Hæstiréttur íslands

Mál nr. 158/2002


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gjaldþrotaskipti
  • Útivist
  • Kæruheimild
  • Frávísun frá Hæstarétti


Mánudaginn 8

 

Mánudaginn 8. apríl 2002.

Nr. 158/2002.

Bragi B. Blumenstein

(Árni Grétar Finnsson hrl.)

gegn

Landsbanka Íslands hf.

(enginn)

 

Kærumál. Gjaldþrotaskipti. Útivist. Kæruheimild. Frávísun máls frá Hæstarétti.

Að kröfu L hf. kvað héraðsdómari upp úrskurð um að bú B væri tekið til gjaldþrota­skipta. B sótti ekki þing í héraði þegar málið var tekið fyrir og brast því heimild til kæru þess. Vegna þess var málinu vísað frá Hæstarétti.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Árni Kolbeinsson og Ingibjörg Benediktsdóttir.

Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 20. febrúar 2002, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 4. apríl sama árs. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 25. janúar 2002, þar sem bú sóknaraðila var tekið til gjaldþrotaskipta. Um kæruheimild vísar sóknaraðili til 179. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. Hann krefst þess að hinn kærði úrskurður verði ómerktur.

Varnaraðili hefur ekki látið málið til sín taka fyrir Hæstarétti.

Sóknaraðili sótti ekki þing í héraði, þegar mál þetta var tekið fyrir í annað sinn á dómþingi 17. október 2001. Gekk hinn kærði úrskurður í framhaldi af því. Í dómi Hæstaréttar, sem birtur er í dómasafni 1992 bls. 2028, sbr. og dóm 4. desember 2001 í málinu nr. 432/2001, voru ákvæði laga nr. 21/1991 skýrð með hliðsjón af 4. mgr. 96. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála á þann veg að heimild brysti til kæru máls sem þessa þegar þannig stæði á. Ber samkvæmt því að vísa málinu sjálfkrafa frá Hæstarétti.

Kærumálskostnaður verður ekki dæmdur.

Dómsorð:

Máli þessu er vísað frá Hæstarétti.

 

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 25. janúar 2002.

Mál þetta var tekið til úrskurðar 17. október 2001.

Með bréfi sem barst Héraðsdómi Reykjavíkur 4. maí 2001 hefur Landsbanki Íslands hf., kt. 540291-2259, Austurstræti 11, Reykjavík, krafist þess að bú Braga B. Blumenstein, kt. 150560-2339, Lokastíg 16, Reykjavík, verði tekið til gjaldþrotaskipta.

Skiptabeiðandinn kveðst eiga kröfu á hendur skuldaranum eins og nánar greinir í stefnu áritaðri 3. október 1998.  Í kröfunni er höfuðstóll skuldarinnar ásamt vöxtum og kostnaði tilgreindur kr. 1.524.452,30.  Gert hafi verið árangurslaust fjárnám hjá skuldara 8. febrúar 2001. Um lagastoð fyrir kröfu sinni vísar skiptabeiðandi til 1. tl. 2. mgr. 65. gr. laga nr. 21/1991.

Krafa skiptabeiðanda var tekin fyrir á dómþingi 19. september 2001 og var þá sótt þing af hálfu skuldara og málinu frestað til 17. október 2001.  Þá var eigi sótt þing af hálfu skuldara og málið tekið til úrskurðar að kröfu skiptabeiðanda.  Er því fullnægt skilyrðum 1. tl. 2. mgr. 65. gr. sömu laga til að verða við kröfu skiptabeiðanda og er bú skuldarans tekið til gjaldþrotaskipta.

Eggert Óskarsson héraðsdómari kvað upp úrskurð þennan.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð :

Bú Braga B. Blumenstein, kt. 150560-2339, Lokastíg 16, Reykjavík, er tekið til gjaldþrotaskipta.