Hæstiréttur íslands
Mál nr. 864/2016
Lykilorð
- Útivist í héraði
- Skriflegur málflutningur
- Frávísun frá Hæstarétti
Reifun
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Karl Axelsson og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.
Ríkissaksóknari skaut málinu til Hæstaréttar 21. desember 2016 í samræmi við yfirlýsingu ákærða um áfrýjun. Ákæruvaldið krefst þess að hinn áfrýjaði dómur verði ómerktur og málinu vísað til löglegrar meðferðar fyrir héraðsdómi.
Ákærði krefst þess aðallega að málinu verði vísað frá héraðsdómi, til vara að hinn hinn áfrýjaði dómur verði ómerktur, en að því frágengnu að refsing ákærða verði milduð og ökuréttarsvipting dæmd tímabundin.
Málið var flutt skriflega eftir ákvörðun Hæstaréttar samkvæmt 1. mgr. 205. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Með ákæru 6. september 2016 var ákærða gefið að sök umferðalagabrot með því að hafa ekið bifreið undir áhrifum fíkniefna og án þess að hafa öðlast ökurétt. Ákærði sótti ekki þing við meðferð málsins í héraði. Var dómur lagður á málið að honum fjarstöddum eftir 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008, en með honum var ákærða gert að sæta fangelsi í 30 daga og sviptingu ökuréttar ævilangt. Dómurinn var birtur ákærða 1. desember 2016 og lýsti hann yfir áfrýjun með tilkynningu 20. sama mánaðar. Eins og áður segir var málinu áfrýjað 21. þess mánaðar. Samkvæmt 2. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 getur ákærði ekki áfrýjað slíkum dómi, en þess í stað verður leitað endurupptöku eftir reglum XXIX. kafla laganna, sbr. dóm Hæstaréttar 16. september 2010 í máli nr. 89/2010. Samkvæmt þessu ber að vísa málinu frá Hæstarétti án kröfu.
Allur áfrýjunarkostnaður málsins, þar með talin málsvarnarlaun verjanda ákærða, sem ákveðin verða með virðisaukaskatti, greiðist úr ríkissjóði eins og greinir í dómsorði.
Dómsorð:
Máli þessu er vísað frá Hæstarétti.
Allur áfrýjunarkostnaður málsins greiðist úr ríkissjóði, þar með talinn málsvarnarlaun verjanda ákærða, Stefáns Karls Kristjánssonar hæstaréttarlögmanns, 124.000 krónur.
Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur 2. nóvember 2016.
Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 6. september 2016, á hendur X, kennitala [...], [...], Reykjavík, fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, sunnudaginn 27. mars 2016, ekið bifreiðinni [...] án þess að hafa öðlast ökurétt og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist tetrahýdrókannabínól 7,9 ng/ml) um [...] í Reykjavík, við hús nr. [...], þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.
Teljast brot þessi varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 með áorðnum breytingum.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar samkvæmt 101. og 102. gr. laga nr. 50/1987, sbr. 25. og 26. gr. laga nr. 44/1993, sbr. 18. gr. laga nr. 66/2006.
Ákærði sótti ekki þing við þingfestingu málsins og hafði ekki boðað forföll en hafði verið birt ákæra og fyrirkall. Verður málið dæmt samkvæmt heimild í a-lið 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála enda var þess getið í fyrirkallinu að þannig gæti farið um meðferð málsins.
Með vísan til framanritaðs og til rannsóknargagna málsins telst framangreind háttsemi sönnuð og er hún rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
Ákærði er fæddur í [...]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 31. ágúst 2016, á ákærði að baki nokkurn sakaferil. Við ákvörðun refsingar er miðað við að ákærði sé nú í þriðja sinn fundinn sekur um að aka undir áhrifum áfengis eða óhæfur til að stjórna bifreið örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna. Með hliðsjón af sakarefni þessa máls og ákvæðum 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og í samræmi við dómvenju, þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í þrjátíu daga.
Með vísan til lagaákvæða í ákæru er ákærði sviptur ökurétti ævilangt, frá birtingu dóms þessa að telja.
Ákærði greiði 87.014 krónur í sakarkostnað.
Valborg Steingrímsdóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóminn.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, X, sæti fangelsi í þrjátíu daga.
Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt, frá birtingu dóms þessa að telja.
Ákærði greiði 87.014 krónur í sakarkostnað.