Hæstiréttur íslands
Mál nr. 388/1999
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Fimmtudaginn 30. september 1999. |
|
Nr. 388/1999. |
Lögreglustjórinn í Reykjavík (Egill Stephensen saksóknari) gegn X (Kristján Stefánsson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður l. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðs 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Pétur Kr. Hafstein, Gunnlaugur Claessen og Markús Sigurbjörnsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 27. september 1999, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 28. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 24. september 1999, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 24. nóvember nk. kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að úrskurður héraðsdómara verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði staðfestur.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 24. september 1999.
Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur krafist þess að X, [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991 en þó eigi lengur en til miðvikudagsins 24. nóvember nk. kl. 16.00.
[...]
Með hliðsjón af málavöxtum og rannsóknargögnum verður að telja að fram sé kominn rökstuddur grunur um að kærði hafi framið brot sem varðað geta fangelsisrefsingu eins og að framan greinir. Með vísan til a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála verður framangreindri krafa Lögreglustjórans í Reykjavík um gæsluvarðhald tekin til greina. Af gögnum málsins má ráða að rannsókn þess er skammt á veg komin. Ljóst þykir einnig að hún er umfangsmikil, flókin og tímafrek. Þykja því ekki efni til að marka gæsluvarðhaldinu skemmri tíma.
Sigríður Ingvarsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Úrskurðarorð:
Kærði, X, [...], sæti gæsluvarðhaldi, þó eigi lengur en til miðvikudagsins 24. nóvember nk. kl. 16:00.