Hæstiréttur íslands
Mál nr. 410/2010
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald
|
|
Mánudaginn 28. júní 2010. |
|
Nr. 410/2010. |
Ákæruvaldið (Sigríður Elsa Kjartansdóttir saksóknari) gegn X (Sveinn Andri Sveinsson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Hjördís Hákonardóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 24. júní 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 24. júní 2010, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi þar til endanlegur dómur gengur í máli hans en þó ekki lengur en til miðvikudagsins 18. ágúst 2010 kl. 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Fallist verður á með héraðsdómi að skilyrði c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 séu uppfyllt til að hinn kærði úrskurður verði staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 24. júní 2010.
Ríkissaksóknari hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að dómfelldi í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá 27. maí 2010, X, kt. [...], með dvalarstað í hegningarhúsinu við Skólavörðustíg í Reykjavík, verði gert að sæta gæsluvarðhaldi þar til endanlegur dómur gengur í máli hans, þó eigi lengur en til fimmtudagsins 15. september 2010 kl. 16.00.
Í greinargerð ákæruvalds kemur fram að með ákæru dags. 30. mars 2010 hafi dómfelldi verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, með því að hafa aðfaranótt þriðjudagsins 3. mars 2010, utandyra við [...], [...], slegið A nokkrum sinnum í höfuðið með skiptilykli með þeim afleiðingum að hann hafi hlotið þriggja sm langan skurð á enni og tvo sjö sm langa skurði á hvirfli. Brotið sé í ákæru talið varða við 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 11. gr. laga nr. 20/1981.
Með ákæru dags. 9. apríl sl. hafi dómfelldi verið ákærður annars vegar fyrir umboðssvik, með því að hafa fimmtudaginn 28. janúar 2010, misnotað aðstöðu sína og tekið í heimildarleysi kr. 350.000 út af bankareikningi B, kennitala [...], nr. [...] en ákærði hafi notað við það debetkort og PIN- númer sem B hafði látið hann hafa nokkru áður til notkunar í sína þágu. Ákærði hafi tekið féð út af reikningi B og lagt inná bankareikning sinn nr. [...], í fjórum færslum, þremur samtals að fjárhæð kr. 300.000 í gegnum hraðbanka Arion banka við [...] og einni að fjárhæð kr. 50.000 í hraðbanka Byr sparisjóðs, [...]. Í ákæru sé brotið talið varða við 249. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Hins vegar hafi dómfelldi verið ákærður fyrir fjársvik, með því að hafa að morgni miðvikudagsins 5. ágúst 2009, við [...], tekið far með leigubifreið sem ekið var af C, án þess að eiga fyrir farinu, látið aka sér í [...], að [...] og í [...], þar sem hann hafi yfirgefið bifreiðina með þeim orðum að hann kæmi til baka innan skamms, en þess í stað farið á brott án þess að greiða fargjald að fjárhæð kr. 7.900 eða gert ráðstafanir til að það yrði greitt. Í ákæru sé þetta brot talið varða við 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur dags. 27. maí 2010 í máli nr. S-251/2010 var dómfelldi verið sakfelldur samkvæmt þessum tveimur ákærum og dæmdur til að sæta fangelsi í 3 ár. Dómfelldi hafi með yfirlýsingu dags. 23. júní 2010 í dag lýst yfir áfrýjun málsins til Hæstaréttar.
Með dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra frá 15. maí 2009 í mál nr. S-71/2009 hafi dómfelldi verið dæmdur í 18 mánaða fangelsi og hafi fullnustu 15 mánaða af refsingunni frestað skilorðsbundið í 3 ár. Dómfelldi hafi hafið afplánun á óskilorðsbundna hluta refsingarinnar 4. mars sl. eftir að hann hafi verið handtekinn vegna málsins. Skilorðsbundni hluti dómsins hafi verið dæmdur upp í dóminum frá 27. maí. Þriðjudaginn 1. júní nk. hafi dómfelldi lokið þeirri afplánun og með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur nr. R-226/2010 verið gert að sæta gæsluvarðhaldi frá þeim degi og meðan á áfrýjunarfresti hafi staðið í máli hans.
Með vísan til tilvitnaðra lagaákvæða, með hliðsjón sakarferli dómfellda, alvarleika sakarefnis og á grundvelli almannahagsmuna þyki nauðsynlegt að dómfelldi sæti gæsluvarðhaldi þar til endanlegur dómur hefur gengið í máli hans.
Eins og sjá megi á meðfylgjandi gögnum hafi dómfelldi ítrekað gerst sekur um afbrot frá árinu 2005.
Til hliðsjónar sé vísað til dóma Hæstaréttar í máli nr. 144/2006 hvað varði það að gæsluvarðhald komi í kjölfar afplánunar.
Til hliðsjónar megi einnig líta til dóma Hæstaréttar í máli nr. 139/2006 og 418/2005
Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna, og tilvitnaðra lagaákvæða sé þess krafist að framangreind krafa nái fram að ganga.
Með vísan til alls framangreinds og gagna málsins að öðru leyti er fallist á það með ríkissaksóknara að skilyrðum til c liðar 1. mgr. og 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, sbr. 3. mgr. 97. gr. sömu laga sé fullnægt til að verða við kröfu ákæruvaldsins um gæsluvarðhald þar til endanlegur dómur gengur í máli hans, þó eigi lengur en til miðvikudagsins 18. ágúst 2010 kl. 16.00.
Pétur Guðgeirsson héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð:
Dómfelldi, X, kt. [...], skal sæta gæsluvarðhaldi þar til endanlegur dómur gengur í máli hans, þó eigi lengur en til miðvikudagsins 18. ágúst 2010 kl. 16.00