Hæstiréttur íslands

Mál nr. 28/2016


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


                                            

Mánudaginn 11. janúar 2016.

Nr. 28/2016.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum

(Guðmundur Þórir Steinþórsson fulltrúi)

gegn

X

(Theodór Kjartansson hdl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. 

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli c. liðar 1. mgr. 95. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Helgi I. Jónsson, Benedikt Bogason og Karl Axelsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 7. janúar 2016, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 7. janúar 2016, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi meðan á áfrýjunarfresti máls Héraðsdóms Reykjaness nr. S-[...]/2015 stendur, þó eigi lengur en til 4. febrúar 2016 klukkan 16. Kæruheimild er í b. lið 2. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

                                                                 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 7. janúar 2016.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði að dómfelldi, X, fæddur [...], sæti áframhaldandi gæsluvarðhaldi til fimmtudagsins 4. febrúar 2016, kl. 16:00.

Dómfelldi mótmælir kröfu lögreglustjóra.

I

                Til þess er vísað í kröfu lögreglustjórans á Suðurnesjum að embættið hafi haft ætluð fjársvikabrot dómfellda til meðferðar frá því hann kom til landsins í lok júlí 2015. Ákærði hafi þá verið handtekinn grunaður um að hafa svikið út þann farmiða sem hann ferðaðist á með því að gefa upp, í blekkingarskyni og án heimildar, greiðslukorta­númer annars manns. Þá hafi við leit í farangri dómfellda fundist fjöldi muna honum óviðkomandi, greiðslukort, óútfyllt brottfararspjöld frá mismunandi flugfélögum, merkimiðar ætlaðir áhöfnum mismunandi flugfélaga, óútfylltir úttektarmiðar fyrir hótel o.fl. Dómfelldi hafi sætt gæsluvarðhaldi vegna málsins til 26. ágúst sl. er honum hafi verið gert að sæta farbanni. Lögreglustjóri hafi gefið út ákæru vegna ætlaðra fjársvika við greiðslu flugbókana frá 26. júlí 2015, samtals að andvirði 327.450 krónur og hafi dómur verið kveðinn upp í málinu fyrr í dag. 

                Frá lokum októbermánaðar hafi dómfelldi sætt rannsókn að nýju vegna áþekkra fjársvikabrota og auðgunarbrota sem tengist verðmætum munum sem fundist hafi í híbýlum ákærða. Samkvæmt rannsóknargögnum málsins hafi á tímabilinu 26.-29. október 2015 verið gerðar fimm mismunandi bókanir í flug með [...] hingað til lands á nafni móður ákærða, [...]. Við greiðslu á öllum bókunum hafi verið gerðar samtals 28 tilraunir til að greiða með nítján greiðslukortanúmerum manna víða um heim. Farmiðar í hverri flugbókun hafi verið að verðmæti 117.000-146.000 krónur og samkvæmt því megi áætla að andlag hinna ætluðu brota hafi numið yfir 600.000 krónum, hefðu greiðslur gengið í gegn. Allar bókanirnar hafi verið framkvæmdar af aðila sem tengst hafi þráðlausu neti gistiheimilisins [...], [...], Reykjavík, hvar dómfelldi dvaldist og starfaði á meðan hann sætti farbanni. Í kjölfar þess að framangreindar bókanir gengu ekki í gegn fór dómfelldi á söluskrifstofu [...] í [...] og greiddi fyrir farmiða á nafni móður sinnar, sem hann hafði áður bókað símleiðis, í reiðufé.

Lögreglustjóri segir grun strax hafa fallið á dómfellda í málinu og hafi hann verið handtekinn á fyrrnefndu gistiheimili 2. nóvember 2015. Á vettvangi hafi komið í ljós að upplýsingar um í það minnsta tvo gesti gistiheimilisins voru notaðar við bókanir. Í framhaldinu hafi leit verið framkvæmd í vistarverum dómfellda, og að því er virðist móður hans, sem þá hefði verið komin til landsins. Við leitina hafi fundist fjölmörg handskrifuð kortanúmer, sum hver úr bókunum gesta á gistiheimilinu. Jafnframt hafi fundist mikið magn af dýrum útivistarfatnaði, auðsýnilega úr hérlendum verslunum. Nemi andvirði þess um 1.000.000 króna. Rannsókn málsins hafi verið nokkuð mikil umfangs vegna eðlis þeirra brota sem til rannsóknar voru. Dómfelldi hafi við rannsóknina verið yfirheyrður tvívegis og að mati lögreglu sé framburður hans ótrúverðugur og þær skýringar sem hann hefur gefið um margt fjarstæðukenndar. Rannsókn þessa máls sé nú lokið og málið komið til meðferðar hjá ákæranda. Ákvörðun hafi verið tekin um saksókn og standi vonir til þess að málið berist héraðsdómi á næstu dögum.

                Vegna hinna nýju mála hafi lögreglustjóri, hinn 3. nóvember sl., gert kröfu um að dómfellda yrði gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a-, b- og c-liða 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Með úrskurði héraðsdóms þann sama dag hafi ákærða verið gert að sæta farbanni. Dómfelldi hafi þá verið leystur úr haldi. Með dómi Hæstaréttar Íslands hinn 9. nóvember sl. í málinu nr. 754/2015 hafi dómfelldi verið dæmdur til að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 til þriðjudagsins 17. nóvember 2015, kl. 16:00. Hafi dómfelldi verið handtekinn þann sama dag á umræddu gistiheimili og hafi þá fundist fleiri munir, áþekkir þeim sem hald var lagt á í fyrri húsleit. Hann hafi sætt gæsluvarðhaldi í rúmlega átta vikur vegna þessa, eða frá 9. nóvember sl., sbr. dóma Hæstaréttar í málum nr. 780/2015 og 834/2015.

II

                Lögreglustjóri telji í ljósi framangreinds að dómfelldi sé undir sterkum rökstuddum grun um að hafa brotið gegn ákvæði 248. gr., og eftir atvikum 244. eða 254. gr., almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með háttsemi sinni, en við slíkum brotum liggi allt að sex ára fangelsi. Það sé mat lögreglustjóra í ljósi réttarframkvæmdar hér á landi og sakaferils ákærða að brot dómfellda muni ekki hafa í för með sér sektir eða skilorðsbundna refsingu, verði hann fundinn sekur vegna hinna nýrri mála.

                Aðstæður séu nú hinar sömu og þegar Hæstiréttur Íslands gerði dómfellda að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Ekki sé völ á vægari úrræðum en gæsluvarðhaldi í ljósi atvika málsins. Því sé brýn þörf á því að dómfellda verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi á meðan mál hans sé til meðferðar innan refsivörslukerfisins hér á landi. Í því sambandi bendi lögreglustjóri á að ákærði hafi við uppkvaðningu dóms í málinu nr. S-[...]/2015 fyrr í dag tekið sér lögbundinn frest til ákvörðunar um áfrýjun málsins.

                Þá vísar lögreglustjóri einnig til þess að dómfelldi sé vanaafbrotamaður sem láti sér ekki segjast, svo sem hann hafi sýnt í verki bæði á undanförnum árum, sbr. langan sakaferil dómfellda erlendis, og eftir að lögregla hafði fyrst af honum afskipti hér á landi í júlí 2015. Ætla megi að dómfelldi muni halda brotum áfram á meðan málum hans sé ekki lokið, gangi hann laus. Samkvæmt þessu séu skilyrði c- liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 uppfyllt í málinu og nauðsynlegt að dómfellda verði gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi.

                Með vísan til alls framangreinds, gagna málsins, c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, og 3. mgr. 97. gr. sömu laga, telji lögreglustjóri brýna refsivörsluhagsmuni standa til þess að dómfellda verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, allt til fimmtudagsins 4. febrúar 2016, kl. 16:00.

III

Samkvæmt framansögðu hefur dómfelldi sætt gæsluvarðhaldi frá 9. nóvember 2015 á grundvelli c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Fyrr í dag var hann sakfelldur fyrir brot gegn 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Var refsing dómfellda ákveðin sex mánaða fangelsi. Dómfelldi var viðstaddur uppkvaðningu dómsins og fékk endurrit hans afhent í þinghaldinu. Var því lýst yfir af hálfu dómfellda að hann tæki sér lögbundinn fjögurra vikna frest til ákvörðunar um áfrýjun.

Með vísan til framangreinds og 3. mgr. 97. gr. laga nr. 88/2008 þykja uppfyllt lagaskilyrði til þess að fallast á kröfu lögreglustjóra og gera dómfellda að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi með þeim hætti sem nánar greinir í úrskurðarorði.

Úrskurð þennan kveður upp Kristinn Halldórsson héraðsdómari.

ÚRSKURÐARORÐ

                Dómfellda, [...], fæddum [...], er gert að sæta gæsluvarðhaldi meðan á áfrýjunarfresti málsins nr. S-[...]/2015 stendur, þó eigi lengur en til 4. febrúar 2016, kl. 16:00.