. gr. sömu laga.

Með vísan til greinargerðar lögreglu og rannsóknargagna málsins þykir kominn fram rökstuddur grunur um að kærði hafi gerst sekur um háttsemi sem fangelsisrefsing liggur við. Rannsókn málsins er á frumstigi og er fallist á með lögreglustjóra að skilyrði a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 séu uppfyllt.  Er krafa um gæsluvarðahald því tekin til greina eins og nánar greinir í úrskurðarorði. Eins og máli þessu er háttað koma önnur úrræði ekki í stað gæsluvarðhaldsins. Þá er fallist á að kærði verði látinn vera í einrúmi meðan á gæsluvarðahaldinu stendur sbr. b. lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008.

Sigrún Guðmundsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð:

Kærði, X, kt. [...], skal sæta gæsluvarðhaldi, allt til föstudagsins 21. janúar 2011 kl. 16:00. Kærði skal sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldi stendur.