Hæstiréttur íslands
Mál nr. 693/2009
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. B. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Mánudaginn 7. desember 2009. |
|
Nr. 693/2009. |
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum(Alda Hrönn Jóhannsdóttir fulltrúi) gegn X (Björgvin Jónsson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. B. og d. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, á grundvelli b. og d. liða 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur. Hins vegar var einangrun X í gæsluvarðhaldinu aflétt.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Jón Steinar Gunnlaugsson og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 2. desember 2009, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 4. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 2. desember 2009, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 30. desember 2009 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími og einangrun verði aflétt.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Varnaraðili hefur sætt gæsluvarðhaldi frá 18. október 2009.
Varnaraðili er einn fimm manna sem nú sæta gæsluvarðhaldi vegna þeirrar rannsóknar sem getur í hinum kærða úrskurði. Er hann annar tveggja sem talinn er liggja undir grun um að hafa framið brot sem að lögum getur varðar meira en 10 ára fangelsi en slíkt er meðal forsendna fyrir að fallast megi á kröfu sóknaraðila um einangrun varnaraðila í gæsluvarðhaldinu sbr. 2. mgr. 98. gr. laga nr. 88/2008. Hinir sakborningarnir sæta takmörkunum í gæsluvarðhaldi samkvæmt c., d. og f. liðum 1. mgr. 99. gr. laganna. Sóknaraðili hefur ekki fært fram fullnægjandi rök fyrir því að samskonar takmarkanir dugi ekki í máli varnaraðila og nauðsynlegt sé að hann sæti einangrun samkvæmt b. lið sömu lagagreinar. Verður því ákvæði hins kærða úrskurðar um einangrun varnaraðila fellt úr gildi en úrskurðurinn að öðru leyti staðfestur með vísan til forsendna.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur að öðru leyti en því að ákvæði hans um einangrun varnaraðila, X, er fellt úr gildi.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 2. desember 2009.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur í dag krafist þess að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði að X, kt. [...], verði með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 30. desember 2009, kl. 16.00.
Þess er krafist að kærða verði gert að sæta einangrun í gæsluvarðhaldi skv. b-lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008.
Í greinargerð lögreglustjóra segir að hann hafi í samvinnu við önnur lögregluembætti, allt frá 10. október sl., haft til rannsóknar ætlað mansal ásamt fleiri brotum sem lögreglan ætlar að séu hluti af skipulagðri glæpastarfsemi. Kærði sé grunaður í því máli og hafi hann setið í gæsluvarðhaldi frá 14. október sl. Varðandi frekari málsatvik er vísað til fyrri krafna um gæsluvarðhald fyrir dómnum svo og til gagna málsins.
Kærði hafi viðurkennt að hafa verið einn þeirra manna sem hafi verið að leita hins ætlaða fórnarlambs mansals. Kærði hafi viðurkennt að hafa ætlað að sækja konu að nafni A í flugstöðina fyrir félaga sinn. Það sé jafnframt ætlun lögreglu að kærði hafi verið einn af þeim sem hafi verið að spyrjast fyrir um konuna á lögreglustöðvum og heilbrigðisstofnunum seinna um nóttina og daginn eftir. Jafnframt hafi hann verið einn af þeim sem sótti konuna til Keflavíkur að kvöldi 12. október sl. í því skyni að koma henni undan lögreglu. Þá liggi fyrir upplýsingar hjá lögreglu um að kærði stundi það ásamt meðkærðu að innheimta verndartolla af samlöndum sínum hér á landi og vísast til framburða þess efnis og gagna málsins.
Þá hafi fundist munir á heimili unnustu kærða úr sama stórfellda innbroti í úraverslun og hjá meðkærðu Y og Z. Þá hafi lögregla rökstuddan grun til að ætla að meðkærðu Þ og Æ hafi þýfi úr sama innbroti í sínum vörslum.
Einnig hafi lögreglan rökstuddan grun um að kærði hafi stungið mann í lærið með hníf fyrir nokkrum vikum síðan og að hann kunni að vera tengdur ætluðum tryggingarsvikum á Snæfellsnesi í ágúst sl. Vísast til gagna málsins og framburða þess efnis.
Verulegs ósamræmis og ótrúverðugleika gæti í framburði kærða og annarra aðila sem nú sitji einnig í gæsluvarðhaldi.
Rannsókn máls þessa sé nú lokið og hafi málið verið sent ríkissaksóknara til frekari meðferðar. Málið sé mjög umfangsmikið og hafi teygt anga sína víða og telur lögreglan að rökstuddur grunur sé á að um sé að ræða verulega umfangsmikla skipulagða glæpastarfsemi sem kærði tengist ásamt meðkærðum. Rannsókn málsins hafi verið unnin í nánum samskiptum við erlend lögregluyfirvöld og sérstaklega við lögregluyfirvöld í Litháen, en fyrir liggi fjöldi gagna þaðan er varði aðdraganda og forsögu af ferð konunnar hingað til lands og sakarferla hinna kærðu þar í landi. Sú háttsemi sem kærða hafi verið gefið að sök telur lögreglustjóri að kunni einkum að varða við ákvæði 2. mgr. 218. gr., 227. gr. a, 244. gr. og 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en brot gegn 227. gr. a geti varðað fangelsisrefsingu allt að 8 árum.
Að mati lögreglu hafi sá grunur styrkst til muna að um verulega skipulagða glæpastarfsemi sé að ræða sem kærði tengist og hann sé talinn einn af forsprökkum, ásamt þremur öðrum meðkærðum sem nú sitji í gæsluvarðhaldi. Telur lögregla rökstuddan grun til að ætla að þessi ætlaða skipulagða glæpastarfsemi tengist litháísku mafíunni og kærði sé einn af þeim aðilum sem veiti henni forystu hér á landi í því skyni að tryggja stöðu starfseminnar. Vísast nánar um það til hættumats greiningardeildar ríkislögreglustjóra sem liggi fyrir í gögnum málsins.
Með vísan til framangreinds og þess að lögreglustjóri telur að öðru fólki stafi veruleg hætta af kærða verði hann látinn laus, þar sem við rannsókn málsins hafi berlega komið í ljós að fólk sé mjög hrætt við að gefa framburð gegn kærðu af ótta við hefndaraðgerðir. Þá vísar lögreglustjóri til þess að kærði sé af erlendu bergi brotinn og verulegar líkur á að hann reyni að yfirgefa Ísland eða komast undan ætlaðri refsingu verði hann ekki látinn sitja í gæsluvarðhaldi þar til rannsókn málsins sé lokið og dómur gangi í málinu. Þá vísar lögreglustjóri jafnframt til þess að þær sakir sem lögreglan ætlar að kærði kunni að eiga aðild að séu verulega alvarlegar og varði helgustu réttindi fólks. Með vísan til þess telur lögreglan nauðsynlegt að kærði sæti áfram gæsluvarðhaldi til að verja aðra fyrir árásum hans og samfélagið allt fyrir hinni ætluðu skipulögðu glæpastarfsemi sem virðist þegar hafa fest rætur hér á landi.
Þess er krafist að kærða verði gert að sæta einangrun í gæsluvarðhaldinu samkvæmt b-lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008. Til stuðnings þeirri kröfu vísar lögreglustjóri til þess að lögregla telur að öðru fólki og þar á meðal vitnum í því máli sem hér sé til rannsóknar kunni að vera hætta búin nái kærði til þeirra og annarra aðila sem tengist hinni ætluðu glæpastarfsemi og lögregla hafi ekki handtekið. Rökstuddur grunur sé til að ætla að hann fái aðra aðila til að hefna og hafa áhrif á framburði vitna áður en málið sé til lykta leitt fyrir dómstólum ef hann sé ekki látinn sæta einangrun.
Með vísan til alls framangreinds, gagna málsins, b- og d-liða 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, 2. mgr. 218. gr. og 227. gr., 244. gr. og 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 telur lögreglustjóri brýna hagsmuni standa til þess að kærða verði áfram gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 30. desember 2009, kl. 16.00.
Samkvæmt gögnum málsins er kærði undir rökstuddum grun um að hafa framið brot sem fangelsisrefsing liggur við. Rannsókn máls þessa hefur verið umfangsmikil og henni er nú lokið. Málið hefur verið sent til ríkissaksóknara til frekari meðferðar. Kærði er erlendur ríkisborgari og hann hefur ekki sérstök tengsl við landið. Verður að telja hættu á því að hann reyni að komast úr landi meðan mál hans er til meðferðar. Þá verður að líta til þess að í málinu hefur verið lagt fram hættumat greiningardeildar ríkislögreglustjóra þar sem kemur fram að öryggi vitna og annarra sé ógnað gangi kærði laus. Með vísan til framangreinds og b- og d-liða 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála, er því fallist á kröfu lögreglustjóra, eins og nánar greinir í úrskurðarorði. Með hliðsjón af þeirri hættu sem talin er stafa af kærða er fallist á að hann skuli sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur. Mikilvægt er að fylgst verði vel með líðan kærða í einangruninni.
Úrskurð þennan kveður upp Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari.
Úrskurðarorð:
Kærða, X, er áfram gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 30. desember 2009, kl. 16.00.
Kærði skal sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur.