Hæstiréttur íslands
Mál nr. 818/2017
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
Reifun
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Greta Baldursdóttir og Viðar Már Matthíasson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 20. desember 2017, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 21. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 20. desember 2017, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 17. janúar 2018 klukkan 15. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður fallist á að fullnægt sé skilyrðum c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 til áframhaldandi gæsluvarðhalds varnaraðila um þann tíma, sem þar er ákveðinn. Úrskurðurinn verður því staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur miðvikudaginn 20. desember 2017
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, kt. […] verði gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 17. janúar 2018, kl. 15:00.
Í greinargerð sækjanda kemur fram að kærði hafi verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald allt til miðvikudagsins 20. desember 2017 kl. 16.00 með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. R-423/2017 sem staðfestur hafi verið með dómi Hæstaréttar nr. 732/2017. Áður hafði hann verið úrskurðaður í gæsluvarðhald með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. R-372/2017 og R 334/2017 sem staðfestur hafi verið með dómi Hæstaréttar nr. 630/2017.
Ákæra hafi verið gefin út á hendur X af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu dagsett 25. október 2017 þar sem ákært hafi verið fyrir eftirfarandi brot:
- Umferðarlagabrot, með því að hafa laugardaginn 1. júlí ekið bifreiðinni […] um Bústaðaveg án þess að hafa öðlast ökuréttindi.
Mál nr. 007-2017-[…]
- Vopnalagabrot og hótanir, með því að hafa miðvikudaginn 4. júlí á Heiðarvegi í Heiðmörk í Reykjavík haft í vörslum sínum ásamt A, kt. […], byssu af gerðinni Remington 870 borið hana á almanna færi og skotið af byssunni nokkrum skotum án þess að hafa fengið til þess skotvopnaleyfi og ákærði X hótað B, kt. […], og C, kt. […], með því að miða byssunni á þau og hótað C að skjóta hann, sem var til þess fallið að vekja upp hjá þeim ótta um líf sitt, heilbrigði og velferð.
Mál nr. 007-2017-[…]
- fíkniefnalagabrot, með því að hafa þriðjudaginn 8. ágúst í bifreiðinni […] sem lögregla hafði afskipti af á Sæbraut í Reykjavík, haft í vörslum sínum 6,55 g af amfetamín sem lögregla fann við leit.
Mál nr. 007-2017-[...]
- Vopnalagabrot, með því að hafa miðvikudaginn 6. september á bifreiðastæði við […], haft í vörslum sínum hníf, sem lögregla fann við leit og lagt var hald á.
Mál nr. 007-2017-[…]
- Hótun, með því að hafa þriðjudaginn 26. september 2017 að […] í Reykjavík otað hníf að systur sinni, D, kt. […] sem var til þess fallið að vekja upp hjá henni ótta um líf sitt, heilbrigði og velferð.
Mál nr. 007-2017-[…]
Önnur ákæra hafi verið gefin út á hendur X þann 29. nóvember af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu þar sem að ákært hafi verið fyrir eftirtalin brot:
Fyrir fjárkúgun með því að hafa í félagi við Y og Z, þann 31. maí 2017, farið að heimili E, [...] í Reykjavík, X vopnaður byssu og Z vopnaður kylfu, og krafist þess að E greiddi þeim kr. 150.000 og hótað honum líkamlegu ofbeldi yrði hann ekki við kröfum þeirra. Í kjölfarið lagði brotaþoli kr. 150.000 inn á bankareikning ákærða Y. Hafi háttsemin verið til þess fallin að vekja hjá E ótta um líf sitt, heilbrigði og velferð.
Mál nr. 007-2017-[...]
Telst þetta varða við 251. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Fyrir hótun með því að hafa, í maí 2017, sent F skilaboð sem í fólust hótanir sem voru til þess fallnar að vekja hjá E ótta um líf, heilbrigði eða velferð sína, en í skilaboðunum stóð: „Can u get in touch with E for me and tell him im coming to his home and im going to brake his legs“.
Mál nr. 007-2017-[...]
Telst þetta varða við 233. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940
Málin hafi verið sameinuð og þingfest undir málsnúmerinu S 609/2017. Þá sé á dagskrá aðalmeðferð vegna málanna þriðjudaginn 9. janúar 2018.
Tekið er fram að X hafi sætt nálgunarbanni vegna ofangreindra mála nr. 007-2017-[…] og 007-2017-[…] gagnvart E og móður hans, G, frá 5. júlí sl. til 5. desember sl. samkvæmt úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. R-[…]/2017
Ákærði hafi með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli S-[...]/2015 verið sakfelldur fyrir meðal annars tilraun til manndráps, með því að hafa stungið mann fimm sinnum með hnífi með 21,3 cm blaði og sérstaklega hættulega líkamsárás þegar hann var talinn af ráðnum hug hafa stungið annan mann í kviðinn. Hafi honum verið gert að sæta fangelsi í fimm ár en refsingu hans hafi verið frestað og skyldi hún falla niður að liðnum fimm árum héldi hann hvort tveggja almennt og sérstakt skilorð. Með hinu sérstaka skilorði hafi verið ákveðið að dómfelldi sætti á skilorðstímanum umsjá barnaverndar til fullnaðs 18 ára aldurs en eftir það umsjón Fangelsismálastofnunar. Skyldi dómfelldi á skilorðstímanum hlíta fyrirmælum umsjónaraðila um dvalarstaði, sálfræði,- og geðlæknismeðferð, menntun, vinnu, umgengni við aðra menn og notkun tómstunda. Jafnframt skyldi hann hvorki neyta áfengis, deyfilyfja né fíkniefna af neinu tagi á skilorðstímanum.
Með hliðsjón af þeim málun sem X hafi nú verið ákærður fyrir og að teknu tilliti til skilorðsrofa X sé að mati lögreglu vafalaust að kærði muni hljóta óskilorðsbundna refsingu fái hann dóm fyrir þau brot sem nú séu til rannsóknar, enda hafi hann rofið í verulegum atriðum skilyrði sem honum hafi verið sett í skilorðsbundnum dómi í skilningi c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála. Þá sé það mat lögreglu að líkur séu til þess að hann muni halda áfram brotastarfsemi fari hann frjáls ferða sinna, enda í mikilli neyslu fíkniefna, nauðsynlegt sé því að kærði sæti gæsluvarðhaldi á meðan mál hans sæta dómsmeðferð.
Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamálamála sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.
Niðurstaða
Nú eru til meðferðar fyrir dómi brot ákærða sem varðað geta fangelsisrefsingu, m.a. í ljósi þess að hann hafi rofið skilorð samkvæmt öðrum dómi. Eru mál þessi rakin hér að framan. Ákærði er undir rökstuddum grun um að hafa gerst sekur um háttsemi sem fangelsisrefsing er lögð við, svo sem rakið er hér að framan og rannsóknargögn bera með sér. Fallast verður á með sóknaraðila að líklegt sé að ákærði haldi áfram brotastarfsemi sinni fari hann frjáls ferða sinna, og jafnvel að öðru fólki geti stafað ógn af ákærða. Með hliðsjón af rannsóknargögnum verður einnig að telja að fyrir liggi rökstuddur grunur um að ákærði hafi rofið í verulegum atriðum skilyrði sem honum voru sett í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í málinu nr. S-[...]/2015 frá [...]. apríl 2015. Með þeim dómi var ákærði sakfelldur fyrir m.a. tilraun til manndráps með því að hafa stungið annan mann fimm sinnum með hnífi með 21,3 cm blaði og sérstaklega hættulega líkamsárás þegar hann var talinn, af ráðnum hug, hafa stungið annan mann í kviðinn. Ákærði var dæmdur til fimm ára fangelsisvistar en vegna einkum ungs aldurs var sú refsing skilorðsbundin til fimm ára.
Fallist er því á með sóknaraðila að skilyrði 1. mgr., sbr. og c- liðar 1. mgr. 95. gr. laga 88/2008, um meðferð sakamála, séu uppfyllt. Ekki þykja efni til að marka gæsluvarðhaldinu skemmri tíma en krafist er. Krafa sóknaraðila um gæsluvarðahald er því tekin til greina eins og nánar greinir í úrskurðarorði.
Arnfríður Einarsdóttir héraðsdómari kveður upp þennan.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákærði, X, kt. […], skal sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 17. janúar 2018, kl. 15:00.