Hæstiréttur íslands

Mál nr. 125/2016

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H. B. Snorrason saksóknari)
gegn
X (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)

Lykilorð

  • Kærumál
  • Farbann

Reifun

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta áfram farbanni á grundvelli 1. mgr. 100. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, sbr. 2. mgr. 95. gr. sömu laga.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Helgi I. Jónsson og Benedikt Bogason og Guðrún Erlendsdóttir settur hæstaréttardómari.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 16. febrúar 2016, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 16. febrúar 2016, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram farbanni allt til þriðjudagsins 15. mars 2016 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að hann haldi frelsi sínu gegn því að hann setji tryggingu.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

                                                           

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 16. febrúar 2016.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði að X, kt. […], skuli sæta áframhaldandi farbanni, allt til þriðjudagsins 15. mars 2016, kl. 16:00. 

Í greinargerð lögreglustjóra segir að hann hafi haft til rannsóknar stórfellt fíkniefnalagabrot er varðar innflutning á sterkum fíkniefnum hingað til lands.

Þann 28. september sl. hafi lögreglan lagt hald á rúmlega 19,5 kg af amfetamíni og rúmlega 2,5 kg af kókaíni sem hafi fundist í bifreið sem hafi verið staðsett við gistiheimili að […] í […]. Tveir erlendir aðilar hafi verið handteknir inni í húsnæðinu grunaðir um aðild að innflutningi fíkniefnanna hingað til lands en annar þeirra hafi komið með bifreiðina til landsins með ferjunni Norrænu þann 22. september sl. Lögreglan hafi verið með eftirlit með bifreiðinni sem innihélt fíkniefnin í nokkra daga. Við það eftirlit hafi lögreglan ítrekað orðið vör við aðra bifreið sem virtist fylgja hinni eftir. Um hafi verið að ræða bílaleigubifreiðar sem meðkærði Y hafi verið skráður leigutaki að. Þá hafi lögreglan einnig borið kennsl á kærða í bifreiðinni. Kærði hafi verið handtekinn þennan sama dag ásamt fleirum og sætt gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknar málsins.

Kærði hafi neitað sök við skýrslutöku hjá lögreglu. Framburði kærða beri ekki saman við þau gögn sem lögreglan hafi undir höndum, framburð meðkærða og vitna. Í framburðum meðkærðu hjá lögreglu hafi komið fram að erlendir aðilar hafi tekið þátt í skipulagningu innflutningsins og þeir verið í samskiptum eða í samstarfi við aðila hér á landi sem fylgdust með ferðum bifreiðarinnar. Það er ætlun lögreglu að kærði og meðkærði Y hafi verið samstarfsmenn þessara aðila hér á landi.

Við skoðun á þeim gögnum sem haldlögð hafa verið í málinu hafi margt komið fram sem styrki grun lögreglu um aðild kærða að innflutningnum. Við leit á heimili kærða hafi fundist myndavél og við skoðun á henni hafi fundist minniskort sem notað hafi verið í farsíma hans. Á því korti hafi fundist myndir frá því fyrr í sumar af ferjunni Norrænu áður en henni er lagt að bryggju á Seyðisfirði og myndir sem sýni akstur bifreiða frá Norrænu sem og umhverfið í kringum skipið. Við leit á heimili og í bifreið kærða hafi fundist kassar utan af Blackberry símum. Einn kassinn hafi verið utan af síma sem meðkærði Y hafi verið með við handtöku og telur lögreglan að sá sími hafi verið notaður í samskiptum við erlenda samverkamenn. Við rannsókn lögreglu á þessum síma hafi komið í ljós að símtækið hafi eingöngu verið hægt að nota í þeim tilgangi að eiga dulkóðuð texta samskipti. Kærði kannist ekkert við það að hafa átt eða keypt slík símtæki. Í bifreið kærða hafi einnig fundist blað þar sem fram komi upplýsingar sem lögreglan telur tengjast ofangreindum innflutningi fíkniefnanna hingað til lands, en þar hafi m.a. verið kortanúmer á Ikortum sem lögreglan ætlar að hafi verið notuð til að fjármagna innflutninginn. Þá hafi þar verið að finna upplýsingar um flutning á bifreið frá Hollandi til Íslands.

Með heimild Héraðsdóms Reykjaness hafi lögreglan skoðað síma og fjármálagögn kærða. Við þá skoðun hafi margt komið fram sem styrki grun lögreglu. Ljóst sé að kærði hafi nokkuð fjármagn í höndunum og virðist vera sem mikið fjármagn sé að fara á milli kærða og meðkærða Y hér á landi og erlendis. Kærði segi þó mjög lítil fjárhagsleg tengsl vera á milli þeirra Y. Við skoðun lögreglu á fjármálagögnum kærða og meðkærða Y hafi komið í ljós að á tímabilinu 21. ágúst til 25. ágúst hafi kærði lagt inn rúmlega 4,3 milljónir króna á Ikort. Alls hafi verið lagðar rúmlega 9 milljónir króna inn á 30 Ikort á tímabilinu frá 22. júlí til 10. september. Þá hafi rúmlega 7 milljónir verið teknar út af kortunum í hraðbönkum erlendis. Lögreglan hafi í höndum gögn sem sýni úttektir af Ikortum í hraðbönkum í Hollandi dagana 12.-17. september sl. en fíkniefnin hafi komið hingað til lands þann 22. september. Kærði hafi neitað að tjá sig um það hver eða hverjir hafi tekið út þessa peninga sem hann lagði inn á Ikortin. Við leit í bifreið kærða hafi einnig fundist símanúmer, en það símanúmer hafi verið notað til að virkja hluta þeirra Ikorta sem lögreglan hafi lagt hald á. Lögreglan telur að þessir peningar hafi verið notaðir til að greiða fyrir fíkniefnasendinguna. Þá hafi komið í ljós að kærði hafi ítrekað keypt flugferðir fyrir meðkærða Y, en aðspurðir hafi þeir neitað að tjá sig um það hjá lögreglu.  

Kærði þyki vera undir sterkum grun um aðild að broti sem geti varðað allt að 12 ára fangelsi. Að mati lögreglu þykir meint aðild kærða mikil en hún sé talin tengjast skipulagningu og flutningi fíkniefnanna hingað til lands. Þá sé um mjög mikið magn hættulegra fíkniefna að ræða. Hið ætlaða brot kærða þyki mjög alvarlegt og þess eðlis að talið hafi verið rétt að tryggja að kærði gangi ekki laus á meðan mál hans er til meðferðar. Telja verði að ef sakborningur, sem orðið hefur uppvís að jafn alvarlegu broti og kærði sé látinn laus áður en máli lýkur með dómi þá valdi það hneykslun í samfélaginu og særi réttarvitund almennings. Metur lögregla það svo að skilyrðum 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála sé fullnægt í því máli sem hér um ræðir en staða kærða þyki sambærileg stöðu sakborninga á öðrum svipuðum málum sbr. dóma Hæstaréttar  í málum nr. 736/2015, 152/2013, 149/2013, 269/2010, 164/2010 og 91/2010, þar sem sakborningum hafi verið gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli almannahagsmuna þegar legið hafi fyrir sterkur grunur um beina aðild að innflutningi að miklu magni fíkniefna í ágóðaskyni.

Kærði hafi sætt gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknar málsins frá 29. september, nú síðast með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness í máli nr. R-[...]/2015, þar sem úrskurðað hafi verið gæsluvarðhald á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, en sá úrskurður hafi verið staðfestur með dómi Hæstaréttar. Þar sem kærði sætti gæsluvarðhaldi í 12 vikur án þess að mál hafi verið höfðað á hendur honum hafi lögregla talið, í samræmi við 4. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, að ekki væri unnt að fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna. Í samræmi við það hafi verið farið fram á og kærði í kjölfarið verið úrskurðaður í farbann. Því sé farið fram á að kærði verði úrskurðaður í áframhaldandi farbann á grundvelli 100. gr. laga nr. 88/2008 en á því sé byggt að skilyrði 2. mgr. 95. gr. laganna séu uppfyllt. Þá telur lögregla að jafnframt megi líta til b-liðar 1. mgr. 95. gr. en verði kærði sakfelldur fyrir þau brot sem hann er grunaður um eigi hann yfir höfði sér þungan dóm. Því megi ætla að kærði kunni að reyna að komast úr landi eigi hann þess kost. Að mati lögreglu er brýnt að tryggja nærveru kærða á meðan mál hans er til meðferðar fyrir yfirvöldum hér á landi og því nauðsynlegt að honum verði gert að sæta farbanni þar til mál hans er til lykta leitt.

Rannsókn lögreglu hafi að hluta til verið unnin í samstarfi við erlend yfirvöld þar sem óskað hafi verið eftir húsleitum og skýrslutökum. Rannsóknin sé nú á lokastigi og verði málið sent héraðssaksóknara á næstu dögum. 

Til rannsóknar sé ætlað brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 ásamt síðari breytingum, sem geti varðað allt að 12 ára fangelsi. Um heimild til að úrskurða kærða í  farbann sé vísað til b-liðar 1. mgr. og 2. mgr. 95. gr. sbr. 100. gr.  laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. Með vísan til alls framangreinds og framlagðra gagna málsins sé þess beiðst að krafa lögreglustjóra um farbann nái fram að ganga.

 

                Með dómi Hæstaréttar 21. janúar 2016 í máli nr. 51/2016 var kærða gert að sæta farbanni til dagsins í dag á grundvelli 100. gr. laga nr. 88/2008, sbr. 2. mgr. 95. gr. sömu laga. Er ekkert fram komið í málinu sem leiðir til þess að ekki séu lengur fyrir hendi skilyrði til að kærða verði gert að sæta farbanni, en rannsókn málsins, sem hefur verið mjög umfangsmikil, er á lokastigi og verður málið sent héraðssaksóknara á næstu dögum. Með vísan til framangreinds er fallist á kröfu lögreglustjóra um áframhaldandi farbann, eins og nánar greinir í úrskurðarorði.

Úrskurð þennan kveður upp Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari.

Úrskurðarorð:

Kærði, X, skal sæta farbanni allt til þriðjudagsins 15. mars 2016, kl. 16:00.