Hæstiréttur íslands

Mál nr. 425/2000


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Mánudaginn 27

 

Mánudaginn 27. nóvember 2000.

Nr. 425/2000.

Ákæruvaldið

(Ragnheiður Harðardóttir saksóknari)

gegn

X

(Helgi Jóhannesson hrl.)

                                              

Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Úrskurður héraðsdóms um að S skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Guðrún Erlendsdóttir, Haraldur Henrysson og Markús Sigurbjörnsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 22. nóvember 2000, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 23. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 22. nóvember 2000, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 28. febrúar 2001 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að sér verði í stað gæsluvarðhalds bönnuð för úr landi þar til dómur gengur í máli hans.

Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 22. nóvember 2000.

Ríkissaksóknari hefur krafist þess að dómfellda, X, verði með vísan til 106. gr. laga nr. 19/1991 gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi á meðan meðferð máls hans fyrir Hæstarétti stendur, þó eigi lengur en til miðvikudagsins 28. febrúar 2001, kl. 16.00, en gert er ráð fyrir að málið komist á dagskrá réttarins eftir áramót.

Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. S-774/2000 sem kveðinn var upp 27. júní sl. var framangreindur X dæmdur skv. 173. gr. a almennra hegningarlaga, sbr. lög nr. 64/1974, til að sæta fangelsi í 7 ár og 6 mánuði og upptöku á jafnvirði 21.400.000 króna, svo og til greiðslu hluta sakarkostnaðar, en frá refsivistinni skal draga óslitið gæsluvarðahald hans frá 11. september 1999 til 27. júní 2000.

Skv. 106. gr. laga nr. 19/1991 lýkur gæsluvarðhaldi þegar dómur hefur verið kveðinn upp í máli.  Eftir kröfu ákæranda getur dómari þó úrskurðað að gæsluvarð­hald skuli haldast meðan á fresti skv. 2. mgr. 151. gr. laga nr. 19/1991 stendur svo og á meðan málið er til meðferðar fyrir æðra dómi.  Áfrýjunarstefna hefur verið gefin út og eru því skilyrði 106. gr. laganna fyrir hendi.  Með hliðsjón af alvarleika þeirra brota sem dómfelldi hefur verið dæmdur fyrir verður að telja almannahagsmuni krefjast þess að honum verði gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi.  Krafa ríkissaksóknara er því tekin til greina eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði.

Sigríður Ólafsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

Úrskurðarorð:

Dómfelldi, X, sæti gæsluvarðhaldi á meðan á meðferð máls hans fyrir Hæstarétti stendur, þó eigi lengur en til miðviku­dagsins 28. febrúar 2001, kl. 16.00.