Hæstiréttur íslands
Mál nr. 348/2006
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Mánudaginn 3. júlí 2006. |
|
Nr. 348/2006. |
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði(Alda Hrönn Jóhannsdóttir fulltrúi) gegn X (Bjarni Hauksson hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi áfram sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Gunnlaugur Claessen, Árni Kolbeinsson og Hjördís Hákonardóttir.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 28. júní 2006, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 30. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 28. júní 2006, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 4. júlí 2006 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.
Sóknaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði staðfestur.
Rökstuddur grunur er um að kærði hafi átt aðild að skotárás á [B-hús], 21. júní síðastliðinn. Vopn það sem notað var er ófundið og rannsókn málsins er ólokið. Um alvarlegt atvik er að ræða og ljóst að háttsemi kærða getur varðað fangelsisrefsingu ef sök sannast. Úrskurður héraðsdóms verður staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 28. júní 2006.
Lögreglustjórinn í Hafnarfirði hefur krafist þess með skírskotun til a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála að X, [kt. og heimilisfang] verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 4. júlí nk. kl. 16:00.
Vísað er til úrskurðar Héraðsdóms Reykjaness frá 22. júní sl. í máli nr. R112/2006 en þar eru málavextir eru þeir að að morgni 21. júní sl. tilkynntu vitni um að skothvellir hefðu heyrst í hverfinu við A. Vitni sögðu að eftir að skothvellirnir hafi heyrst hafi bifreið verið ekið hratt í burtu. Stuttu síðar hafi þrír menn komið út úr húsinu við B og tveir hundar. Þeir hafi stuttlega aðgætt að verksummerkjum en síðan farið upp í svarta [ ] bifreið og ekið í miklum flýti af stað. Einn mannanna hafi verið vopnaður felgulykli. Lögreglan hafði samband við húsráðanda, C, kl. 09:28. Hann leyfði húsleit heima hjá sér en vildi ekki skýra lögreglu að öðru leyti frá því sem gerðist.
Kærði X hafði viðurkennt hjá lögreglu að hafa komið á staðinn í bifreið með meðkærðu, D og E og hafði lögreglan krafist gæsluvarðhalds yfir þeim öllum. X hafði sagt hjá lögreglu að E hafi skotið úr haglabyssu að húsinu. Aðrir kærðu höfðu ekki viljað tjá sig um málið.
Kærði hefur nú greint nánar frá þátttöku sinni í málinu hjá lögreglu og kveðst hafa farið af vettvangi og falið skotvopnið sem beitt var. Hafi hann svo sótt vopnið ásamt þeim er átti vopnið og þeir farið með það á dvalarstað þess aðila. Vopnið er um ræði hafi ekki fundist. Þá bendi upplýsingar við meðferð málsins til þess að vitni gætu vitað hvar vopnið sé niður komið og hætta sé á að kærði geti haft áhrif á framburð þeirra og meðkærðu og/eða komið vopninu undan gangi hann laus.
Rannsókn máls þessa er nokkuð vel á veg komin og er fram kominn nokkuð sterkur grunur þátt kærða í ætluðu broti með meðkærðu.. Það verður að teljast mjög mikilvægt fyrir rannsókn málsins að umrædd haglabyssa finnist og hefur lögreglan upplýsingar um að tvö vitni gætu gefið upplýsingar um hvar haglabyssan er nú niður komin. Telja má það mjög líklegt að það muni torvelda rannsókn málsins ef kærða og meðkærðu verður sleppt úr haldi áður en vitni þessi hafa verið yfirheyrð og eru því rannsóknarnauðsynjar til þess að kærði X sæti áfram gæsluvarðhaldi eins og krafist er og er krafa lögreglustjórans í Hafnarfirði tekin til greina með vísun í a lið 1. mg. 103. gr. laga nr. 19/1991.
Guðmundur L. Jóhannesson, héraðsdómari, kveður upp úrskurð þennan.
ÚRSKURÐARORÐ:
Kærði, X, sæti gæsluvarðhaldi allt til kl. 16:00 þriðjudaginn 4. júlí nk.